Bændablaðið - 04.11.2008, Qupperneq 5
5 Bændablaðið | þriðjudagur 4. nóvember 2008
Ungmennafélag Íslands í sam-
vinnu við Bændasamtök Íslands
og Kvenfélagasamband Íslands
standa fyrir félagsmálafræðslu
um land allt í vetur undir yfir-
skriftinni ,,Sýndu hvað í þér
býr“. Þessir aðilar skrifuðu undir
samstarfssamning þar að lútandi
í höfuðstöðvum UMFÍ á dög-
unum. Hlutverk námskeiðsins er
sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í
fundarsköpum og ræðumennsku.
Þátttakendur fá æfingu í fram-
komu, framsögn og þjálfun í
fundarsköpum.
Tímasetningin er góð
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, sagði eftir undir-
skriftina vonast eftir því að
námskeiðin yrðu þátttakendum
skemmtileg og umfram allt gagn-
leg. Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtaka Íslands, tók
undir orð formanns UMFÍ og sagði
tímasetningu námskeiðanna góða í
þeim erfiðleikum sem samfélagið er
að fara í gegn um einmitt um þessar
mundir. Sigurlaug Viborg, forseti
Kvenfélagasambands Íslands, lýsti
ánægju sinni með samstarfið sem
væri kvenfélagasambandinu ómet-
anlegt. Hún vonaðist eftir að konur
yrðu duglegar að taka þátt í nám-
skeiðunum.
Sigurður Guðmundsson hefur
verið ráðinn til að stjórna félags-
málafræðslunni en hann er íþrótta-
fræðingur að mennt en sem slíkur
útskrifaðist hann frá Háskólanum
í Reykjavík á sl. vori. Ákvarðanir
um fundarstaði í vetur munu birtast
í fjölmiðlum og á heimasíðum sam-
starfsaðila.
Áhugasömum er einnig bent
á að afla sér frekari upplýsinga
um námskeiðið hjá Guðrúnu
Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í
síma 848-5917 og á gudrun@umfi.
is og Sigurði Guðmundssyni í síma
861-3379 og á sigurdur@umfi.is
KEA skyrdrykkur fyrir heilbrigðan lífsstíl
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
38
75
1
0/
08
Þökkum frábærar
viðtökur
Viðtökur við KEA skyrdrykknum fóru fram úr björtustu vonum.
Við biðjumst velvirðingar á því að KEA skyrdrykkur hefur ekki verið fáanlegur
í sumum verslunum undanfarið. Ástæðan er sú að sala á drykknum var svo gríðarlega mikil
að við gátum ekki annað eftirspurn. Unnið er hörðum höndum að því að framleiða nægjanlegt
magn og má búast við nýrri sendingu innan skamms.
Haustfundur
Sambands garð-
yrkjubænda
verður haldinn á Hótel Selfossi
7. nóvember næstkomandi. Dag-
skrá hans er sem hér segir:
13:00-14:00 Umhverfismál garð-
yrkjunnar, Stefán Gíslason,
umhverfisverkfræðingur
14:00-15:25 Áhrif umróts í efna-
hagsmálum á rekstrarumhverfi,
Daði Már Kristófersson, hag-
fræðingur
15:25-15:40 Kaffihlé
15:40-16:10 Ný rannsókn á lýs-
ingu papriku, Christina Stadler,
rannsóknarstjóri LbhÍ
16:10-16:40 Er hægt að búa til
sitt eigið eldsneyti? Elfa Dögg
Þórðardóttir, garðyrkjufræð-
ingur og MSc. í umhverfis- og
auðlindafræðum.
16:40-17:00 Staða garðyrkjunnar,
Magnús Á. Ágústsson, ráðu-
nautur
Félagsmálafræðsla um allt land
Sýndu hvað í þér býr!
Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað-
ur UMFÍ og Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, voru
kampakát eftir undirritun samkomulags um félagsmálafræðsluna „Sýndu
hvað í þér býr“.
Eigenda og ræktenda-
félag landnámshænsna:
Aðalfundur
Bændahöllinni við Hagatorg,
laugardag 8. nóvember kl. 14
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar félagsins lagðir
fram
3. Kosningar
4. Kaffiveitingar í boði stjórnar
5. Gestur fundarins er Þórunn
Þórarinsdóttir, dýralæknir.
Hún hefur fallist á að koma
og ræða um þörf eigenda
fyrir dýralækni sem tilbúinn
sé að sinna hænsnum.
6. Önnur mál.
Auk þessa verða frumsýndar
myndirnar sem verða á plakatinu
„litir landnámshænunnar“.Að
fundinum loknum verður spjall-
að og sagðar hænsnasögur eins
og venjulega. Fjölmennum og
höldum góðan fund!
Stjórnin