Bændablaðið - 13.10.2011, Síða 1

Bændablaðið - 13.10.2011, Síða 1
34 18. tölublað 2011 Fimmtudagur 13. október Blað nr. 357 17. árg. Upplag 64.000 4 14 Árlega valda álftir og gæsir gríðar- legu tjóni á ræktarlöndum bænda. Tjónið er mjög greinanlegt þegar þessir fuglar leggjast á kornakra en er ekki síður tilfinnanlegt að vori þegar fuglarnir bíta nýgræðing í túnum. Erfiðlega hefur þó gengið að afla gagna um hversu mikið tjónið er. Bændasamtökin hafa nú útbúið eyðublað sem hægt er að nálgast á heimasíðu samtakanna, bondi.is, þar sem bændur geta sett inn upplýsingar um túnstærð og mat sitt á tjóni sem þeir verða fyrir. Upplýsingarnar verða notaðar til að leggja mat á umfang tjóns sem bændur verða fyrir vegna ágangs álfta og gæsa. Niðurstöðurnar verða teknar saman og sendar til umhverfisráðuneytisins sem hefur með málaflokkinn að gera. Tjón af völdum andfugla er ekki nýtt af nálinni og hefur verið bændum hugleikið um langt skeið. Ítrekað hefur verið fjallað um málið á Búnaðarþingi, síðast árin 2009 og 2010 en frá Búnaðarþingi 2010 hefur staðið yfir vinna innan sam- takanna við mat á tjóni og mögu- legar aðgerðir. Borgar Páll Bragason jarðræktarráðunautur hefur sinnt því starfi og hefur meðal annars verið í samstarfi við Umhverfisstofnun vegna þess. Álftin friðuð vegna fegurðar Álft er alfriðuð samkvæmt lögum frá 1913 og eru rökin fyrir því þau að álftin þykir fagur og tignarlegur fugl. Óheimilt er að skjóta gæs utan veiðitíma og því geta bændur ekki beitt þeim meðulum til að vernda land sitt frá vori til hausts. Í reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunn- inda af villtum fuglum frá 1994 kemur þó fram að „þar sem talið er að villtir fuglar valdi tjóni einhvern tiltekinn tíma árs eða á svæðum þar sem viðkomandi tegundir eru frið- aðar samkvæmt lögum nr. 64/1994 getur umhverfisráðherra, að fenginni umsögn ráðgjafarnefndar um villt dýr, veitt tímabundið leyfi til veiða í því skyni að koma í veg fyrir tjón.“ Hins vegar hefur bændum gengið afar illa að fá leyfi af þessu tagi til að verja ræktarlönd sín. Er það nánast óþekkt. Vill fá að verja lönd sín Ketill Ágústsson bóndi á Brúnastöðum í Flóa segir að hann verði fyrir stórtjóni á hverju einasta ári vegna ágangs álftar en einkum þó gæsa. „Hér er ekki hægt að rækta grænfóður eða neitt fyrir þessum vargi. Þetta leggst á tún og rakar þau algjörlega. Þetta hefur verið svona um langa hríð og hefur stórversnað síðustu árin því gæsin hefur komið sér upp varplandi hérna hinu megin við Hvítána. Hún er í hundraðatali hérna.“ Ketill segist ekki hafa reynt að reikna út hversu mikið tjónið sé í krónum og aurum talið. Það sé hins vegar ljóst að það sé mikið. Hann hafi í gegnum tíðina reynt ýmislegt til að fæla fuglinn frá. „Ég er með gasbyssu en mér finnst hún gagnast lítið. Ég vil bara að það fáist leyfi til að bregðast við þar sem þessir fuglar valda skaða, það fáist leyfi til að skjóta fugl sem leggst á ræktarlönd og eyðileggur þau.“ „Mér er brugðið“ Georg Kjartansson bóndi á Ólafsvöllum á Skeiðum segist verða fyrir umtalsverðu tjóni af völdum álfta og gæsa. „Þetta eru ríflega þrír hektarar af korni sem hefur orðið altjón á hjá mér í ár. Það er nú minna en verið hefur undanfarin ár en nóg samt. Ég er með 45 hektara undir korni og það hverfur bara hektari eftir hektara út af áganginum í þessum fuglum. Svo eru álftirnar að berstrípa túnin sem eru á milli akranna. Ég verð til að mynda að taka kvígur inn fyrr á haustin vegna þessa, það er engin beit eftir handa þeim.“ Georg nýtti sér eyðublaðið sem nefnt var hér í upphafi til að leggja mat á það tjón sem hann hefur orðið fyrir í ár. Að mati Georgs hafa álftir og gæsir valdið tjóni á 20 hekturum túns og telur hann uppskerutapið sé að meðaltali 10 prósent. Tjónið útleggst því vera 266.000 krónur í töpuðum fóðureiningum. Hvað tjón á korni varðar hefur Georg orðið fyrir altjóni á 3,5 hekturum og útleggst það tjón vera 551.250 krónur. Því er tjón Georgs af ágangi álfta og gæsa í ár 817.250 krónur. Georg segir að sér hafi komið á óvart hversu há upp- hæðin er. „Ég vissi að þetta væri tjón en þetta er í fyrsta skipti sem maður hefur eitthvað handbært í höndunum til að leggja mat á hvaða fjárhæðir er um að ræða. Ég játa að mér er nokkuð brugðið.“/ fr Álftir og gæsir valda búsifjum - Ríflega 800 þúsund króna tjón hjá einum bónda á Skeiðum „Í stuttu máli þurfum við að umbylta landbúnaði í heiminum þannig að við framleiðum miklu meira með minni tilkostnaði. Við þurfum að breyta mataræði jarðarbúa svo það sé heilbrigðara og sjálfbærara og við verðum að gjörbylta borgum og þéttbýli svo að við hættum að sóa vatni og nær- ingarefnum.“ Þetta segir Ástralinn Julian Cribb í samtali við Bændablaðið. Hann er heimsþekktur rithöfundur, blaðamaður og fyrirlesari um stöðu og horfur á heimsvísu á sviði land- búnaðar, orkumála og umhverfis- og auðlindaverndar. Umbylting landbúnaðar er í sjálfu sér ekki flókið verkefni í vísindalegu tilliti, segir Cribb. „Það mun þurfa stórauknar rann- sóknir og þróun, auk alheimsátaks við að deila þekkingu meðal bænda. Hinn nýi, vistvæni landbúnaður felst í að framleiða meiri mat, nota minna land, minni orku, minna vatn, minni áburð og minna af óæskilegum, til- búnum efnum. Hinn nýi, vistvæni landbúnaður verður byggður upp á vistfræðilegri þekkingu. ." /f -Sjá nánar í blaðaauka á bls. 19 Heimsbyggðin stendur frammi fyrir mikilli áskorun: Þurfum að umbylta borgum, þéttbýli og landbúnaði - Segir Julian Cribb sem heldur fyrirlestur á mánudag Síðasta Bændablað kom út í auknu upplagi eða 59 þúsund eintökum en að jafnaði kemur blaðið út í 24 þúsund eintökum. Nú gerum við enn betur og kemur blaðið að þessu sinni út í 64 þúsund eintökum. Auk hefðbundinnar dreifingar í sveitir og byggðir landsins, þá er blaðinu nú einnig dreift með helgarútgáfu Morgunblaðsins. Bændablaðið kemur að þessu sinni út í 64 þúsund eintökum! Sauðfjárslátrun er nú í fullum gangi hjá Norðlenska á Húsavík en þar er áætlað að slátra um um 78.000 fjár að þessu sinni. Það er því nóg að gera hjá þeim hjónum Hauki Jóhannssyni og Hlíf Aradóttur, sem sjá um að svíða lambshausa hjá Norðlenska á Akureyri. Haukur hefur s ð um þetta verkefni í y r 30 ár og Hlíf hefur starfað með manni sínum lengst af. Hausarnir koma frá Húsavík. örnin stendur y r í margar vikur og er vinnudagurinn oftast æði langur. Mynd / MÞÞ Svíða hausa í gríð og erg Julian Cribb Íslenskt rúgmjöl í Birtingaholti Myndlistin lifnar í eldhúsinu Bærinn okkar Stóra-Ásgeirsá Óánægju gætir meðal dýralækna – Ágallar á þjónustusamningum í dreifðum byggðum Þessa mynd tók Áskell Þórrisson af álftahóp á túni í Húnavatnssýslu sl. þriðjudag. Matvælastofnun (MAST) hefur auglýst eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum. Er þetta gert með stoð í reglugerð frá 16. sept- ember sl. Stefnt er að því að gera þjónustusamninga til að tryggja dýralækna- og bráðaþjónustu. Eins og kunnugt er tók ný matvæla- löggjöf gildi 1. mars 2010 en sá hluti sem snýr að dýralæknaþjónustu mun taka gildi 1. nóvember nk. Þá verður embættum héraðsdýralækna fækkað úr 14 í 6 og héraðsdýralæknum verður óheimilt að sinna almennri dýralækna- þjónustu. Þegar hefur verið ráðið í stöður héraðsdýralækna. Beðið eftir fjárlagafrumvarpi Mast auglýsir eftir dýralæknum á fimm þjónustusvæðum af níu. Á hinum svæðunum fjórum hefur MAST boðið héraðsdýralæknum sem starfað hafa á svæðinu en missa störf sín þjónustusamning án auglýsingar. Er það gert með stoð í bráðabirgða- ákvæði reglugerðarinnar. Samningum er ekki lokið og er beðið eftir svörum umrædda dýralækna að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. „Þetta er í vinnslu en er því miður alltof seint fram komið,“ segir Halldór. Það hafi hins vegar sínar skýringar. „Það kom ekki fram hvaða fjárframlög yrðu lögð í þennan stuðning fyrr en fjárlagafrumvarpið kom fram núna 1. október.“ Nokkur fjöldi umsókna hefur þegar borist en frestur er til 17. október. Ljóst er að hafa þarf hraðar hendur. „Við ætlum okkur að vera búnir að klára þessa samninga fyrir mánaðamót ef nokkur tök eru á,“ segir Halldór. Engin afleysingaþjónusta Nokkur urgur er í dýralæknum vegna þessa. Eyrún Arnardóttir er sjálfstætt starfandi dýralæknir á Fljótsdalshéraði og segir að sér finnist almennt hafa verið illa að málinu staðið. „Við fengum engar upplýsingar um hvernig samningurinn yrði fyrr en núna þegar auglýsingin barst. Ég hef ekki enn gert upp við mig hvort ég sæki um. Það er mjög margt í þessum samningi sem ég felli mig illa við. Til dæmis fáum við enga afleysingu og við eigum ekki rétt á veikindadögum. Það er því okkar að útvega afleysingu ef við veikjumst eða þurfum að taka frí. Svo er annað í þessu. Hér á svæðinu eru þrír sjálf- stætt starfandi dýralæknar og ég hef það fyrir satt að ef við sækjum allar um muni samningnum líklega verða skipt milli okkar. Ef svo er má velta fyrir sér hvort það hreinlega borgi sig, miðað við þær skyldur og ábyrgð sem við þurfum að undirgangast.“ /fr

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.