Bændablaðið - 13.10.2011, Síða 5

Bændablaðið - 13.10.2011, Síða 5
Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 2011 5 Íslenskt rúgmjöl framleitt í Birtingaholti „Við uppskárum í fyrra um þrjú tonn á hektara af rúgi, en það má segja að það hafi verið tilraunaár hjá okkur í þessari ræktun,“ segir Fjóla Kjartansdóttir í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, en hún og Sigurður Ágústsson maður henn- ar hafa verið með rúgmjöl sitt til sölu í sveitaverslunum í sumar undir heitinu Ískorn. Líklega er þetta eina íslenska rúgmjölið sem framleitt er til manneldis, en áætlað er að um 550-600 tonn séu flutt til landsins árlega. Birtingaholt er annars þekkt kornræktarbýli; þar er bygg ræktað á um 180 hekturum og þurrkstöð er á bænum – þannig að sá tækjabún- aður nýtist vel til verkunarinnar á rúginum. Ískorn framleiðir einnig heilhveiti og byggmjöl. „Þetta hefur allt gengið mjög vel. Í fyrra uppskárum við fimm tonn, þannig að síðasta árið höfum við haft rúgmjöl frá okkur til sölu hér heima, en einnig í sveitaverslunum hér í nágrenninu; Bændamarkaðnum og Ásbúð á Flúðum, Búbót í Þingborg við Þjóðveg 1 og í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Við vissum í raun ekki hverju við áttum að eiga vona á – okkur langaði bara til að prófa að rækta þetta; nýta til heimilisins og leyfa öðrum að njóta þess líka. Við sáðum aftur nú í sumar svipuðu magni sem við uppskerum svo næsta haust,“ segir Fjóla. Hún segir að viðtökur hafi verið alveg ágætar þrátt fyrir að ekkert hafi verið auglýst og nánast engin markaðssetning hafi átt sér stað. „Ég held að það geti vel verið grundvöllur fyrir stórtækari fram- leiðslu á íslensku rúgmjöli – það er vitað að það fer mikið magn í bakstur og svo auðvitað í alla slát- urgerðina. Við ætlum að skoða vel möguleikann á því að auka við fram- leiðsluna og setja á stærri markaði. Það má þá líka alltaf nota rúginn í fóður fyrir kýrnar.“ /smh Fjóla Kjartansdóttir í Birtingaholti með rúgmjölsframleiðslu sína.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.