Bændablaðið - 15.04.2008, Qupperneq 13

Bændablaðið - 15.04.2008, Qupperneq 13
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200813 Það fyrsta sem mætti fundar- mönnum á aðalfundi Lands- samtaka sauðfjárbænda var sú ákvörðun stjórnar að hækka við- miðunarverð á dilkakjöti um 98 krónur að lágmarki. Þessi hækk- un kom bændum þægilega á óvart þótt flestir hefðu átt von á því að allnokkur hækkun yrði á verðinu í ljósi þeirra mikla verðhækkana á aðföngum, ekki síst áburði, sem orðið hafa að undanförnu. Samkvæmt samþykktinni á við- miðunarverðið að fela í sér að verð á dilkakjöti til sauðfjárbænda hækki að lágmarki um 98 krónur á kíló miðað við vegið meðalverð árs- ins 2007. Það þýðir að vegið með- alverð á dilkakjöti innanlands þarf að fara upp í 461 kr. á kíló. Þetta jafngildir 27% hækkun viðmið- unarverðsins. Verð fyrir dilkakjöt til útflutnings þarf að sama skapi að fara upp í 335 kr. á kíló. Útflutningsskyldan framlengd? Jóhannes Sigfússon formaður LS setti aðalfundinn með ræðu þar sem hann fór yfir sviðið í sauðfjárrækt- inni á liðnu ári. Reksturinn hefur að sjálfsögðu dregið dám af ástand- inu í íslensku efnahagslífi þar sem verðbólga er á uppleið, „vaxtakjör sem bjóðast með þeim hætti að hreint okur má kallast og hækkanir á innfluttum rekstrarvörum til land- búnaðar stórfelldari en við höfum trúlega nokkru sinni staðið frammi fyrir“. Í þessari stöðu taldi Jóhannes einsýnt að fresta bæri niðurfellingu útflutningsskyldu af dilkakjöti og fara ekki í frekari tollalækkanir á innfluttu kjöti eða mjólkurvörum. „Frestun á niðurfellingu útflutn- ingsskyldunnar er að flestra dómi sjálfsögð aðgerð nú, miðað við gjörbreyttar forsendur frá því síð- asti sauðfjársamningur var undirrit- aður,“ sagði Jóhannes. Einar K. Guðfinnsson landbún- aðarráðherra var meðal þeirra gesta sem ávörpuðu aðalfund LS og hann ræddi einnig um útflutningsskyld- una en taldi ýmis tormerki á því að rífa upp sauðfjársamning sem tók gildi um síðustu áramót. Hnípin þjóð í vanda Jóhannes formaður gerðist hins vegar nokkuð heimspekilegur í ræðu sinni. Í miðri ræðu baðst hann afsökunar á því að tala „eins og hvert annað markaðshyggjudýr“ sem væri honum alls ekki tamt. Síðan sagði hann: „Þegar glæsihallir nýríkra útrás- arburgeisa hrynja eins og spilaborg- ir ein af annarri og herkostnaðurinn í formi erlendrar skuldasöfnunar verður að drápsklyfjum í einu vet- fangi stendur „hnípin þjóð í vanda“. Er þá ekki nærtækt að spyrja hver séu hin raunverulegu verðmæti þjóðarinnar sem mölur og ryð fá ekki grandað? Eru það ekki einmitt þær stórkostlegu auðlindir sem við eigum, bæði til sjávar og sveita, til að brauðfæða okkur sem allra mest af eigin rammleik. Sá sem þarf sér brauðs að biðja heldur aldrei reisn sinni til lengdar. Það er alla vega keppikefli okkar sauðfjárbænda og sameiginleg hugsjón að nýta gæði landsins sem best, en þó á sjálf- bæran hátt, til að framleiða holl og ómenguð matvæli sem þjóðin getur verið stolt og ánægð með að hafa nægan aðgang að.“ Opið fjós að Mýrum 3 Fimmtudaginn 17. apríl n.k. verður fjósið að Mýrum 3, Heggstaðanesi, 531 Hvammstanga, opið milli kl. 13-17. Fjósið er hannað fyrir 70 mjólkurkýr auk geldneyta. Það var tekið í notkun 19. ágúst sl. og byggt við eldra fjós frá 1988. Framkvæmdir hófust sumarið 2006. Húsið er stálgrindahús á steyptum mykjukjallara. Stálgrind og klæðning er frá Stálbæ. Þann 6. des var DeLaval mjaltaþjónn frá Vélaver gangsettur. Gólfbitar, innréttingar og básadýnur eru frá Líflandi. Fóður kemur einnig frá Líflandi en er með heilfóður- vagni. Síðar er stefnt á að fá fóð- urkerfi. Gluggar, loftræsting, lýs- ing og básadýnur fyrir geld kýr eru frá Landstólpa. Fulltrúar frá Vélaveri, Líflandi og Landstólpa verða á opnu fjósi að Mýrum á fimmtudaginn nk. H ö n n u ð u r fjóssins var Ívar Ragnarsson. Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda Viðmiðunarverð hækkað um 98 kr. Myndirnar tók TB á aðalfundinum og í hátíðarkvöldverðinum að fundi loknum. Fundurinn var haldinn í Bændahöllinni. Flóaskóli er nýbúinn að end- urnýja um helminginn af hús- gögnunum í skólanum. Þegar skólastjórnendur voru að velta því fyrir sér hvað ætti að gera við gömlu húsgögnin, borðin og stólana, datt Guðmundi Jóni Sigurðssyni, umsjón- armanni fasteigna hjá Flóahreppi, í hug að gefa þau til Rauða krossins. Það gekk eftir; Örn Ragnarsson, verkefna- stjóri hjá Rauða kross- inum, mætti í skólann á flutningabíl og tók öll húsgögnin sem skólinn þurfti að losa sig við. „Við erum mjög ánægð með þessa gjöf frá Flóaskóla, hús- gögnin eiga eftir að koma sér vel í barnaskóla í Malavíu í Afríku sem er verið að byggja upp. Ég vil nota þetta tækifæri og hvetja aðra skóla sem þurfa að losa sig við hús- gögn að láta okkur vita, þau koma sér alltaf vel á þeim svæðum þar sem við erum að störfum. Þá vant- ar skólana í Afríku oft liti, papp- ír, blýanta og önnur námsgögn,“ sagði Örn í samtali við blaðið. MHH Flóaskóli gaf stóla og borð til skóla í Afríku Í Flóaskóla eru 58 börn í 1.-7. bekk. Nemendurnir hjálp- uðust að við að bera húsgögnin, 40 borð og 30 stóla, út í flutninga- bíl Rauða krossins.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.