Bændablaðið - 23.09.2010, Side 29
ÖRÆFANETIÐ | 13
Hofskirkja
Á Höfi í Öræfum var kirkja helguð heil-
ögum Klemensi í katólskum sið og út-
kirkja frá Sandfelli allt til ársins 1970,
þegar Hof var lagt til Kálfafellsstaðar í
Suðursveit. Torfkirkjan, sem varðveitt er
að Hofi, er að stofni frá 1884. Veggir
hennar eru hlaðnir úr grjóti og á henni
er helluþak, þakið torfi. Þjóðminjasafnið
fékk hana til varðveislu með því skilyrði,
að hún yrði endurbyggð (1953-54) og
hún yrði áfram sóknarkirkja. Hún var
endurvígð 1954.
Um þessar mundir fagna íbúar í Öræfum því
að með lagningu ljósleiðaranets um sveitina
hefur tekist að bæta búsetuskilyrði þar svo
um munar. Þessi árangur hefur fyrst og
fremst náðst vegna framsýni og órofa sam-
stöðu heimamanna. Ljósleiðaranetið, sem
tekið hefur verið í notkun í Öræfasveit og
hluta Suðursveitar, er afkastamikil og örugg
lausn á fjarskiptamálum svæðisins, sem mun
duga Öræfingum um fyrirsjáanlega framtíð,
enda sambærilegt við það besta sem þekkist
í heimilistengingum á höfuðborgarsvæðinu.
Nú þegar ljósleiðaranetið er komið í fullan
rekstur viljum við hjá Fjarska þakka fyrir
ánægjulegt samstarf við undirbúning og
lagningu fjarskiptanetsins síðustu misserin.
Að okkar mati er það kraftaverk að tekist hafi
að leiða þetta verkefni til lykta með jafn
glæsilegum hætti og raun ber vitni, þrátt
fyrir þær erfiðu aðstæður sem við blöstu í
upphafi. Heimamenn hafa tekið virkan þátt í
öllum undirbúningi og sáu sjálfir um jarð-
vinnu við lagningu netsins auk þess að
greiða um 500 þúsund króna stofnkostnað
fyrir hvert heimili í sveitinni. Það kom í hlut
Fjarska að annast hönnun og eftirlit með
framkvæmdinni og höfum við skynjað vel
þann mikla samhug og þá samheldni sem
verið hefur um þetta verkefni í sveitinni og
þann góða stuðning sem stjórn sveitarfélags-
ins hefur veitt.
Það er síður en svo sjálfgefið að jafn fá-
mennri sveit, sem er landfræðilega jafn ein-
angruð og Öræfin, skuli takast að koma upp
einu öflugasta ljósleiðaraneti landsins og að
tengja við það öll heimili og fyrirtæki í sveit-
inni. Með stofnun Fjarskiptafélags Öræfinga
og þeirri þrotlausu vinnu sem farið hefur
fram á þess vegum hefur þetta hins vegar
tekist og fordæmi sett fyrir önnur sveitafélög
sem búa við lélega netþjónustu. Með sam-
stöðu íbúa, stuðningi sveitarstjórnar og sam-
starfi við fagaðila hefur Öræfingum tekist að
ryðja úr vegi fjölmörgum hindrunum og að
koma verkefninu í heila höfn. Reynslan úr
Öræfum er dýrmæt og mun vafalaust nýtast
öðrum sveitarfélögum í svipaðri stöðu.
Um leið og ég þakka heimamönnum sam-
starfið vil ég þakka stjórn sveitarfélagsins
fyrir að hafa sýnt þá framsýni að taka málinu
með opnum huga og að hafa dugnað og þor
til að verða að liði. Ég þakka Bruunfeðgum
fyrir að ýta á eftir málum og RARIK fyrir að
sýna málinu skilning og að klára það með
okkur. Loks ber að þakka Vodafone fyrir að
koma af fullum krafti að málinu og að leysa
stofnlínuvandamál og sjónvarpsþjónustu.
Njörður Tómasson
framkvæmdastjóri Fjarska
www.fjarski.is
„Sumarið hefur verið mjög gott og við erum
að fá helmingi fleiri í ferðirnar okkar í ár en í
fyrra,“ segir Daníel Guðmundsson hjá Jökla-
mönnum (Glacier Guides) þar sem hann
stendur við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli
og svarar spurningum ferðamanna. Þetta er
annað sumarið sem Jöklamenn eru með
starfsemi í Skaftafelli. Daníel segir að aukn-
inguna megi að einhverju leyti rekja til þess
að í fyrra voru þeir í byrjun sumars uppteknir
við að koma sér upp aðstöðu á staðnum en
einnig hefur verið settur aukinn kraftur í
markaðssetninguna. Jöklamenn eru að hluta
til í eigu Artic Adventures og Artic Crafting
sem hafa um árabil verið með flúðasiglingar
á Hvítá.
Augljóst er að samkeppnin í jöklaferðirnar
hefur harðnað því hús Jöklamanna og Ís-
lenskra fjallaleiðsögumanna standa hlið við
hlið á hlaði þjónustumiðstöðvarinnar í Skafta-
felli. Daníel telur að sá fjöldi ferðamanna sem
sæki staðinn beri vel tvo ferðaþjónustuaðila í
sömu grein og að tveir aðilar muni halda
uppi öflugra markaðsstarfi og draga fleiri í
ferðirnar sem í boði eru.
Húsið sem Jöklamenn hafa reist sér vekur
athygli, bæði form þess og efnisgerð. Að
sögn Daníels er húsið byggt samkvæmt ís-
lenskri teikningu og er burðaravirkið gamlir
símastaurar úr sveitinni en allt timbur í gólfi
og þaki er úr gömlu Skeiðarárbrúnni. Loks
eru veggir fylltir með hálmi frá Þorvaldseyri
og makaðir með sérstökum trefjamúr. En
það er ekki bara aðstaðan, sem Jöklamenn
hafa komið sér upp, sem vekur athygli það
gerir einnig stór gulur amerískur strætisvagn
sem stendur í hlaðinu og er annar tveggja
slíkra vagna sem notaðir eru til að flytja
ferðafólkið áleiðis í göngurnar.
Að sögn Daníels er mest aðsókn í tvær
ferðir á Falljökul, aðra langa og hins styttri.
Stutta ferðin tekur tvær og hálfa klukkustund
en í lengri ferðinni eru ferðamennirnir fjóra
tíma á jökli og enda síðan á því að koma við í
Jökulsárlóni. Þegar aðstæður og veður leyfa
er einnig boðið upp á ferðir á Hvannadals-
hnjúk og á Hrútfjallstinda. Veðrið í sumar
hefur verið mjög hagstætt og segir Daníel að
það hafi aðeins komið tveir dagar í sumar
sem ekki hafi verið hægt að fara á jökul.
Hann segir Jöklamenn ekki hafa þurft að vísa
fólki frá enda séu þeir með marga leiðsögu-
menn og stóra bíla og geti tekið allt að 200
manns í ferðir á dag. „Næsta sumar leggst
rosalega vel í mig. Ég held að þá verði algjör
sprenging í ferðaþjónustunni. Það hefur
verið mikil landkynning í sumar, sem meðal
annars má rekja til eldgossins í Eyjafjallajökli.
Það tel ég að muni skila sér næsta sumar,“
segir Daníel Guðmundsson að lokum.
www.hvannadalshnukur.is
Daníel Guðmundsson spáir því að algjör sprenging verði í ferðaþjónustunni á næsta ári. Hér
stendur hann við ameríska strætisvagninn sem Jöklamenn nota í ferðir sínar.
Aukin samkeppni í ferðaþjónustunni:
Jöklamenn hasla sér völl í Skaftafelli
Kraftaverk – kveðja frá Fjarska
Njörður Tómasson, framkvæmdastjóri Fjarska, ávarpar gesti á opnun-
arhátíðinni í Hofgarði.
Benedikt Haraldsson, verkefnisstjóri ljósleiðaralagna hjá Fjarska, spjallar
um nettenginguna við bræðurna í Kvískerjum, Hálfdán og Helga Björns-
syni.
Opið í vetur
samkvæmt bókunum
eða samkomulagi.
Vetrardvöl á Hala er
skemmtileg upplifun.
Kjörið fyrir starfs-
mannahópa, ráð-
stefnur og fundi.
Gisting á staðnum
sjá www.hali.is
Þ Ó R B E R G S S E T U R