Bændablaðið - 15.04.2008, Side 29

Bændablaðið - 15.04.2008, Side 29
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200829 Sturtuvagnar og stálgrinda- hús frá WECKMAN Sturtuvagnar H. Hauksson ehf Suðurlandsbraut 48 Sími: 588 1130 Fax: 588 1131 Stálgrindahús. Margar gerðir, hagstætt verð. Einnig þak- og veggstál á góðu verði Frá Búsæld ehf. Búsæld ehf minnir á aðalfund félagsins sem haldinn verður Á hreindýraslóðum, Skjöldólfsstöðum á Jökuldal 19. apríl næst- komandi og hefst kl. 13.30. Einnig er minnt á að hægt er að senda umboð til fundarins. Stjórn Búsældar ehf. Heilbrigðari og mýkri spenar Sólin stóð hátt á himni þennan fallega vetrardag þegar ég heim- sótti ábúendur á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum, þau Hlyn Snæ Theódórsson og Guðlaugu Björk Guðlaugsdóttur. Kýrnar nutu lífsins í fjósinu og er greini- legt að þar er hugsað vel um dýrin. Áberandi er, hversu and- rúmsloftið er rólegt og afslappað í nýlegu fjósinu. Hlynur og Guðlaug tóku við búinu af foreldrum Guðlaugar 1. janúar 1997. Árið 2002 réðust þau í byggingu á nýju lausagöngufjósi og settu upp fullkominn mjaltabás fyrir 12 kýr. Vinnuaðstaða í básn- um er að sögn Hlyns mjög góð, m.a. er hægt að lyfta gólfinu í básnum, allt eftir þörfum hvers og eins. Á búinu eru nú um 40 mjólk- andi kýr og er á stefnuskránni að fjölga þeim á næstu árum. VIRI FOAM prófuðu þau fyrst árið 2003 í kjölfar kynningar, sem haldin var á Voðmúlastöðum. Áður höfðu þau aðeins notað vatn og klúta til að þvo spenana fyrir mjalt- ir. Þeim fannst það ekki nógu gott, því erfitt var að ná óhreinindum af spenunum. „Eftir að við fórum að nota VIRI FOAM hafa mjaltirnar gengið mun hraðar fyrir sig, kýrn- ar eru áberandi rólegri, spenarnir heilbrigðari og húðin mýkri. VIRI FOAM hjálpar til við að halda líf- tölunni í skefjum og eykur þar með líkur á að ná framleiðslu á úrvals- mjólk,“ segja þau, en eins og allir vita er það kjarabót í rekstri kúa- búa á Íslandi í dag. Með þetta kveð ég heimafólkið eftir góðan dag á íslenskum bónda- bæ og í baksýnisspeglinum skartar Eyjafjallajökull sínu fegursta. Óskar S. Harðarson

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.