Bændablaðið - 23.09.2010, Blaðsíða 23
ÖRÆFANETIÐ | 7
Fyrir hönd RARIK sendi ég Öræfingum og
fulltrúum Fjarskiptafélags Öræfinga innilegar
hamingjuóskir með þann áfanga sem nú
hefur náðst í Öræfum og Suðursveit, með
tengingu ljósleiðara um sveitina og uppbygg-
ingu öflugs fjarskiptakerfis fyrir íbúa hennar
og fyrirtæki. Að þetta skuli nú vera orðið að
veruleika sýnir ágætlega hvað hægt er að
gera með áræðni, eftirfylgni og vönduðum
undirbúningi.
Það hefur verið ánægjuleg reynsla að taka
þátt í undirbúningi þessa verkefnis og að
fylgjast með þeirri þrotlausu vinnu sem full-
trúar Fjarskiptafélags Öræfinga lögðu á sig til
að af þessu gæti orðið. Fyrir utan að afla
verkefninu stuðnings heimafyrir, og að
tryggja fjármögnun þess, hefur augljóslega
farið mikil vinna í að afla tilskilinna leyfa,
tryggja að samkeppnislög séu haldin og ekki
síst að sannfæra okkur sem að þessu komum
um að taka þátt í verkefninu.
RARIK hefur enga reynslu af rekstri ljós-
leiðarakerfis, þótt fyrirtækið hafi um all-
margra ára skeið rekið eigið fjarskiptakerfi og
eigi nú ljósleiðarastrengi , m.a. í Öræfum.
Á árinu 2006 þurfti RARIK að leggja há-
spennustreng frá Reynivöllum í Suðursveit
að Skaftafelli í Öræfum, alls um 80 km leið.
Ástæða þess var að dreifikerfi RARIK annaði
ekki vaxandi álagi í Öræfum. Bent var á að á
næstu árum yrði þörf á lagningu nýs ljósleið-
arastrengs á þessari leið, m.a. vegna fjar-
skipta fyrir raforkukerfið, og var því ákveðið
að leggja ljósleiðara samhliða jarðstrengnum.
Engin ákvörðun lá fyrir um hvernig þessum
ljósleiðarastreng yrði ráðstafað, hvort hann
yrði leigður út að hluta eða öllu leyti, eða
jafnvel seldur í heilu lagi. Sú ákvörðun liggur
reyndar ekki fyllilega fyrir enn, nema hvað
varðar eitt par í strengnum sem nú hefur
verið ráðstafað.
Efasemdir
RARIK þurfti að fara í allnokkra skoðun á því
innanhúss, í samvinnu við lögmann fyrir-
tækisins, hvort æskilegt væri að fyrirtækið
tæki þátt í svona verkefni, hver hugsanlegur
hagur væri af því og hvort fyrirtækið hefði
yfirleitt hug á að verða þátttakandi í hörðum
samkeppnisheimi á fjarskiptasviði. Eftir að
hafa skoðað þetta nokkuð og komist að
þeirri niðurstöðu að arðsemi fyrirtækisins af
þátttöku væri væntanlega takmörkuð, þekk-
ing og reynsla af rekstri ljósleiðarakerfa lítil
innan fyrirtækisins og vandrataður hinn
grýtti stígur samkeppnismála innan fjar-
skiptageirans, var ekki sérlega auðvelt að
sannfæra okkur um að taka þátt í verkefninu
framan af. Eftir marga fundi og símtöl við
feðgana, Knút og Ingólf Bruun, varð það þó
niðurstaðan að reyna að finna lausn til að
fjárfesting RARIK í ljósleiðarastreng á svæð-
inu gæti með einhverjum hætti nýst íbúum í
Öræfum, án þess að trufla samkeppni eða
önnur áform um hugsanlega nýtingu
strengsins.
RARIK á um 4.000 km af loftlínum sem
endurnýjaðar verða með jarðstrengjum á
næstu 20-25 árum. Fyrir RARIK er mjög
óhagkvæmt að leggja ljósleiðara með þeim
öllum, þótt það kunni að vera hagkvæmt á
ákveðnum stofnleiðum. RARIK er hins vegar
ljóst að ef ljósleiðari er framtíðarlausn í fjar-
skiptamálum þá er ódýrasta leiðin í dreifbýli
sú að það sé gert samhliða lagningu há-
spennujarðstrengja. Í ljósi þess og hins að
RARIK átti þegar ónotaðan streng sem nýst
gat viðskiptavinum fyrirtækisins í Öræfum
var ákveðið að stofna dótturfélag með fjar-
skiptaleyfi og að taka þátt í þessu tilrauna-
verkefni. Hlutur RARIK snýr eingöngu að því
að heimila afnot af ljósleiðaranum gegn
leigugjaldi, en fyrirtækið mun væntanlega
nýta sér ljósleiðaratengingu heim á hvern bæ
í Öræfum til fjarálestra í framtíðinni og til
hugsanlegra tilraunaverkefna með nýja tíma-
háða taxta til sveita.
Ég sendi öllum notendum ljósleiðaranets-
ins hamingjuóskir frá RARIK með von um að
þetta framfaraskref í fjarskiptamálum Öræf-
inga verði ykkur heilladrjúgt.
Kærar kveðjur
Tryggvi Þ. Haraldsson
forstjóri RARIK
www.rarik.is
Tryggvi Þ. Haraldsson, forstjóri RARIK, segir
það hafa verið ánægulega reynslu að taka
þátt undirbúningi Öræfaverkefnisins.
Áræðni, eftirfylgni og vandaður
undirbúningur – kveðja frá RARIK
Svínafell
Svínafell er bær í Öræfum, gamalt stór-
býli og höfðingjasetur. Svínfellingar, ein
helsta höfðingjaætt Sturlungaaldar, voru
kenndir við bæinn. Svínafell var í land-
námi Þorgerðar, ekkju Ásbjörns
Heyangur-Bjarnarsonar, sem dó í hafi á
leið til Íslands, og sona þeirra. Einn
þeirra hét Össur, sonur hans var Þórður
freysgoði og hans sonur Flosi Þórðarson
(Brennu-Flosi), sem bjó á Svínafelli um
árið 1000. Afkomandi bróður Flosa, Sig-
mundur Þorgilsson, goðorðsmaður á
Svínafelli, sem dó í Rómarför 1118, var
talinn með helstu höfðingjum landsins
og voru Svínfellingar afkomendur hans.
Síðastur þeirra var Ormur Ormsson á
Svínafelli, sem fékk ásamt Hrafni Odds-
syni forráð yfir öllu Íslandi 1270 en náði
ekki að njóta þeirra því að hann drukkn-
aði við Noregsstrendur sama ár. Árni
Þorláksson biskup fæddist í Svínafelli
1237. Kirkja var á bænum til forna.
Upplifðu undrin í Ríki Vatnajökuls á Suðausturlandi allt árið um kring
Vatnajökull - Stærsti jökull og þjóðgarður Evrópu býður þér heim
Fjölbreyttir gistimöguleikar og girnilegur matur úr héraði
Frábærir afþreyingarmöguleikar í magnaðri náttúru
SVEITARFÉLAGIÐ HORNAFJÖRÐUR