Bændablaðið - 15.04.2008, Side 31
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200831
Á síðustu árum hefur borið
talsvert á vörtusmiti í sauðfé,
þó sérstaklega í sauðburðinum
og á haustin þegar féð kemur í
hús. Hefur þetta byrjað sem ein
og ein varta í munnvikum og á
spenum á nýbornum ám. Síðan
hefur þetta breiðst út og þakið
báða spena og júgrið og hafa svo
lömbin fengið þetta í munnvik-
in og á snoppuna. Getur þetta
myndað vörtuhellur sem þekja
spenana og harðna og springa.
Þá vill blæða úr þessu og ærnar
reyna að verjast því að lömbin
fái að sjúga. Í slæmum tilfell-
um getur þetta endað með júg-
urbólgu og er þá ekki að sökum
að spyrja.
Svo virðist sem hingað til sé
ekkert lyf sem virkar á þetta og
hafa einhverjir bændur setið uppi
með nokkra tugi af sýktum ám.
Undanfarin tvö vor hefur á
nokkrum bæjum í Þingeyjarsýslu
og við Eyjafjörð verið gerð til-
raun með olíu og smyrsli unnin
úr jurtum frá Urtasmiðjunni á
Svalbarðsströnd. Hefur þetta gefið
mjög góða raun sé brugðist við
um leið og vart verður við vört-
urnar. Þær hafa þá eftir nokkurra
daga meðferð hjaðnað og visnað
og ekki náð að breiðast meira út.
Lömbin hafa svo, þegar þau sjúga,
fengið olíuna og smyrslið uppí sig
og vörturnar á þeim líka horfið.
Mikilvægt er, ef góður árangur
á að nást, að fylgjast vel með og
grípa strax inn í áður en vörturnar
hafa náð að breiðast út sem getur
gerst á nokkrum dögum. Ef það
gerist tekur meðferðin langan tíma
og er mikið þolinmæðisverk. Það
er því algjört lykilatriði að fylgjast
vel með og bregðast strax við.
Meðferðin felst í því að fyrst er
sýkta svæðið hreinsað með sótt-
hreinsivökva sem ekki svíður undan
(t.d.vetnisperoxíði, fæst án lyfseð-
ils), jurtaolían borin vel á og síðan
er smyrslið sett yfir og hlífir þá um
leið fyrir utanaðkomandi áhrifum.
Þetta verður að gera tvisvar á dag
og er nauðsynlegt að nota gúmmí-
hanska til að verja hendurnar við
smiti, því þetta er bráðsmitandi.
Nú líður að sauðburði og vilj-
um við láta þá sauðfjárbændur vita
af þessum möguleika sem e.t.v.
þyrftu á þessu að halda. Olían og
smyrslið er hægt að fá hjá undirrit-
aðri.
F. h. Urtasmiðjunnar
Gígja Kjartansdóttir
Sími: 462 4769
Netfang: gigja@urtasmidjan.is
Varnir við vörtusmiti
Ávinnsluherfi
4 og 6 metra
vinnslubreidd,
takmarkað magn.
Sími 4651332 &
4651333
Minnum á heima-
síðu okkar
www.buvis.is