Bændablaðið - 15.04.2008, Page 19
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200819
ur og aðstaða fyrir kálfa. Þá er
til þess tekið hversu vel er búið
að allri aðstöðu fyrir starfsfólk.
Að sögn Hilmars Sigurðssonar
bústjóra í Þverholtum er jörðin
í eigu Jóhannesar Kristinssonar
athafnamanns en Hilmar og eig-
inkona hans, Þóra Þorgeirsdóttir,
ásamt Helga Baldurssyni, reka
búið í félagi við Jóhannes. „Þetta
hefur verið snörp en afar skemmti-
leg uppbygging. Hér var engu til
sparað við fjósbygginguna og hér
líður kúnum vel. Við ætlum okkur
að stækka búið enn meira og bæta
aðstöðuna fyrir þann hluta kúnna
og geldneyta sem komast ekki
fyrir í nýja fjósinu,“ sagði Hilmar.
Gestir sem blaðamaður ræddu
við voru á einu máli um að sjaldan
eða aldrei hafi þeir upplifað heim-
sókn í fjós þar sem gripum líður
augsýnilega jafn vel. Þar heyrist til
dæmis ekki baul eða óánægjutónn
í kúm eða kálfum sem flatmög-
uðu í rúmgóðum stíum undir ljúfri
tónlist sem spiluð er fyrir grip-
ina. Kýrnar eru greinilega afar vel
fóðraðar og sælar með hlutskipti
sitt enda eru þær allar þurrar og
hreinar á rúmgóðum legubásum
með gúmmídýnum og spæni sem
burðarlag. Mjaltaþjónarnir voru
báðir að störfum allan tímann sem
gestir stöldruðu við og biðraðir
kúnna voru í að komast í mjaltir og
fá um leið kjarnfóðrið sitt. Fjósið í
Þverholtum er eins og flest ný fjós
í dag frá Landstólpa, sem kynnti
innréttingar og byggingar við þetta
tækifæri.
Viðurkenningar fyrir úrvalsbýli
Í og við félagsheimilið Lyngbrekku
var sýning á landbúnaðartækjum,
handverki og landbúnaðarafurðum
ýmiss konar. Söngur og skemmi-
atriði voru í boði og góðbændur
voru heiðraðir af búnaðarfélag-
inu fyrir bú sín. Það voru hjón-
in Reynir Gunnarsson og Edda
Hauksdóttir í Leirulækjarseli sem
fengu viðurkenningu fyrir afburða
kúabú en kýrnar í Seli hafa um
árabil verið með afurðahæstu kúm
landsins. Guðrandur Brynjúlfsson
og Snjólaug Guðmundsdóttir á
Brúarlandi fengu viðurkenningu
fyrir gott svínabú auk snyrti-
mennsku á jörð sinni og ekki síst
viðamikillar skjólbeltaræktunar
og skógræktar. Loks fengu þau
Unnsteinn Jóhannsson og Þuríður
Gísladóttir í Laxárholti viðurkenn-
ingu fyrir afurðaháar kýr og dugn-
að við kornrækt og fóðuröflun.
Ástæða er til að óska Mýra-
mönnum til hamingju með vel
heppnaða hátíð í liðinni viku. Þar
sýndu bændur og búalið gestristni
að sönnum íslenskum sveitasið
og er ástæða til að láta sig strax
hlakka til sambærilegrar hátíðar að
tveimur árum liðnum. mm
Kálfarnir í Þverholtum voru lítið að kippa sér upp við gestafjöldann en
tóku fagnandi á móti krökkunum.
Á bændafundinum í Lyngbrekku kynnti Sigurður Óli á Lambastöðum nýj-
ustu afurð Mjólku, súrmjólk í brúsum sem nú er komin í verslanir. Hér er
hann lengst til hægri ásamt Einari K Guðfinnssyni landbúnaðarráðherra
og Snorra Jóhannessyni á Augastöðum.
Vélar og tæki af öllum gerðum; fjórhjól, dráttarvélar, heyvinnuvélar, jarð-
vinnuvélar, gjafagrindur, slökkvibílar og fleira var til sýnis á hlaðinu í
Lyngbrekku.
Hlekkjaherfi með 10 mm ferkönt-
uðum hlekkjum. Henta vel til að
slóðadraga tún og haga - jafna út
húsdýraáburði, rífa mosa, slétta
minni ójöfnur ofl. - Hagstætt verð.
Reykjavík: 568-1500 | Akureyri: 461-1070
Ávinnsluherfi
3
ára
ábyrgð
Sparaðu með TYM 603
tym is s 6973217
CATERPILLAR motor