Bændablaðið - 15.04.2008, Síða 7

Bændablaðið - 15.04.2008, Síða 7
Það er tími aðalfundanna. Lands- samband kúabænda stefndi sínu liði austur á Selfoss þar sem boðað var til aðalfund- ar dagana 4. og 5. apríl. Allt var þar með hefðbundnu sniði, setningarathöfn með ræðu for- manns og ávörpum gesta, þeirra Einars K. Guðfinnssonar land- búnaðarráðherra og Haraldar Benediktssonar formanns Bænda- samtaka Íslands. Svo komu full- trúar Framleiðnisjóðs og Land- búnaðarháskóla Íslands, þeir Bjarni Guðmundsson og Snorri Sigurðsson. Loks var röðin komin að Halldóri Runólfssyni yfirdýra- lækni og fulltrúa Matvælastofn- unar. Í þessum ávörpum var sleg- inn svipaður tónn að mörgu leyti. Ræða Þórólfs Sveinssonar for- manns LK fjallaði að verulegu leyti um verðhækkun á mjólk, sem þá var nýgengin í gildi, og forsendur hennar. Verðhækkunin gekk eins og rauður þráður í gegnum ræður hans og gestanna og sama máli gegndi um almennu umræðurnar sem hóf- ust að loknum ávörpum gestanna. Kúabændur voru greinilega frekar ánægðir með verðhækkunina þótt sumir teldu þörf á að ganga lengra. Var þeirri spurningu varpað fram hversu lengi þessi hækkun dygði. Nokkuð var rætt um fyrir- komulag verðlagningar á mjólk og Þórólfur varpaði því fram hvort ekki væri tímabært að opinber ákvörðun um verð til framleiðenda væri lögð af. Fyrir því væru ýmsar ástæður, svo sem að forsendur hefðu breyst verulega vegna þró- unar í mjólkurframleiðslu. Vitnaði hann þar í könnun sem gerð var á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands á þróun fjósgerða en hún leiddi í ljós að helmingur íslenskrar mjólk- ur kemur úr fjósum sem hafa verið endurnýjuð og tæknivædd. Við það bættist að rekstrarniðurstöður mjólkuriðnaðarins væru neikvæðar svo það væri enginn afgangur til þess að takast á um. Viðsjár í Evrópu Annað atriði sem nokkrir ræðu- manna minntust á var innleiðing matvælalöggjafar Evrópusam- bandsins sem ráðherra hafði mælt fyrir á alþingi daginn áður. Þórólfur benti á að þessi lagasetning gerði tollverndina sem landbúnaður nyti sýnilegri og gæti því orðið til að auka þrýsting á að úr henni verði dregið. Þetta gæti einnig orðið til þess að ýta undir áhuga fólks á að Ísland sæki um aðild að ESB. Landbúnaðarráðherra bar fund- inum þau tíðindi að hann hefði ákveðið að fella niður það sem eftir var af kjarnfóðurgjaldinu frá og með 1. maí til áramóta. Framhaldið réðist hins vegar af samningum við ESB um tollamál. Þar sagði hann líka að tíðinda gæti verið að vænta því nú væru Svisslendingar að semja við ESB um niðurfell- ingu tolla, þeir hefðu ákveðið að bíða ekki eftir úrslitum í viðræðum á vettvangi WTO. Þetta væru tölu- verð tíðindi sem gætu boðað það að þróunin í átt til tollalækkunar yrði hraðari en menn hefðu talið. Halldór Runólfsson fjallaði nokk uð um búfjársjúkdóma sem herja á íslenskar kýr og rannsókn- ir sem í gangi eru á þeim. Hann sagði einnig að nefnd sem er að athuga hvort ástæða sé til að breyta sóttverndarsvæðum hafi starf- að vel og muni skila áliti um mitt þetta ár. Þá kom fram í máli hans að Matvælastofnun hefur gripið til mótvægisaðgerða vegna inn- leiðingar matvælalöggjafar ESB. Eru þær fólgnar í að taka sýni úr íslenskum nautgripum og leita að nokkrum sjúkdómum sem algengir eru í Evrópu. Niðurstöðurnar eru þær að öll sýnin eru neikvæð fyrir öllum þeim sjúkdómum sem leitað var að. Einn gestur er ónefndur en það var Hendrike Burchardi, þýskur starfsmaður rannsóknarstofunn- ar IFCN sem 70 hagsmunaaðil- ar í mjólkjuriðnaði í 77 löndum starfrækja í sameiningu í Kiel í Þýskalandi. Fjallaði erindi hennar um stöðu og horfur í alþjóðlegum mjólkuriðnaði. Áhyggjur af dýralæknaþjónustu Í umræðum og ályktunum aðal- fundarins varð þess vart að ýmis- legt liggur á kúabændum þessi misserin. Vaxtaokur og vandi við nýliðun í greininni var meðal þess sem bar á góma í ræðustól. Einnig var rætt um matvælalöggjöfina þótt sú umræða bæri þess nokkur merki að hún var nýhafin og upplýsingar af skornum skammti um það sem framundan er. Fundurinn ályktaði hins vegar gegn því að lækka tolla á innflutt- um búvörum, enda gengi það þvert á gefin fyrirheit stjórnvalda und- anfarin ár. Það væri líka slæm tíma- setning að lækka tolla „nú þegar hillir undir nýjan WTO-samning, sem ráða mun þróun heimsvið- skipta með búvörur í framtíðinni og þar með um þróun tollverndar land- búnaðarafurða“. Fundurinn ályktaði einnig um boðaðar breytingar á skipulagi dýralæknaþjónustu og varaði „við því að gerðar verði einhverjar þær breytingar á störfum héraðsdýra- lækna sem ætla má að leiði til lak- ari dýralæknaþjónustu í strjálbýlli héruðum“. Í greinargerð með þess- ari ályktun segir meðal annars: „Verði alger aðskilnaður eftir- lits og almennrar dýralæknaþjón- ustu í samræmi við reglur ESB að veruleika er vandséð að nokkrir dýralæknar muni starfa í fámenn- ustu héruðunum. Því mun fylgja verulegur kostnaður fyrir bændur og jafnframt er sú staða algerlega óásættanleg út frá dýraverndunar- sjónarmiðum. Eðlilegt er að vegna strjálbýlis fáist hér undanþága frá fyrrnefndum aðskilnaði, líkt og tíðkast í strjálbýlli landshlutum Noregs og Svíþjóðar.“ ÞH Þegar þær fréttir bárust til lands- ins á dögunum, að Danir hefðu lagt Helvíti niður, orti Hákon Aðalsteinsson, skáld og skóg- arbóndi: Margt er það sem lífsgæðin lagar, loksins gefst nú syndugum friður. Bíða okkar dýrðlegir dagar því Danir lögðu Helvíti niður. Hákon hitti séra Baldur í Vatns- firði á dögunum, en Baldur hafði verið að láta laga í sér augun og skipta um augasteina. Hákon spurði hvernig gengi og var Baldur ánægður með aðgerðina og sagði hana hafa gengið vel. Þá orti Hákon: Læknisfræðin loksins getur lagað augun hans. Séra Baldur sér nú betur syndir náungans. Ljót er staðan Hjálmar Freysteinsson orti limru um ástand efnahagsmálanna hjá okkur: Ljót er nú staða landans; umfang efnahagsvandans, það eina sem hér til huggunar er: það fer aldrei lengra en til Fjandans. Þeir, sem aldrei eru í vafa Ég veit ekki eftir hvern þessi vísa er, en hún er góð: Undrun bæði og öfund hafa aukið hjá mér jafnt og þétt þeir, sem aldrei eru í vafa og alltaf vita hvað er rétt. Þvílík högg Örn Snorrason orti að morgni eftir gleðskap liðinnar nætur: Þvílík högg og hamarskak, af hjarta yrði ég glaður ef þú hvíldist andartak, elsku timburmaður. Lesti ber Þessa vísu kallar Kristján Bersi „ómerkilega“ skáhendu: Lesti ber í brjósti mér bæði stærri og smærri. Einatt vóru afglöp stór eðli mínu nærri. Þeir fullkomnu Þessa frómu bæn bar Pétur Stef- ánsson fram við Drottinn sinn: Úr glerhúsi fúkyrðum fleygja fast í ólánsgarm. Ljúfur Guð, láttu þá þegja og líta í eigin barm. Í hógværð Séra Hjálmar Jónsson fékk fálka- orðuna á sínum tíma og sagði svo frá: „Í hógværð minni á Bessastöðum flutti ég viðstöddum eftirfarandi: Hæstvirtur forseti heiðra kaus og hrósa okkur, mikið. Ég er því ekki orðulaus Forseti sagði að vísu frá því eftir kvatt sér hljóðs. Það er semsagt ekki liðin tíð að leirlistamenn skandaliseri.“ Illar vísur Það er mikill sannleikur í seinni parti þessarar vísu, sem er eftir Kristján Bersa: Illar vísur yrki ég, hef ærunni með því fórnað. Hagmælskan er hættuleg sé henni ekki stjórnað. Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson ss@bondi.is Í umræðunni Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 20087 MÆLT AF MUNNI FRAM Sú hefð hefur skapast á aðalfundum LK að veita viðurkenningu kúabændum sem standa sig vel í búrekstri sínum. Hér er 2008-hópurinn samankominn á Hótel Selfossi. F.v. Hans Pétur Diðriksson, Karítas Þórný Hreinsdóttir, Ágústa Ólöf Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Diðriksson, þau búa öll á Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði. Þá koma hjónin Ólafur Eggertsson og Guðný J. Valberg á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Loks eru það Páll Lýðsson og Elínborg Guðmundsdóttir í Litlu-Sandvík í Flóa en Páll lést af slysförum örfáum dögum síðar. Á myndina vantar hjónin á Skálpastöðum í Lundarreykjadal í Borgarfirði, Guðmund Þorsteinsson og Helgu Bjarnadóttur. Sigurgeir Hreinsson á Hríshóli í Eyjafirði tók þátt í almennum umræðum. Til hægri er Runólfur Sigursveinsson fundarritari. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK, ásamt þýska gestinum, Hendrike Burchardi í hádegisverði fyrri fundardaginn. Að kvöldi fyrri fundardags var boðið til veislu og þar tóku þau Anna Eiríks- dóttir og Magnús Sigurðsson á Hnjúki til matar síns og leiddist greinilega ekki. Þórólfur Sveinsson formaður LK flytur setningarræðu sína. Aðalfundur Landssambands kúabænda Hversu lengi dugir verðhækkunin?

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.