Bændablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 12
Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 201112 Fréttir „Þetta heppnaðist ljómandi vel í alla staði og það var fjölmennt hjá okkur um helgina,“ segir Anna Jóhannesdóttir en um liðna helgi streymdu gestir á leðurvinnu- stofu hennar, AJ Leðursaum, á Hjaltastöðum í Akrahreppi. Mikið fjölmenni var í Skagafirði um helgina í tilefni af Laufskálarétt. Anna opnaði lítið gallerí heima á Hjaltastöðum síðastliðið sumar, þar sem eru seldar vörur úr leðri, skinni og fiskroði. Hún segir að gestir hafi mikið spáð og spekúlerað. „Það var líka góð sala og talsvert um pantanir á sérsaumuðum fatnaði, þannig að það verður nóg að gera hjá mér á næstu vikum,“ segir Anna. Spennandi tími framundan „Framundan er spennandi tími hjá okkur, við erum að fara á fulla ferð með hönnun og framleiðslu á fylgi- hlutum úr íslensku tílapíuroði. Um er að ræða samstarfsverkefni milli þriggja aðila; fiskeldisstöðvarinnar í Fellsmúla í Landsveit, sem leggur til roðið, sútunarverksmiðjunnar Sjávarleðurs á Sauðárkróki, sem sér um vinnslu á roðinu og AJ Leðursaums, sem sér um hönnun og framleiðslu.“ Hönnun og vöruþróun eru að stórum hluta í höndum dætra Önnu, þeirra Sæunnar Kolbrúnar og Helgu Bjargar, en sjálf sér hún um að sauma. Verkefnið fékk styrk úr sjóði vegna atvinnuátaks kvenna síðastliðið vor. Á vinnustofu sinni hefur Anna framleitt hnakktöskur úr selskinni og leðri, undirdýnur fyrir hesta úr íslenskri gæru, dömutöskur og fatnað fyrir bæði dömur og herra. Aðallega er unnið úr hráefni frá sútunarverk- smiðjunni á Sauðárkróki, þar sem framleitt er hágæða leður og fiskroð. Vörur frá AJ Leðursaumi hafa einnig verið til sölu í Gestastofu sútarans og Sögusetrinu á Hólum. Það var í mörg horn að líta hjá Önnu í sumar, en hún tók m.a. þátt í Handverkshátíðinni á Hrafnagili og var einnig með bás á Landsmóti hestamanna, en einnig var gest- kvæmt í galleríinu á Hjaltastöðum. Anna segir að AJ Leðursaumur hafi þá sérstöðu að viðskiptavinum gefist kostur á að raða sjálfir saman efnum og litum, auk þess að koma með eigin snið og hugmyndir. Vantaði afmælisgjöf Anna á Hjaltastöðum hefur um ára- bil stundað hönnun og saumaskap. Kúabúskapur var lengst af stundaður á Hjaltastöðum. Rekstri var hætt í nóvember 2007 og skipt yfir í bland- að bú, nautaeldi og hrossatækt, en öllum búrekstri var hætt um áramótin 2009/2010. Síðan hefur Anna helgað sig fyrirtæki sínu og handverkinu. „Þetta byrjaði nú allt saman á því að ég var einhvern tíma á leið í afmæli, vantaði gjöf handa afmælis- barninu og leysti málið með því að sauma hnakktösku. Það vatt svo upp á sig, ég gerði fleiri slíkar töskur og málin þróuðust á þann veg að ég fór að hanna og gera fleiri vörur, m.a. leður- og roðvesti sem lengi hafa verið vinsæl gjafavara.“ /MÞÞ Anna Jóhannesdóttir á Hjaltastöðum opnaði AJ Leðursaum síðastliðið sumar: Samstarf um framleiðslu á fylgihlutum úr tílapíuroði Á vinnustofu sinni hefur Anna framleitt hnakktöskur úr selskinni og leðri, undirdýnur fyrir hesta úr íslenskri gæru, dömutöskur og fatnað fyrir bæði dömur og herra. Það eru spennandi tímar framundan hjá Önnu á Hjaltastöðum en hún er nú að hefja samstarf við skeldisstöðina í Fellsmúla í Landsveit og Sjávarleður á Sauðárkróki um hönnun og framleiðslu á fylgihlutum úr tílapíuroði. Í vor kom á markað alíslenskt morgunkorn sem nefnist Byggi og er hráefnið, hönnun og pakkning- ar allt íslenskt. Það er fyrirtækið Árla sem stendur fyrir þessari nýjung og eru fleiri vörutegundir á leiðinni í verslanir. Tvær fjölskyldur úr höfuðborg- inni standa að rekstrinum en verk- smiðjan er staðsett í Borgarnesi. Bændablaðið náði tali af Friðriki Arelíussyni, einum eiganda Árla. „Við erum eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í framleiðslu á útblásnu morgunkorni. Það eru þrjú ár síðan við byrjuðum á þessu. Við ferðuðumst erlendis til að skoða tæki og ýmsan búnað og til að læra á framleiðsluferlið. Allt síðasta ár hefur staðið yfir þróunarvinna og fyrsta vörulínan, Byggi, kom á mark- að í maí en hann er unninn úr korni frá Þorvaldseyri og engin aukaefni, sykur eða salt eru í honum,“ útskýrir Friðrik og segir jafnframt: „Þetta er sígandi lukka, fyrstu mánuðina framleiddum við um helgar og á kvöldin en nú höfum við bolmagn til að ráða einn starfsmann. Ef þetta er gert á réttum grunni þá á þetta að geta gengið. Nú í októ- ber bætast við tvær vörutegundir, Byggi með kanilbragði og síðan sætur Byggi fyrir þá sem vilja sætt morgunkorn.“ /ehg Fleiri tegundir af íslensku morgunkorni á markað Byggi er eina útblásna morgun- kornið sem framleitt er hérlendis og er hráefnið, hönnun og pakkningar allt íslenskt. Mynd / ehg. Umhverfisráðherra hefur fallist á ráðleggingar Náttúrufræði- stofnunar um ráðlagða rjúpnaveiði árið 2011 upp á 31.000 fugla. Eru það ríflega helmingi færri fuglar en leyft var að veiða árið 2010. Skýrist þetta af verri stöðu rjúpn- astofnsins að því er fram kemur í fréttatilkynningu umhverfisráðu- neytisins. Með því að deila ráðlagðri veiði á fjölda skráðra rjúpnaveiði- manna undanfarin ár má þannig gera ráð fyrir um 6 rjúpum á hvern veiðimann. Rjúpnaveiði minnkuð um helming frá fyrra ári Jarðrækt - grunnur að áætlanagerð Kennari Húsgagnagerð úr skógarefni Kennari Húsgagnagerð úr skógarefni Kennarar Ull er gull Kennarar: Aðventuskreytingar Kennari Námskeið fyrir þig! Plægingar Kennari Ostagerð Kennari Ísgerð Kennari: Sjúkra- og jafnvægisjárningar Kennari Fræðsluþing um járningar Kennari Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 Við erum líka á Facebook - facebook.com/namskeid

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.