Bændablaðið - 23.09.2010, Qupperneq 24
8 | ÖRÆFANETIÐ
Plaströrin sem notuð voru við lagningu á
ljósleiðarakerfi Fjarskiptafélags Öræfinga eru
íslensk. Það var plaströraverksmiðjan Set ehf.
á Selfossi sem framleiddi rörin en fyrirtækið
hefur framleitt plasthlífðarrör fyrir fjarskipta-
lagnir síðan ljósleiðaravæðingin hófst hér á
landi. Set hefur aðlagað vinnslu sína og
þróað ljósleiðararörin í takt við áherslur
markaðarins í aldarfjórðung.
„Við vorum beðin um að framleiða fyrstu
rörin fyrir Póst og síma sumarið 1985 en
lengi vel var Síminn eini kaupandi ljósleiðara-
röra. Þá voru hlífðarrörin eingöngu úr PVC
efnum, gul að lit og sett saman á múffum en
seinna bættust við rör úr Polyethelyne PEL
efnum í lengri einingum í rúllum,“ segir Berg-
steinn Einarsson, framkvæmdastjóri Sets.
Hann segir að síðar hafi fleiri fjarskiptafyrir-
tæki tekið virkan þátt í ljósleiðaravæðingunni
og meðal þeirra sé Fjarski, dótturfyrirtæki
Landsvirkjunar, sem sá um framkvæmdirnar
í Öræfasveit.
Set framleiðir rörin í löngum einingum á
rúllum og geta þau verið allt að tveir kíló-
metrar að lengd og er ljósleiðaranum síðan
skotið í gegnum rörin með lofti. Í plaströra-
deild Set fer fram þróun á hlífðarrörum og
þar hefur á liðnum mánuðum verið unnið að
tilraunum með vinnslu á grönnum inntaks-
rörum sem eru riffluð að innan til að minnka
yfirborðssnertingu ljósleiðarans við rörið.
Það á að létta ídrátt og þræðingu strengsins í
rörið í inntakslögnum húsa.
Hjá Seti starfa um 50 manns í verksmiðju
félagsins á Selfossi, að Reykjalundi og í
Þýskalandi en þar hefur Set ehf. komið upp
vinnslulínu fyrir foreinangruð fjarvarmarör.
Bergsteinn segir að erfitt verði að varðveita
innlenda framleiðslu á plaströrum ef ekki sé
jafnframt sótt aukin hlutdeild á erlenda
markaði. Sem betur fer hafi útflutningur
verið að vaxa og vonast hann til að sá sproti,
sem felist í verksmiðjunni í Þýskalandi, kom-
ist vel af stað á næstu mánuðum. „Það var
ánægjulegt að vinna fyrir Öræfingana með
Knút Bruun í forystu og það er alltaf gaman
að sjá öflugt frumkvæði og kraft, ekki síst nú
þegar mikil óvissa og stöðnun ríkir á öllum
helstu mörkuðum okkar innanlands; á bygg-
ingarsviði, orku- og veitusviði og fjarskipta-
sviði. Til hamingju Öræfingar með þessa
framkvæmd,“ segir Bergsteinn Einarsson,
framkvæmdastjóri Sets.
www.set.is
Róbert Karel Guðnason, vinnslustjóri í plaströradeild Sets ehf. á Selfossi, við hlífðarrör fyrir ljósleiðaralagnir en nú er unnið að tilraunum með rör sem
eru riffluð að innan en það léttir ídrátt og þræðingu.
Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri Sets:
Ánægjulegt að vinna fyrir Öræfinga
Landnám í
Sandfelli
Ein helsta uppgönguleið þeirra sem
ganga á Hvannadalshnjúk er við Sandfell
skammt austan við Svínafell í Öræfum.
Sandfell er landnámsjörð og þar má sjá
minnisvarða um Þorgerði, ekkju Ás-
bjarnar Heyangurs-Bjarnasonar en hún
nam land um allt Ingólfshöfðahverfi milli
Kvíár og Skeiðarár. Sennilega hefur bær-
inn í Sandfelli alltaf staðið á þeim stað
sem Þorgerður valdi sér við upphaf
byggðarinnar, en bærinn var endur-
reistur nokkrum sinnum, en rifinn að
lokum 1974. Löngum var hálfkirkja í
Sandfelli og höfuðkirkja á Rauðalæk en
þegar fór að byggjast upp að nýju á
þessum slóðum eftir gosið 1362 tók
kirkjan í Sandfelli við hlutverki Rauða-
lækjakirkju. Síðasti presturinn sem bjó í
Sandfelli var séra Eiríkur Helgason, en
hann flutti að Bjarnarnesi 1931. Síðustu
ábúendur í Sandfelli voru Runólfur Jóns-
son og Katrín Jónsdóttir, en þau fluttu til
Reykjavíkur 1945.
Þótt gistiheimilið Frost og Funi beri með sér,
þegar rennt er í hlað, að það er til húsa í
gömlum útihúsum að Hofi í Öræfasveit er
fátt sem minnir á það þegar inn er komið að
hér var áður fjárhús og hlaða. Flísalög gólf,
smekklegar innréttingar með leðurhús-
gögnum og listaverk nokkurra helstu önd-
vegismálara þjóðarinnar á veggjum eru til
vitnis um að hér snýst starfið ekki lengur um
að fóðra sauðfé, heldur að þjóna ferða-
mönnum sem eiga skilið það besta.
Guðný Magnúsdóttir myndlistarkona og
kennari, hefur starfað við gistiheimilið í Hofi í
sumar en það er í eigu Knúts Bruun og Önnu
Sigríðar Jóhannsdóttur, líkt og samnefnt
gistiheimili í Hveragerði. Þau hafa rekið gisti-
heimilið í níu ár og hefur síðan þá verið opið
yfir sumarmánuðina ár hvert, frá miðjum maí
og fram í byrjun september.
„Það er búið að vera nánast fullbókað hjá
okkur frá því í lok júní og út ágúst. Það er
talsvert um að hópar bóki gistingu hér og í
flestum tilvikum eru það útlendingar. Ég er
samt ekki frá því að Íslendingum fari heldur
fjölgandi,“ segir Guðný Magnúsdóttir. Hún
segir að mikil áhersla sé lögð á að skapa
heimilislegt umhverfi og persónulegt and-
rúmsloft og þótt gistiheimilið rúmi marga á
íslenskan mælikvarða sé gistingin dreifð um
svæðið á Hofi og því verði þetta aldrei of
stórt eða stofnanalegt. „Hér hefur alltaf verið
lögð mikil áhersla á gæði, hvort sem um er
að ræða hráefnið sem unnið er úr í eldhúsinu
eða það sjónræna umhverfi sem gestirnir
okkar dvelja í hverju sinni. Þetta kann fólk að
meta og því virðist líða vel í því sveitalega
andrúmslofti sem hér ríkir,“ segir Guðný.
Alls eru 37 herbergi í Frosti og Funa og ef
öll rúm eru nýtt geta 93 ferðamenn fengið
gistingu þar samtímis. Þegar komið er inn í
gistiheimilið blasir við gestamóttaka með
stórri setustofu og rúmgóðum matsal og er
allt sameiginlegt rými og gistiherbergi ríku-
lega skreytt listaverkum. Á neðri hæð, þar
sem áður var haughús hefur nú verið inn-
réttuð heilsulind (spa) með stórum heitum
potti, gufubaði og hvíldaraðstöðu. Er þetta
að líkindum mesta breyting sem gerð hefur
verið á einu haughúsi hér á landi og þótt
víðar væri leitað!
Auk 8 herbergja sem innréttuð hafa verið
í gömlu hlöðunni eru 16 herbergi í nýrri við-
byggingu. Þá hafa verið reist fjögur smáhýsi,
hvert með tveimur herbergjum auk þess sem
5 herbergi til viðbótar hafa verið innréttuð í
gömlu skólahúsi sem í daglegu tali er kallað
þinghúsið.
www.frostogfuni.is
Leggjum áherslu á heimilislegt umhverfi segir Guðný.
Frost og Funi á Hofi:
Gisting í heimilislegu og
listrænu sveitaumhverfi
Það er fátt sem minnir á gamla fjárhúsið í gestamóttökunni og setustofunni í gistihúsi Frosts og
Funa í Öræfasveit.