Bændablaðið - 13.10.2011, Page 21

Bændablaðið - 13.10.2011, Page 21
 Matvælaframleiðsla og Fæðuöryggi 21BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 13. OKTÓBER 2011 Bílkranar Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð JIB 20˚ yfirhalli Gálgi 12˚ yfirhalli Fjölbreytt úrval krana til margvíslegra nota ásamt aukabúnaði Lyftigeta 2,5 - 80 tonn Leitið nánari upplýsinga! Smíðum glugga, hurðir og opnanleg fög í þeim stærðum og gerðum sem henta þér. Um 70 milljónir manna undir hungurmörkum Alþjóðamatvæladagur Matvæla- og land búnaðar stofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), sem haldinn verður 16. október næstkomandi, verður helgaður baráttunni gegn sveiflum í mat- vælaverði. Að sögn Árna Mathiesen, yfirmanns sjávarútvegs- og fisk- eldisdeildar Matvæla- og landbún- aðarstofnunarinnar, er nauðsynlegt að auka fjárfestingu í matvælafram- leiðslu í þróunarlöndunum til að sporna við þeim miklu hækkunum sem orðið hafa á matvælum undan- farin ár. „Miklar sveiflur og sérstaklega miklar hækkanir, þær mestu í þrjátíu ár, hafa afar neikvæð áhrif. Staða þeirra sem verst standa versnar áþreifanlega og allt að 70 milljónir manna hafa færst undir hungurmörk á síðustu tveimur árum. Upplýsingar til bænda verða líka óvissu háðar og ákvarðanataka ekki eins nákvæm, sem leitt getur annars vegar til offramboðs og hins vegar til skorts. Markmiðið er að finna leiðir til þess að koma á stöðugleika á ný, eins og fram kemur í yfirlýsingum G20-ríkjanna,“ útskýrir Árni. Markaðstengdar aðgerðir En hvað ætli það sé sem valdi þessum mikla óstöðugleika matvælaverðs? „Það eru fyrst og fremst aukinn og mjög hraður hagvöxtur og minnkandi fjárfesting í matvælaframleiðslu sem eru án efa stórir áhrifavaldar, ásamt fjölgun mannkyns. Einnig spila nátt- úruhamfarir þar inn í, auk meiri við- skipta en áður með landbúnaðarafurðir á framvirkum mörkuðum og mark- aðstruflandi og markaðsheftandi aðgerða,“ segir Árni og bætir við: „Alþjóðasamfélagið hefur komið sér saman um aðgerðir til að sporna við þessum vanda því ef ekkert verður að gert er líklegt að ástandið batni ekki á næstunni. Fyrst og fremst er um markaðstengdar aðgerðir að ræða, svo sem betra flæði upplýsinga, en einnig aðgerðir alþjóðastofnana og viðbúnað. Það sem skiptir þó mestu máli er að auka fjárfestingu í matvælaframleiðslu í þróunarlöndunum, þar sem 98% þeirra sem eru undir hungurmörkum búa, en þar þarf matvælaframleiðsla að tvöfaldast fyrir árið 2050.“ Norðurlöndin eru í fararbroddi þegar kemur að heilnæmi og öryggi matvæla, enda er þetta málefni eitt af áhersluatriðunum í samstarfi þeirra. Norðurlöndin eru einnig mikil matvælafram- leiðslulönd og sýnir tölulegur samanburður glöggt að matvæla- framleiðsla vegur mun meira í efnahag þeirra landa en til dæmis Evrópusambandslöndunum. Ef útflutningur Norðurlanda á fiski og fiskafurðum er t.d. skoðaður kemur í ljós að saman eru þessi lönd langstærsti útflytjandinn í heiminum, næst á eftir Kína. Norrænn matvælaiðnaður hefur náð mjög langt í markaðssetningu afurða sinna á heimsmarkaði og nægir að nefna danskt svínakjöt og bjór, norskan lax og íslenskan fisk. Þá hafa Norðurlöndin byggt upp öflugan stoðiðnað í tengslum við matvælaframleiðslu, vinnslu- vélar og tæki, hugbúnað og líf- tæknifyrirtæki sem þjóna mat- vælaiðnaðinum. Norðurlöndin hafa ekki einungis mjög öfluga háskóla og rannsóknastofnanir á sviði matvæla- og næringarfræði, heldur er einnig komin löng hefð fyrir nánu samstarfi þessara aðila. Norræn matarhefð til eftirbreytni Á síðustu áratugum hefur náðst mikill árangur í að bæta mataræðið á Norðurlöndunum. Það hefur færst mun nær því sem þekkist við Miðjarðarhafið, sem þykir mjög ákjósanlegt. Neysla grænmetis og ávaxta hefur stóraukist á norður- slóðum, þótt neysla sykurs og mett- aðrar fitu sé enn of mikil. Þá hefur matarmenning Norðurlandanna fengið verðskuldaða athygli á sviði matgæðinga. Bæði þykir hún sér- stök að ýmsu leyti, auk þess sem við borðum mun meira af fiskmeti en þekkist t.d. í öðrum Evrópulöndum og meira af grófu kornmeti. Ýmis verkefni eru núna í gangi til að kynna og skerpa á norrænni matarhefð og kynna fyrir umheiminum. Framleiðum meiri og betri matvæli Þannig eru Norðurlöndin mjög vel í stakk búin til að takast á við það gríðarlega verkefni sem er fram- undan næstu áratugina, að framleiða meiri og betri matvæli. Þar er unnt að lyfta grettistaki þótt einungis sé litið til þeirrar tækni sem við nú höfum yfir að ráða. „Töfralausnir“ þurfa því ekki að koma til. Það nægir að beita þeirri tækni sem þegar er til staðar. Á ári hverju fara til dæmis forgörðum í heiminum matvæli sem myndu nægja til að framfleyta þremur milljörðum manna. Tími ódýrs matar er liðinn Flestir sérfræðingar telja að tími nægra og ódýrra matvæla sé liðinn. Í hönd fari tími skorts og óróa á matvælamörkuðum. Þá er bent á að fæðuöryggi verði að fá hærri sess á taflborði alþjóðastjórnmálanna. Því væri ekki úr vegi að Norðurlöndin íhugi í sameiningu hvort þau geti mótað nýjar áherslur í þróunarstarfi sínu með hliðsjón af þessari nýju heimsmynd sem blasir við. Árni Mathiesen, y rmaður sjávarútvegs- og skeldisdeildar Matvæla- og land- búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, segir eitt af markmiðum alþjóða- matvæladagsins vera að koma á stöðugleika á matvælaverði í heiminum. Matvæli og Norðurlöndin Alþjóðamatvæla dagurinn: Grímur Valdimarsson Fyrrv. forstöðumaður fiskideildar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO) Matvælaframleiðsla Óska eftir að kaupa allar tegundir dráttarvéla, diesel lyftara og jarðtætara af öllum stærðum. Uppl. í síma 866-0471 - traktor408@gmail.com Bændablaðið á netinu... www.bbl.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.