Bændablaðið - 13.10.2011, Side 7

Bændablaðið - 13.10.2011, Side 7
Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 2011 7 Í umræðunni Áætlað er að 13-15 þúsund manns hafi sótt sýninguna MATUR-INN sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Þátttakendur í sýningunni voru á fjórða tug en sýningin var nú haldin í fimmta sinn og var sú stærsta hingað til hvað sýningarrými og aðsókn varðar. „MATUR-INN hefur sannað sig sem ein öflugasta matvælasýning landsins. Aðalmarkmiðið með henni er að kynna norðlenskan mat og matarmenningu, allt frá smáum fram- leiðendum upp í þá stærstu, veitinga- starfsemi og annað sem þessu tengist. Sýningin er jafnframt sölusýning og það fór ekki á milli mála að fólk kunni vel að meta hversu góð kaup var hægt að gera á sýningunni. Við heyrum ekki annað en allir séu hæstánægðir með helgina - jafnt sýnendur sem gestir," segir Ingvar Már Gíslason sem var sýningarstjóri. Jafnframt hefðbundu sýningar- haldi þar sem fyrirtæki kynntu vörur sínar og þjónustu stóð Klúbbur mat- reiðslumeistara á Norðurlandi fyrir skemmtilegri keppni á sýningar- svæðinu. Einar Geirsson á veitinga- húsinu Rub 23 á Akureyri eldaði verð- launarétt úr makríl, af þjóðþekktum einstaklingum þótti Hölskuldur Þórhallsson, alþingismaður, standa sig best í matreiðslu á laxi, Ingólfur Gíslason, bakari, sigraði í eftirrétt- agerð fyrir hönd Bláu könnunnar á Akureyri og loks bar veitingahúsið Bryggjan á Akureyri sigur úr býtum í flatbökukeppni veitingastaða. Fastur liður í sýningarhaldinu er uppboð á veglegum matarkörfum sem sýnendur gefa í. Ágóði af uppboðinu í ár var 173.500 kr. og rennur hann til stuðnings Hetjunum - aðstandenda- félagi langveikra barna á Norðurlandi. Sýningin var haldin af félaginu Mat úr Eyjafirði í samstarfi við Matarkistuna Skagafjörð og Þingeyska matarbúrið, fyrirtæki og styrktarað- ila sem m.a. voru Landssamband kúabænda, Landssamtök sauðfjár- bænda, Svínaræktarfélag Íslands, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu- neytið, Búnaðarsamband Eyjafjarðar og Félag eyfirskra kúabænda. Sýningin MATUR-INN er haldin á tveggja ára fresti og er stefnt að næstu sýningu haustið 2013. MS-Akureyri hlaut frumkvöðlaverðlaun Við lok sýningarinnar voru að vanda veitt frumkvöðlaverðlaun félagsins Matar úr Eyjafirði. Þau hlaut að þessu sinni MS Akureyri fyrir vöruþróun, markaðsstarf og nýsköpun í fram- leiðslu á hollustuvörum úr osta- og skyrmysu. Próteindrykkurinn Hleðsla kom á markað í febrúar á liðnu ári og hefur svo sannarlega slegið í gegn, um 100 þúsund dósir eru að jafnaði seldar á mánuði, þannig að viðtökur hafa farið fram úr björt- ustu vonum. Um 24 milljónir lítra af mysu falla til árlega hjá MS-Akureyri og var áður að mestu leyti skolað út í sjó. Slíkt er nú bannað og hefði fyrirtækið þurft að byggja upp sérstaka hreinsistöð með ærnum tilkostnaði ef því háttalagi hefði verið haldið áfram. Þess í stað fór af stað vöruþróunarverkefni, sem endaði með tilkomu íþróttadrykkjar- ins Hleðslu. Um þessar mundir, um miðjan október hefst framleiðsla á Hleðslu til útflutnings, en ráðgert er að varan verði komin í verslanir í Finnlandi í byrjun næsta mánaðar. Finnar hafa tekið drykknum vel og hafa jafn- vel hug á að kaupa fleiri vörur af MS-Akureyri síðar, en sömu aðilar og standa fyrir innflutningi á Hleðslu í Finnlandi hafa keypt og dreift skyri þar í landi með góðum árangri. Hleðsla flokkast ekki sem landbúnað- arvara, heldur íþróttadrykkur og því sleppur fyrirtækið við að greiða land- búnaðartolla. Búið er að gefa Hleðslu enskt nafn, Renue og er drykkurinn hugsaður fyrir Evrópumarkað undir því nafni. /MÞÞ Aðsóknarmet slegið á MATUR-Inn sýningu á Akureyri: Allt að 15 þúsund gestir sóttu sýninguna Fulltrúar f lagsins Matar úr yja rði afhentu Sigurði Rúnari Friðjónssyni frumkvöðlaverðaun f lagsins á sýningunni Matur-inn sem haldinn var í Íþróttahöllinni á Akureyri á dögunum. Frá vinstri eru ngvar Már íslason, Arinbjörn Þórarinsson, Sigurður Rúnar og Jóhann lafur Halldórsson. Mynd / MÞÞ kki virðast menn sam- mála um uppruna vís- unnar „Það var bölvað þrælatak"sem Valgeir Sigurðsson, fyrrum blaðamað- ur á Tímanum sagði í síðasta þætti að væri örugglega eftir Andrés Björnsson eldri en ekki eftir Einar Sigurðsson frá Reykjarhóli. Nú hefur þættinum borist annað bréf varðandi vísuna. Þar fullyrðir Þorvaldur Sigurðsson frá Hróarsdal í Skagafirði að vísan sé eftir Einar Sigurðsson frá Reykjarhóli eins og haldið var fram þegar hún birtist í 16. tölu- blaði. Einar og Andrés hafi að vísu verið nágrannar en Andrés bjó á Löngumýri. Þorvaldur segir vísuna alfarið Einars, og sé hana að finna honum eignaða í 1. - 2. hefti Skagfirðingabókar. Annar glampandi hagyrð- ingur, Þórdís Sigurbjörnsdóttir bóndi íá Hrísum í Flókadal, orti einhverju sinni til sýslunga síns Dagbjarts Dagbjartssonar bónda á Refsstöðum í Hvítársíðu. Dagbjartur, sem einnig er kunnur hagyrðingur, vann um tíma á svínabúi.: Horfa á gömlu greppitrýnin getur valdið ylgjukeim, En ég vil ekki særa svínin og segja að Bjartur líkist þeim. Opnar standa allar dyr, einkum þó hjá konum. Ég hef stundum fallið fyr fyrir veitingonum. Fjölmargar vísur urðu til á Iðnþingi 1965 eins og greint hefur verið frá í tveim síðustu blöðum. Margir þingfulltrúar drógust inn í utanþingsumræðu þingsins og þá í bundnu máli. Ólafur Pálsson úr Hafnarfirði orti: Hýrum augum hægt á ská horfa menn til kvenna. Á Akureyri einnig má augum að þeim renna. Eftirfarandi vísur eru eftir Sveinbjörn Beinteinsson frá Draghálsi. Efni brags er úr Heiðarrímu, sem ort er undir miklum dýrleika, langhendu- háttur, bæði hringhendur og þráhendur. Orðkyngin er slík, að engan lætur ósnortinn. Mörgum þætti önugt að yrkja vitrænt undir slíkum dýrleika: Minnisforðann fagurblóma finn ég norðurheiðum á, þinna orða ilm og hljóma inni skorða ég stuðlum hjá. Nóttin lengi yfir alla óttastrenginn herti fast; þótt hún gengi fram til fjalla flótti í engar varnir brast. Emjar stríður húmsins hlátur, hemjast síðan ekki vill, semja kvíðans grimmu gátur gremjuhríðar dægrin ill. Myrkurstundin stóð við hurðu styrkja mundi fornan beig: virkri undir ógn og furðu yrkja bundin skáld við geig. Þrátt við aldar ólífsforða áttu þeir kaldan vistarheim, máttargaldur grimmra orða grátt hefur valdið fært að þeim. Rökkurhjúpur sveipar síðan sökkvidjúpin þjóðarlags; dökkar krjúpa um klettinn víðan klökkar stjúpur okkar brags. MÆLT AF MUNNI FRAM E Umsjón: Árni Jónsson kotabyggd1@simnet.is Frá sýningunni Matur-inn sem haldinn var í Íþróttahöllinni á Akureyri á dögunum. Myndir/ MÞÞ

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.