Bændablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 16
Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 201116 Þorgrímur Einar Guðbjörnsson, bóndi á Erpsstöðum, stóð vaktina í portinu á Hressó í Reykjavík á markaði sem haldinn var í tengslum við matarhátíðina Full borg matar fyrir skömmu og greint var frá i síðasta blaði. Streymdi þar að fjöldi fólks til að kynna sér hvað íslenskir bændur hefðu fram að færa. „Það hefur gengið ágætlega að markaðssetja okkar vörur. Við seljum þó mest heima, beint frá býli. Sumarið 2010 fengum við um 15 þúsund gesti og það er eitthvað svipaður fjöldi sem hefur komið nú sumarið 2011. Þá seljum við vörurnar á nokkrum völdum stöðum í Reykjavík; hjá Frú Laugu, í Nóatúnsverslunum og nokkrum öðrum sælkeraverslunum.“ Þorgrímur sagðist hrifinn af því framtaki að setja upp bændamark- aði eins og þann í portinu á Hressó. Æskilegt væri þó að slíkur markaður yrði fastur þáttur í miðborgarlífinu. „Það þyrfti að finna svona markaði góðan stað, sem væri vel aðgengilegur og skemmtilegur. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem með okkar vörur á svona markað. Áður hef ég mest verið að skafa ísinn okkar í brauðform á mörkuðum en þetta er alveg nýtt fyrir mér. Skyrið frá okkur rennur út hérna. Þetta er ekta gamaldags sveitaskyr, hnausþykkt með smá súrbragði.“ Skyrið er síað með gömlu aðferð- inni, í gegnum poka eða grisju. Slík skyrframleiðsla er vandfundin í dag en þó mun KEA eitthvað vera að framleiða af slíku skyri. „Skyrkonfektið er svo vara sem við byrjuðum að framleiða í vetur í samstarfi við Listaháskólann. Það hefur gengið mjög vel og síðan í mars höfum við framleitt nálægt 15 þús- und stykki af því,“ sagði Þorgrímur Einar. /HKr. Erpsstaðabóndi ánægður með bændamarkað á „Fullri borg matar“ í Reykjavík: Pokasíað skyr, skyrkonfekt og ostar runnu út Þorgrímur Einar Guðbjörnsson, bóndi á Erpsstöðum. Myndir / HKr. Ostar frá Erpsstöðum. Pokasíað skyr rann út eins og heitar lummur. Sigurður Haraldsson hjá Pylsumeistaranum. Mynd / HKr.. „Það vantar svona markað í borginni“ Sigurður Haraldsson hjá Pylsumeistaranum var hinn hress- asti með markaðsframtak mat- arhátíðarinnar Full borg matar. „Það vantar svona markað í borg- inni. Mér finnst þó allt eftirlitskerfið í kringum slíka markaði of svifaseint og flókið. Ef við sem erum að fram- leiða ýmiss konar sérvöru tækjum okkur saman, þá hugsa ég að það mætti vel koma svona markaði á fót.“ Bleikjuseiði til sölu Fjallableikja ehf. að Hallkelshólumí Grímsnesi hefur til sölu bleikjuseiði. Upplýsingar: Jónas 862-4685 og Guðmundur 8939-777 eða fjallableikja2010@gmail.com Skyrkonfekt frá Erpsstöðum. Hrútaþukl við heimskautsbaug - Árlegur Hrútadagur var haldinn í Faxahöll á Raufarhöfn 1. október Hinn árlegi Hrútadagur fór fram í Faxahöll á Raufarhöfn laugar- daginn 1. október en þar mátti sjá marga glæsilega lambhrúta. Bændur koma þarna saman til að eiga viðskipti með hrúta en einnig streymir að fólk úr öllum áttum til að taka þátt í stemmingunni. Hrútadagurinn var fyrst haldinn árið 2005 og er einn af stærstu við- burðunum á Raufarhöfn ár hvert. Þarna koma saman bændur og búalið frá helstu fjárræktarbúum Norður- Þingeyjarsýslu til að selja vænlega lambhrúta, og jafnvel kaupa sér aðra. Í ár var fyrirkomulaginu breytt frá því sem áður var og gátu bændur nú skráð sig sem kaupanda að hrút sem síðan var boðinn upp, ef fleiri en einn sóttust eftir sama gripnum. Þá gátu einungis þeir sem höfðu skrifað sig fyrir kaupum boðið í hrútinn. Slegist um besta hrútinn Slegist var um einn besta hrútinn sem boðinn var upp en fimm kaup- endur buðu í hann. Hann var með 87 í heildarstig og fór á 97 þúsund krónur. Alls voru 54 hrútar seldir. Einnig var í boði kennslu- stund í hrútaþukli en Þekkingarnet Þingeyinga bauð gestum upp á þann fyrirlestur. Það var Sigurður Guðmundsson ráðunautur sem leið- beindi mönnum um hvernig best er að þukla hrútana, enda nauðsynlegt að kunna þá list þegar svona sam- koma er sótt. Guðbrandur valinn kótilettuhrútur Kótelettufélag Íslands mætti á svæðið og voru meðlimir ekki að leita sér að kynbótahrút, heldur meira að svipast um eftir besta bitanum. Þeir völdu hrútinn Guðbrand sem kótelettuhrút ársins en eigendur hans voru Eyrún Ösp Skúladóttir og Bjarki Fannar Karlsson frá Hafrafellstungu í Öxarfirði, sem einnig áttu þann hrút sem seldur var hæsta verði á uppboð- inu. Þau fengu viðurkenningarskjal að launum en ekki fylgir sögunni hvort kótelettufélagið fékk hrútinn keyptan til að skella á grillið. Þá var að venju handverk til sölu ásamt ýmsum öðrum varningi. Þennan dag var einnig skemmti- leg ljósmyndasýning í gangi en hún bar yfirskriftina Sauðfé í Norður- Þingeyjarsýslu og ræktendur þeirra á síðustu öld. Þar var búið að safna saman fjölda ljósmynda frá ýmsum bæjum í sýslunni. Þegar hrútastússið var búið í Faxahöll var fjölskylduskemmtun í félags- heimilinu Hnitbjörgum með Ingó og Veðurguðunum, og þar á eftir dans- iball fram á nótt. / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir Ágúst Guðröðarson og Sigríður Margrét Gamalíelsdóttir, bændur á Sauðanesi á Langanesi, fengu verðlaun fyrir afurðarhæstu ána fædda árið 2005. Myndir Gréta Bergrún Jóhannesdóttir Níels Árni Lund sá að venju um hrútauppboðið og voru hrútarnir „slegnir“ með hamri og skó u

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.