Bændablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200818 Hátíðin Eftir Mýraelda stóð yfir 3. til 5. apríl sl. í Lyngbrekku á Mýrum. Hún hófst á fimmtu- dagskvöldi með fjölmennum bændafundi þar sem landbúnað- arráðherra og formaður Bænda- samtakanna fluttu framsöguer- indi. Hátíðinni var síðan fram hald- ið á laugardag með opnu húsi í Lyngbrekku þar sem til sýnis voru landbúnaðartæki og búnaður, auk handverks, mjólkur- og kjötvara og ýmislegs fleira. Þá voru flutt skemmtiatriði og vel rekin bú fengu viðurkenningar. Opið fjós var í Þverholtum og mætti mikill fjöldi fólks þangað sem og á aðra viðburði hátíðarinnar. Það var mál manna sem hátíðina sóttu að vel hafi tekist til en mörg hundr- uð manns lögðu leið sína vestur á Mýrar þegar heimamenn minnt- ust náttúruhamfaranna þegar yfir 70 hektarar lands brunnu fyrir réttum tveimur árum. Miðað við umfang eldanna var við hæfi að minnast þess hversu giftusamlega tókst til við að forða fólki, fénaði og mannvirkjum frá því að verða eldinum að bráð. Þar unnu bænd- ur, slökkviliðsmenn og ýmsir fleiri stórvirki. Það er Búnaðarfélag Mýra- manna sem stóð fyrir hátíðinni sem nú er stefnt að verði fastur liður annað hvert ár. Guðbrandur Guðbrandsson á Staðarhrauni er formaður félagsins. Hann var að vonum ánægður síðdegis á laugardeginum með viðtökurn- ar og þann mikla fjölda sem sótti Mýramenn heim. „Við getum ekki annað en verið ánægð. Þetta tókst ágætlega til og hingað komu mun fleiri en búist var við bæði á bændafund og hátíðardagskrána. Það er samhentur hópur fólks hér á svæðinu sem stóð að þessu og það voru allir boðnir og búnir til að rétta hjálparhönd. Upphaflega var það Halldór Gunnlaugsson á Hundastapa sem átti hugmyndina að hátíðinni,“ sagði Guðrandur. Aðspurður segir hann að búnaðar- félagið hafi verið sameinað úr þremur félögum fyrir nokkru og sé ágætlega virkt félag sem vinni að ýmsum hagsmunamálum fyrir bændur á svæðinu. Sjötíu manna bændafundur Um sjötíu manns sótti bændafund- inn í Lyngbrekku. Framsöguerindi fluttu landbúnaðarráðherra og formaður Bændasamtaka Íslands. Eftir ræður þeirra kvöddu margir bændur sér hljóðs og ræddu stöðu bænda, einstakra búgreina, félags- kerfið og nauðsyn þess að bænd- ur og almenningur stæðu vörð um landbúnaðinn. Stórbúið í Þverholtum Óhætt er að segja að heimamenn á Mýrum hafi tekið höfðinglega á móti gestum. Á opnu fjósi í Þverholtum var t.d. drekkhlað- ið borð veitinga og drykkja fyrir gesti, svo jafnaðist á við vegleg- ustu fermingarveislu. Voru margir sem þáðu veitingar og skoðuðu um leið eitt tæknivæddasta fjós lands- ins í dag. Fjósið í Þverholtum var tekið í notkun 4. október síðastlið- inn og rúmar 130 mjólkandi kýr en í allt eru á Þverholtabúinu um 400 nautgripir enda er um stærsta kúabú á Vesturlandi að ræða. Uppbyggingu þar er þó hvergi nærri lokið því áætlað er að hefja fljótlega byggingu annars fjóss sem tekur enn fleiri mjólkurkýr. Í nýja fjósinu eru tveir mjaltaþjónar (róbótar), burðarstíur, sjúkrastí- Þau voru verðlaunuð af Búnaðarfélaginu fyrir bú sín. Frá vinstri eru Þuríður og Unnsteinn í Laxárholti, Reynir og Edda í Leirulækjarseli og Guðbrandur og Snjólaug á Brúarlandi. Fjölmenni sótti hátíðina Eftir Mýraelda Efnilegustu fyrsta kálfs kvíguna á búinu keypti Hilmar frá Brúsholti í Flókadal snemma árs 2006, eftir að mæðgurnar þar auglýstu kálfinn til sölu í smáauglýsingum Skessuhorns. Hér er kýrin Anna-Bella ásamt Mána Hilmarssyni.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.