Bændablaðið - 23.09.2010, Síða 27
ÖRÆFANETIÐ | 11
Greina mátti ákveðna spennu og eftirvænt-
ingu á andlitum nemendanna 12 sem mættu
ásamt foreldrum sínum til að vera viðstaddir
þegar Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri setti
grunnskólann í Hofgarði formlega þann 25.
ágúst síðastliðinn. Í fyrrahaust var í fyrsta
skipti uppi sú staða að öll börn sveitarinnar
voru komin upp úr leikskóla og í skólann en
þeir 12 nemendur sem verða í skólanum í
vetur eru í öðrum til sjöunda bekk. Engin
börn hafa fæðst í sveitinni undanfarin ár og
fjölskyldur með ung börn hafa ekki bæst við.
Ef ekki verður breyting á þessari þróun
stefnir í að skólahald í Öræfum, sem staðið
hefur samfellt í liðlega 120 ár, leggist af á
næstu sex árum. „Það þarf engan speking til
að sjá að það verður breyting á þessari
byggð ef ekki bætist við barnafólk,“ segir
skólastjórinn.
Einstaklingsmiðað nám
Skólahald hefur verið á Hofi frá árinu 1948
og var núverandi skólahús, Hofgarður, tekið í
notkun árið 1985 og er það jafnframt félags-
heimili Öræfinga. Pálína hóf störf sem kenn-
ari þar árið 1981 og hefur verið skólastjóri
frá árinu 1988. „Þegar ég byrjaði að kenna
voru sex nemendur hér við skólann og hefur
skólinn aldrei verið jafn fámennur og þann
vetur. Fyrir miðja síðustu öld voru stundum
fjölmennari nemendahópar og jafnvel yfir 20
skólabörn alls í sveitinni á meðan farskóla-
fyrirkomulagið var. Það eru hins vegar mikil
tímamót um þessar mundir að engin börn
skuli vera undir skólaaldri í sveitinni,“ segir
Pálína.
Sex mann koma að skólastarfinu á Hofi,
þar með talin eru hlutastörf í mötuneyti,
bókasafni og umhirðu hússins og þar fyrir
utan er skólabílstjóri. Vegna þess hve nem-
endur eru fáir segir Pálína að kennslan sé
mjög einstaklingsmiðuð og nemendum af
ólíkum aldri sé kennt saman í stofu eins og
alltaf hafi tíðkast í fámennum sveitaskólum.
„Það er hins vegar skemmtilegt að vita til
þess að nú er einstaklingsmiðað nám komið í
tísku í stærri skólum og þykir líka ákjósanlegt
að láta ólíka aldurshópa stundum hjálpast að
og vinna saman. Þó að námið í litlu sveita-
skólunum hafi ekki að öllu leyti verið skil-
greint á sama hátt og einstaklingsmiðað nám
nú til dags er ekkert val um það í litlum skóla
að hafa þetta öðruvísi en samkennslu ár-
ganga og það kemur að sjálfu sér í fámenn-
inu að hver vinni á sínum hraða.“
Lélegt netsamband ekki lengur til trafala
Pálína segist binda talsverðar vonir við ljós-
leiðaranetið sem nýbúið er að leggja í Öræfa-
sveit. „Unga fólkið segir það forsendu fyrir
búsetu að það sé almennilegt tölvusamband.
Nú er lélegt netsamband ekki lengur til traf-
ala hér í Öræfunum þótt það sé ekki þar með
sagt að unga fólkið muni strax flykkjast
hingað, því auðvitað spila fleiri þættir inn í.
En það sakar ekki að vera bjartsýnn.“ Hún
segir að tengingin við ljósleiðaranetið feli í
sér mikla bót fyrir skólastarfið. Meðal annars
muni öll samskipti við Námsgagnastofnun
verða auðveldari og skólinn geti nú nýtt sér
betur þá þjónustu sem stofnunin bjóði. Pá-
lína segir að nú opnist möguleiki til þess að
tengjast fyrirlestrum eða viðburðum sem
sendir eru út um Netið og hafa gildi fyrir
kennsluna hjá þeim. Þá sé möguleiki fyrir þá
sem hafa menntun á tölvusviði að vinna
heima hjá sér þar sem netsamband sé gott
og hægt að senda gögn hvert sem er.
„Ég held að fólk hér skynji það almennt að
með því að tengja sveitina við ljósleiðara-
netið sé verið að rjúfa ákveðna einangrun
nánast eins og þegar árnar voru brúaðar á
sínum tíma,“ segir Pálína Þorsteinsdóttir.
Ég held að fólk hér skynji það
almennt að með því að tengja
sveitina við ljósleiðaranetið sé
verið að rjúfa ákveðna ein-
angrun.
Nemendurnir 12 sem munu stunda nám í grunnskólanumí Hofgarði voru allir mættir ásamt for-
eldrum við setningu skólans í ágúst.
Pálína Þorsteinsdóttir, skólastjóri grunnskólans í Hofgarði, segir gott að búa í Öræfasveit og að
starfið í litla sveitaskólanum hafi verið lifandi og skemmtilegt.
Skólastarf í Öræfum:
Ljósleiðaranetið
skapar mikla möguleika
Nexans og Smith & Norland óska Öræfingum
til hamingju með nýja ljósleiðarakerfið.
Ljósleiðarastrengirnir og
endabúnaðurinn eru frá Nexans.