Bændablaðið - 04.11.2008, Page 17
17 Bændablaðið | þriðjudagur 4. nóvember 2008
„Það eru ekkert nema neikvæðar
fréttir í fjölmiðlum og maður er
farinn að spyrja sig hvort það felast
engin tækifæri í kreppunni? Er allt
bara ómögulegt?“ spurði Sigurður
og var greinilega mikið niðri fyrir.
Það getur verið erfitt að horfa bjart-
sýnum augum til framtíðar þegar
neikvæðar fréttir berast daglega
og við vitum ekki hvað snýr upp
og hvað snýr niður. En já, meira að
segja í kreppu felast tækifæri.
Þegar gjaldeyrir er orðinn mun-
aðarvara, þá hljótum við að þurfa
að hugsa upp nýjar og ferskar leið-
ir til að reyna að afla sem mest af
honum. Í Morgunblaðinu þann
18. október sl. birtust greinar eftir
Þorstein Inga Sigfússon, forstjóra
Nýsköpunarmiðstöðvar og Ólöfu
Ýrr Atladóttur, ferðamálastjóra.
Þorsteinn Ingi talaði m.a. um
mikilvægi innlendrar matvæla-
framleiðslu við núverandi aðstæð-
ur: „Matvælaöryggi miðast við að
þjóðin geti sem best brauðfætt sig
við allar aðstæður. Þessi þáttur kall-
ar á eflingu matvælaframleiðslu... “
Þá sagði Ólöf Ýrr: „Ferðaþjónustan
hefur um árabil verið ein okkar
mikilvægasta atvinnugrein og
mun á næstu misserum gegna enn
stærra hlutverki en hingað til: sem
atvinnuskapandi afl úti um allt
land, einn af hornsteinum byggða-
stefnu í landinu en síðast en alls
ekki síst ein stærsta gjaldeyrisskap-
andi atvinnugrein þjóðarinnar.“
Ferðumst í gegnum bragðlaukana
Tækifæri liggja í að samþætta þetta
tvennt enn frekar, matvælafram-
leiðslu og ferðaþjónustu. Stór hluti
af upplifun okkar þegar við ferð-
umst er maturinn, og er matur tal-
inn vera eitt mikilvægasta aðdrátt-
araflið fyrir ferðamenn. „Við
hjónin fórum á nýtt veitingahús
á hverju kvöldi þegar við vorum í
Portúgal og lögðum mikla áherslu á
að bragða helst alltaf nýja saltfisk-
uppskrift,“ sagði náin vinkona mín
við mig. „Það var feiknarstór hluti
af upplifuninni.“ Ég sjálf get aldrei
hugsað til Tyrklands og Frakklands
án þess að fá vatn í munninn, og gat
alls ekki sleppt því að fara á gott
steikhús þegar ég heimsótti Texas
fyrir nokkrum árum. Góð steik var
jafn tengd Texas í mínum huga og
JR Ewing Dallas og Southfork.
Þurfum aukna vöruþróun
Víðs vegar um land hafa menn tek-
ið höndum saman við að kynna og
útbúa mat sem byggist á íslensk-
um hefðum og sögu. Má þar nefna
Matarkistan Suðurland, Í ríki
Vatnajökulsþjóðgarðs, Þingeyska
matarbúrið, Matur úr héraði í
Eyjafirði, Matarkistan Skagafjörður,
Vaxtarsprotaverkefnið og Beint
frá býli. En nú þurfum við að setja
enn meiri kraft í þessi verkefni.
Framleiðendur, verslanir, veitinga-
hús og bakarí þurfa að íhuga hvern-
ig þeir geta nýtt sem mest innlent
hráefni, hugmyndir og sköpunar-
kraft við framleiðslu sína og hið
opinbera þarf að leita allra leiða til
að styðja við þessar atvinnugreinar.
Fyrsta skrefið í þá átt verður
vonandi tekið með verkefni sem
Nýsköpunarmiðstöð Íslands í sam-
starfi við fjölda aðila hyggst fara
af stað með þar sem áhersla verður
lögð á að styðja við áframhaldandi
vöruþróun í matvælaframleiðslu og
ferðaþjónustu. Hugsanlega gætu
síðan Framleiðnisjóður landbúnað-
arins, Byggðastofnun, Tækniþró-
unarsjóður og Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins fylgt í kjölfarið með
fjármagn og enn frekari stuðningi
við vaxtarsprota af þessu tagi.
Að lokum vil ég hvetja sem
flesta til að taka þátt í Safnahelgi
Suðurlands þann 7.-9. nóvember
þar sem Matarkistan Suðurland
hefur tekið höndum saman með
Safnaklasa Suðurlands og býður
upp á mat byggðan á hefðum úr
héraði. Uppákomur og viðburðir
verða um allt Suðurland, þar sem
gestir og gangandi geta upplifað
og smakkað á menningu og sögu
Suðurlands.
Felast tækifæri í kreppunni?
Eygló Harðardóttir
verkefnastjóri/ráðgjafi
eygloh@yahoo.com
Atvinnumál í sveitum
VA
NT
AR
VÉ
LA
R
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200
www.velfang.is velfang@velfang.is
VERKIN TALA
ÁTTU GÓÐA VÉL TIL SÖLU?
Höfum kaupendur að
eftirtöldum dráttarvélum!
MASSEY FERGUSON 135 – 165 – 185
188 – 265 – 275 – 290 – 565 – 575 – 590.
FORD 5000 – 6000 og 7000 seríu.
Áhugasamir hafi samband við
Sigurgeir Þórðarson í síma 580 8200
eða með tölvupósti sigurgeir@velfang.is
FR
U
M
Formannsskipti urðu í Bonde-
laget, samtökum bænda í Noregi,
fyrr á þessu ári. Nýr formaður
er Pål Haugstad, bóndi á Heið-
mörk, sem tók
við af Bjarne
Undheim. Fyr-
ir nokkru flutti
hann norskum
bændum boð-
skap sinn í
grein í Bonde-
bladet. Hér á
eftir fara kafl-
ar úr greininni:
Á næsta ári eru Stórþingskosn-
ingar í Noregi. Það er mál mál-
anna að nýtt Stórþing marki stefnu
um að vernda landbúnað og byggð
í öllu landinu, einnig eftir 2009.
Það er hins vegar ekkert sjálfgef-
ið að málefni dreifbýlis og land-
búnaðar verði áberandi í næstu
kosningabaráttu. Til að það gerist
verðum við sjálf að taka málin í
hendur okkar á trúverðugan hátt.
Sem samtök verðum við að ein-
beita okkur að því verkefni. Staða
landbúnaðarins og hlutverk hans
í þjóðfélaginu um þessar mundir
gefur okkur byr í seglin.
Þessi meðvindur gildir jafnt
um Noreg og á alþjóðavettvangi.
Það verður æ ljósara að heimurinn
þarfnast meiri matar og það er
ekki sjálfgefið að eiga hann vísan.
Sumir trúa því að það gerist með
frjálsari viðskiptum, þ.e. með því
að sleppa markaðsöflunum laus-
um. Bændur um víða veröld vita
hins vegar að áætlanir til langs
tíma og stöðugleiki eru meg-
inatriði í farsælum landbúnaði og
að frumframleiðslu búvara, sem
byggist á litlum búum og vinnu-
framlagi fjölskyldunnar, verður að
verja fyrir ofurefli fjármagnsins.
WTO-samningarnir á sl. sumri
strönduðu á rétti þróunarlanda til
að vernda eigin matvælafram-
leiðslu. Það var athyglisvert að
verða vitni að því að Indland tók
forystu fyrir þróunarlöndin um
að þau fengju að verja eigin mat-
vælaframleiðslu og bændur gagn-
vart óljósum hag af fríverslun.
Samningagerð á vegum WTO
um búvöruviðskipti hefur lifað
sjálfa sig. Hún gengur út frá því
ástandi sem ríkti í heiminum á
níunda og tíunda áratug síðustu
aldar, þegar offramleiðsla búvara
ríkti og lágt verð og sölutregða
var á mörkuðum. Kannski var
það þessi nýja veröld sem rann
upp fyrir mönnum í Genf í sumar.
Ég hef heldur ekki trú á að yfir-
standandi WTO-samningum ljúki
í bráð.
Stórþingskosningarnar á næsta
ári skipta meira máli fyrir norskan
landbúnað en WTO-viðræðurnar.
Við finnum að það er unnt að hafa
áhrif og styrkur samtaka okkar er
sá að við höfum baráttuvilja, við
erum trúverðug og við eigum ítök
um allt land.
Stjórn Norges Bondelag hefur
samþykkt verkefnaáætlun fyrir
samtökin fyrir yfirstandandi starfs-
ár, sjá www.bondelaget.no. Ég vek
þar einkum athygli á fjölbreyttri
atvinnuuppbyggingu á grundvelli
þeirra möguleika sem hvert býli
hefur upp á að bjóða. Þá munum
við fara yfir og endurskoða heild-
arstefnumarkmið samtaka okkar
í virku samstarfi félagsmanna og
samtakanna. Bondebladet, stytt
Samningagerð WTO hefur lifað sjálfa sig
Bændur á starfssvæði Búnaðar-
samtaka Vesturlands halda nú
árshátíð sína, Sveitateiti, í sjötta
sinn þann 15. nóvember n.k. á
Hótel Borgarnesi. Sveitateiti
var fyrst haldið árið 2003. Bún-
aðarfélög á starfssvæðinu hafa
skipst á að halda teitið og þetta
árið er það Búnaðarfélag Eyja-
og Miklaholtshrepps sem ber veg
og vanda af skipulagningu í sam-
starfi við skrifstofu BV.
Við þetta tækifæri hefur stjórn
BV veitt viðurkenningar til bænda
fyrir gott starf og frumkvæði í
sínum störfum.
Teitið hefur alltaf verið vel sótt
bæði af bændum og þeim sem
sinna störfum tengdum landbúnaði.
Einnig hafa fyrrverandi bændur og
velunnarar sótt teitið vel undanfar-
in ár.
Dagskrá Sveitateitisins þetta árið
verður glæsileg eins og venjulega.
Fordrykkur verður í boði Mjaðar,
bruggverksmiðju í Stykkishólmi,
þriggja rétta máltíð að hætti Hótel
Borgarness, skemmtiatriði og að
lokum mun hljómsveiti Bít sjá um
að allir geti dansað fram á nótt. Þá
verður Hótel Borgarnes með tilboð
á gistingu fyrir gesti.
Stjórn BV og Búnaðarfélags
Eyja- og Miklaholtshrepps von-
ast til að sjá sem flesta á teitinu
og hvetur bændur og búalið til að
fjölmenna og gera sér glaðan dag
saman. Það hafi sjaldan verið eins
mikilvægt og nú að koma saman og
efla samhug í leik og starfi.
Ráðstefnan
Hrossarækt 2008
Ráðstefnan Hrossarækt 2008 verður haldin
á Hótel Sögu, laugardaginn 8. nóvember
og hefst kl. 13:00.
Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig
íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki
sem áhugamönnum.
Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson.
Dagskrá:
13:00 Setning - Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í
hrossarækt
13:05 Hrossaræktarárið 2008 – Niðurstöður kynbótamats -
Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ
13:30 Tilnefningar til ræktunarverðlauna 2008
13:45 Erindi:
- Húsvist hrossa, Sigtryggur Veigar Herbertsson, LbhÍ
- Forval í kynbótadómi, Elsa Albertsdóttir , LbhÍ
- Vægistuðlar dómstigans, Guðlaugur V. Antonsson, BÍ
- Breytt sýningarfyrirkomulag kynbótahrossa, Kristinn
Guðnason, Fhrb
15:30 Kaffihlé
16:00 Umræður – orðið laust um erindin og ræktunarmál
almennt
17:00 Ráðstefnuslit
Fagráð í hrossarækt
Sveitateiti haldið í sjötta sinn
Byggðaráð Húnaþings
Ekki áform um
fækkun starfsfólks
Byggðarráð Húnaþings vestra
hefur sent frá sér yfirlýsingu
sökum þess ástands sem skap-
ast hefur í efnahagsmálum þjóð-
arinnar. Er þar meðal annars
áréttað að sveitarfélagið skuldi
ekki neitt í erlendri mynt auk
þess að hafa ekki átt fjármuni
inni á peningamarkaðssjóðum.
Í ályktun sinni áréttar Byggðar-
ráð að þrátt fyrir fyrirsjáanlegt
tekjutap muni sveitarstjórnin af
fremsta megni standa vörð um alla
grunnþjónustu sveitarfélagsins. Þá
hafi sveitarfélagið ekki uppi áform
um fækkun starfsfólks.
Við þær aðstæður sem uppi
eru vekur sveitarstjórn Húnaþings
vestra athygli á mögulegum úrræð-
um félagsþjónustunnar. En öðru
fremur eru íbúar hvattir til að sýna
samstöðu í yfirstandandi þreng-
ingum og umhyggju hver fyrir
öðrum.