Bændablaðið - 23.09.2010, Page 22
6 | ÖRÆFANETIÐ
Við undirbúning Öræfanetsins leituðu Öræf-
ingar til stóru fjarskiptafélaganna með ósk
um samstarf. Viðbrögðin voru misjöfn og
sumstaðar voru Öræfingar taldir galnir að
ætla út í þetta viðfangsmikla verkefni. Stjór-
nendur Vodafone tóku Öræfingum hins
vegar fagnandi og hafa unnið náið með Fjar-
skiptafélagi Öræfinga allt frá byrjun. Net-,
síma- og sjónvarpsþjónusta, sem veitt er á
nýja ljósleiðarakerfinu, er því öll í höndum
Vodafone.
„Við tökum ofan fyrir Öræfingum, sem
hafa sýnt með samtakamætti sínum að ýmis-
legt er hægt. Við erum stolt af því að hafa
tekið þátt í þeirri fjarskiptabyltingu sem orðin
er í Öræfasveit og viljum færa íbúum þar
bestu þakkir fyrir frábært samstarf,“ segir
Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone. Ómar
fullyrðir að fjarskiptaþjónustan í Öræfasveit
sé á við það besta sem er í boði annars
staðar og raunar standi sveitin nú framar
stórum hverfum í sjálfri höfuðborginni. „Ljós-
leiðari hefur verið lagður í flest nýju hverfin á
höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum
en mörg eldri hverfi borgararinnar eru ekki
ljósleiðaratengd nema að mjög takmörkuðu
leyti, t.d. Þingholtin og gamli Vesturbærinn.
Öræfingar geta því nýtt sér þjónustu sem er
enn ekki í boði í miðborg Reykjavíkur. Það
hlýtur að teljast nokkur nýlunda þegar tækni-
þróun er annars vegar,“ segir Ómar. „Ljós-
leiðarinn er án nokkurs vafa sú gagnaflutn-
ingsleið sem verður notuð í framtíðinni, enda
er þörfin fyrir aukna gagnaflutningsgetu sí-
fellt að aukast. Það er ekkert að hægja á
þeirri þróun og allt tal um að hefðbundnu
símalínurnar muni duga í einhverja áratugi í
viðbót eru að mínu mati fráleitar. Öræfingar
sýna því ekki aðeins stórhug með sínu verk-
efni, heldur líka framsýni sem ætti að vera til
eftirbreytni fyrir aðra.“
En hvernig kom það til að Vodafone, sem
hefur lagt megináherslu á þjónustu á þétt-
býlustu svæðum landsins, tók höndum
saman með Fjarskiptafélagi Öræfinga? Ómar
segir þá ákvörðun hafa verið einfalda. „Við
höfum á undanförnum árum aukið mjög
þjónustu við landsbyggðina og leiddum t.d.
stækkunina sem varð á GSM þjónustusvæð-
inu í dreifðum byggðum landsins og á há-
lendinu. Fram til ársins 2007 var í raun að-
eins eitt fjarskiptafyrirtæki sem rak GSM
dreifikerfi á landsbyggðinni og algjör
stöðnun hafði ríkt um árabil. Við ákváðum að
hefja uppbyggingu á þessum svæðum og
höfum síðan þá gangsett á þriðja hundrað
nýrra GSM sendistöðva um allt land. Heildar-
fjöldi sendistöðva er hátt í 500 og þótt keppi-
nautar okkar hafi síðar brugðist við sam-
keppninni þá er GSM þjónustusvæði Voda-
fone enn það stærsta hér á landi og við-
skiptavinum okkar á landsbyggðinni hefur
fjölgað.“ Ómar segir að Vodafone bjóði
heildarþjónustu á mörgum stöðum og náð
góðum árangri. „Ég get t.d. nefnt Hellu, en
þar er markaðshlutdeild Vodafone um 70%.
Við höfum því lagt ríka áherslu á þjónustu við
allt landið og hugmyndir Öræfinga féllu al-
gjörlega að okkar framtíðarsýn. Við þekkjum
líka þann mótbyr sem frumkvöðlar, eins og
Fjarskiptafélag Öræfinga, geta lent í og okkur
rann blóðið til skyldunnar. Þetta samstarf
hefur verið frábært og ég óska Öræfingum til
hamingju með þennan mikla áfanga,“ segir
Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, að
lokum.
www.vodafone.is
Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í þeirri fjarskiptabyltingu sem orðin
er í Öræfasveit.
Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, fullyrðir að fjarskiptaþjónustan í Öræfasveit sé á við það
besta sem er í boði annars staðar og raunar standi sveitin nú framar stórum hverfum í sjálfri
höfuðborginni.
Verði ljós
og það
varð
ljósleiðari
Föstudaginn 3. september sl. var ljósleiðara-
net Fjarskiptafélags Öræfinga formlega tekið
í notkun. Athöfnin var í Hofgarði, félagsheim-
ili Öræfinga, að viðstöddum rúmlega 60
gestum.
Dagskráin hófst með því að Knútur Bruun,
formaður stjórnar Fjarskiptafélags Öræfinga
bauð menn velkomna og kynnti dagskrána.
Hann þakkaði öllum sem komið hafa að
þessu máli og flutti kveðjur frá Tryggva Þór
Haraldssyni, forstjóra RARIK og einnig frá
Guðna Ágústssyni, fyrrum formanni Fram-
sóknarflokksins og landbúnaðarráðherra.
Kveðja Guðna endaði á „verði ljós og það
varð ljósleiðari“. Knútur lagði sérstaka
áherslu á að þessar miklu framfarir í fjar-
skiptamálum Öræfinga hefðu aldrei orðið að
veruleika nema fyrir algjöra samstöðu íbúa í
sveitinni og góða aðstoð annarra aðila sem
komu að málinu.
Næstur tók til máls Ingólfur Bruun. Hann
sýndi hraða Internettengingar kerfisins með
því að fara inn á heimasíðu Reiknistofu Há-
skóla Íslands en þar er hægt að athuga
hraða Internetteninga. Njörður Tómasson,
framkvæmdarstjóri Fjarska, gerði grein fyrir
undirbúningi ljósleiðarakerfisins og fram-
kvæmdum við það. Hann taldi að niðurstaða
þessa máls gæti hiklaust verið fordæmi um
ljósleiðaravæðingu annarra dreifbýlissvæða á
landinu. Þessu næst tók til máls Hrannar Pét-
ursson, upplýsingafulltrúi Vodafone. Í máli
hans kom fram að Vodafone myndi afhenda
Öræfingum Internet-, sjónvarps- og talsíma-
samband inn á ljósleiðarakerfi Fjarskipta-
félags Öræfinga. Gæði þessarar þjónustu
sagði hann vera sambærileg við það sem
gerist í þéttbýli ef ekki betri og á sama verði.
Þá kallaði Hrannar Pálínu Þorsteinsdóttur,
skólastjóra grunnskólans í Hofgarði, upp á
svið og afhenti henni að gjöf frá Vodafone,
flatskjá ásamt tölvu, til notkunar í skólastarf-
inu. Að þessu loknu kallaði Knútur á svið
Hálfdán Björnsson, bónda á Kvískerjum, og
fól honum að opna ljósleiðarakerfið form-
lega. Sigrún Sigurgeirsdóttir frá Fagurhóls-
mýri lýsti með dæmum þeim feikna breyt-
ingum sem orðin væru á fjarskiptamálum í
sveitinni. Það sem áður var afgreitt í tölvunni
á löngum tíma tæki nú örskotsstund. Tveir
bæjarfulltrúar Hornafjarðarbæjar, Reynir
Arnarson og Árni Þorvaldsson, kvöddu sér
hljóðs. Í máli þeirra kom fram að nokkrar
efasemdir hefðu verið um þessar fram-
kvæmdir í upphafi en fljótlega hefðu sveita-
stjórnarmenn á svæðinu séð að hér var um
mikið framfaraspor að ræða og undir forystu
bæjarstjórnans, Hjalta Þórs Vignissonar, varð
einróma stuðningur við málið.
Knútur þakkaði fyrir ávörp og hlýjar óskir í
garð Öræfinga og jafnramt fyrir ljúffengar
veitingar sem fram voru bornar.
Hálfdán Björnsson, bóndi á Kvískerjum, opnar ljósleiðarakerfi Öræfinga. Á myndinni með honum eru Ingólfur Bruun með son sinn Börk á bakinu og
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone.
Meðal veitinga sem konur í sveitinni reiddu
fram á opnunarhátíðinni í Hofgarði var þessi
rausnarlega terta með merki Vodafone.
Vodafone annast alla þjónustu á ljósleiðarakerfi Öræfinga:
Önnur fjarskiptafélög sýndu engan áhuga