Bændablaðið - 13.10.2011, Page 22

Bændablaðið - 13.10.2011, Page 22
22 Matvælaframleiðsla og Fæðuöryggi BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 13. OKTÓBER 2011 Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna, Food and Agriculture Organization (skammstafað FAO), skilgreindi á ráðstefnunni The World Food Summit árið 1996 hvað hug- takið fæðuöryggi þýddi. Þetta hugtak ber æ oftar á góma í umræðunni um allan heim og hafa Bændasamtök Íslands leitt umræðuna hérlendis. Miðað við orð erlendra sérfræðinga er ekki vafi á að fæðuöryggismálin muni skipta íslenskan landbún- að og hag þjóðarinnar í fram- tíðinni verulegu máli. Samt hafa ákveðnir aðilar á Íslandi reynt að tengja umræðu um þessi mál við svokallaða sérhagsmuna- gæslu íslenskra bænda og bar- áttu þeirra gegn því að Ísland gangi inn í Evrópusambandið. Fæðuöryggi = aðgengi allra að nægum mat Samkvæmt skilgreiningu FAO er fæðuöryggi fyrir hendi þegar allt fólk á öllum tímum hefur aðgengi að nægum öruggum og næringar- ríkum matvælum til að viðhalda heilbrigði og virkri þátttöku í sam- félaginu. Fæðuöryggi er einnig skilgreint þannig að fólk geti hafi aðgengi að góðum matvælum óháð efnahag. Með öðrum orðum þýðir það að aðgengi að mat eigi ekki að vera forréttindi þeirra ríku. Þrátt fyrir þetta eru heilsufarsvandamál sem tengjast ónógu aðgengi að hollum og óskemmdum mat sívax- andi víða um lönd. Þeim fylgja gjarnan niðurgangur, næringar- skortur og dauði. Vandamál sem skapar tækifæri fyrir norðlægan landbúnað Samkvæmt skýrslum FAO þarf að stórauka matvælaframleiðslu heims á komandi árum til að hægt sé að brauðfæða vaxandi íbúa- fjölda jarðarinnar. Raunar þarf að tvöfalda framleiðsluna á næstu 40 árum. Við þetta bætist hlýnun jarðar, sem gerir það að verkum að stór akuryrkjulönd munu ekki geta gefið eins mikið af sér vegna þurrka og áður. Það þýðir að þjóðir heims munu í auknum mæli fara að huga að fæðuöryggi og því að tryggja íbúum sínum aðgengi að fæðu. Í þessu eru talin felast mikil tækifæri fyrir þjóðir á norðlægum slóðum, sem og þjóðir nær suður- heimskautinu. Þar verður stöðugt vænlegra að stunda akuryrkju vegna hlýnandi loftslags. Sóun matvæla Þó er líka annar angi á þessu máli sem ekki er eins mikið rætt um, en það er sú ofgnótt matar sem sumir þjóðfélagshópar búa við og henni fylgir gríðarleg sóun á matvælum. Fram hefur komið í skýrslum FAO að fræðilega ætti auðveldlega að vera hægt að brauðfæða alla jarðarbúa í dag og að jörðin ráði þokkalega við að brauðfæða allt að 10 til 12 milljarða manna. Til að svo megi verða þarf hinsvegar að eiga sér stað gríðarleg hugarfars- breyting, ekki síst í helstu velmeg- unarríkjum heims þar sem sóun á matvælum er hvað mest. Alþjóðastofnanir óttast þróunina Fregnir utan úr heimi sýna þó vel að menn hafa miklar áhyggjur af að erfitt geti reynst að stemma stigu við sóuninni nægilega hratt til að hægt verði að brauðfæða þá 9-10 milljarða manna sem búa munu á jörðinni nokkru fyrir næstu aldamót. Byrjað er að mynda nefndir og ráð víða um heim til að fást við vaxandi fæðu- öryggisvanda. OECD og FAO eru meðal þeirra opinberu alþjóða- stofnana sem lýst hafa vandanum mjög ítarlega og ljóst er að þar á bæ eru menn mjög áhyggjufullir. Hinar dökku hliðar hnattvæðingarinnar FAO segir m.a. í einni skýrslu sinni af mörgum um þessi mál að það sé nægur matur til í heim- inum fyrir alla. Vandinn sé hins- vegar hvernig honum er skipt milli manna. Þá setur FAO spurningar- merki við hvort hægt sé að mæta vaxandi fæðuþörf með núverandi framleiðsluháttum. Þá sé líka spurning hvort svokölluð hnatt- væðing muni, þvert á það sem haldið hefur verið fram, leiða til minna fæðuöryggis og fátæktar í afskekktari héruðum heims. FAO bendir á að landbúnaður verði áfram stærsta atvinnugreinin í þróunarlöndunum. Nú hafi tals- verð gagnrýni komið fram á frjáls viðskipti milli landa, vegna þess að þau leiði til þess að bændur á vissum svæðum flosni upp, sem leiði aftur til minna fæðuöryggis og atvinnuleysis í viðkomandi löndum. Þær áhyggjur hafi leitt til þess fyrir nokkrum árum að Alþjóða viðskiptastofnunin, World Trade Organization (WTO), hafi rætt endurskoðun á afstöðu þróaðri landa til að heimila þróunarlönd- um að hækka innflutningstolla til að vernda sinn landbúnað. Fæðuöryggismálin efst á baugi Um allan heim eru fæðuöryggis- málin að verða eitt helsta umræðu- efni ríkisstjórna og stofnana fyrir utan efnahagskreppuna sem engan endi virðist ætla að taka. Fjöldi ráðstefna hefur verið haldinn og fleiri boðaðar. Þann 14. og 15. desember næstkomandi verður t.d. haldin ein af mörgum ráð- stefnum um þessi mál í London, þ.e. Chatham House Conference. Á ráðstefnunni er ætlunin að leiða saman leiðtoga í viðskiptalífinu, fulltrúa einkageirans, stjórnvalda, ólíkra stofnana og sjálfstæðra samtaka. Þar verður varpað upp ýmsum aðkallandi spurningum, eins og hvernig hægt verði að yfirstíga pólitíska þröskulda til að taka á vandanum, hvernig mæta eigi vaxandi eftirspurn eftir mat á heimsvísu með óhefðbundnum leiðum, hvernig megi umbreyta landbúnaðarkerfinu í átt til auk- innar framleiðni og meiri áreiðan- leika, en þó án þess að ganga um of á náttúrugæðin, og hvernig tak- ast eigi á við þau umhverfisvanda- mál sem fylgja loftslagshlýnun og fjölgun jarðarbúa. BÍ leiða umræðuna á Íslandi Á Íslandi hafa Bændasamtök Íslands haft forystu og leitt umræðuna um fæðuöryggis- málin. Voru þau m.a. undirtónn Búnaðarþings fyrr á þessu ári. Þann 18. janúar hélt norski land- búnaðarhagfræðingurinn Anton Smedshaug athyglisverðan fyrir- lestur í Bændahöllinni um þessi mál undir yfirskriftinni „Hvernig á að brauðfæða heimsbyggðina?“. Fram kom í máli Smedshaug að matvælaframleiðsla hafi dregist saman í heiminum en fæðuþörfin aukist. Ræddi Smedshaug söguleg- ar ástæður þess að heimsbyggðin á nú í erfiðleikum með að brauðfæða sig. Í máli Smedshaug kom fram að aukinn kaupmáttur víða um heim og þverrandi jarðefnaeldsneyti hafi gjörbreytt því hvernig horft er til matvælaframleiðslu framtíðarinnar. Liður í því að snúa þróuninni við væri m.a. að horfa til betri nýtingar á matvælunum sjálfum, en einnig lífrænum úrgangi; bæði til áburðar- notkunar og orkunýtingar. Smedshaug hefur gefið út bók um hvernig eigi að brauðfæða heiminn á 21. öldinni. Leggur hann áherslu á að íbúar jarðar verði að snúa við blaðinu ef takast eigi að brauðfæða vaxandi íbúafjölda heimsins. Fyrirlestur Julian Cribb 17. október Næstkomandi mánudag, 17. októ- ber, mun svo annar þekktur fyrir- lesari, ástralski blaðamaðurinn og ritstjórinn Julian Cribb, halda fyrir- lestur um fæðuöryggismál og stöðu matvælaframleiðslu í heiminum. Er fyrirlesturinn í tengslum við fyrir- lestraröð Cribb í Evrópu af tilefni alþjóða fæðudags FAO, sem er þann 16. október. /HKr. Alþjóðastofnanir, samtök og einstaklingar ræða viðbrögð við fæðuvanda: Hvernig á að tryggja fæðuöryggi heimsbyggðarinnar? - Áhersla lögð á að fá þjóðir heims til að bregðast við ört vaxandi fæðuþörf Greinilegt virðist samkvæmt þessu súluriti að fiskveiðar séu að mestu búnar að ná hámarki á heimsvísu og einungis aukið fiskeldi geti lagt til aukna framleiðslu á fiski í framtíðinni.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.