Bændablaðið - 13.10.2011, Page 33

Bændablaðið - 13.10.2011, Page 33
33Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 2011 Borum eftir heitu og köldu vatni ásamt öðrum borverkum um allt land. Liprir og sanngjarnir í samvinnu og samningum. Hagstætt verð. Bændur - sumarhúsaeigendur Upplýsingar gefur Júlíus Guðnason í síma 864-3313. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 1213 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 Landstólpi ehf. Gunnbjarnarholti Sími: 480 5600 Fax: 486 5655 landstolpi@landstolpi.is landstolpi.is Vítt og breitt um landið hefur Landstólpi reist stálgrindarhús af öllum stærðum og gerðum; iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði, hesthús, reiðhallir, fjós og fjárhús. Auk húsa til annarra nota. Með öflugum tækjakosti og traustum starfsmönnum önnumst við verkið frá hugmynd til uppsetningar og frágangs. Vönduð stálgrindarhús Vacuum pökkunarvélar & pokar margar stærðir Reykofnar og allir fylgihlutir Öll varahluta og viðgerðaþjónusta 2 ára ábyrgð á öllum vörum www.esjugrund.is Visa/MasterCard.Greiðsludreifing.Póstkröfur.Millifærslur Bændablaðið Smáauglýsingar. 5630300 Töluverðir framtíðarmöguleikar eru á töku byggingarefnis á Eyjafjarðarsvæðinu. Þá er efnis- taka hugsanleg á sjávarbotni í firðinum en frekari jarðfræði- rannsóknir eru nauðsynlegar áður en hægt er að skera úr um hvort þeir möguleikar séu raunhæfir. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Náttúrufræðistofnunar um efnisnám og efnistökumögu- leika á Eyjafjarðarsvæðinu, sem unnin var fyrir Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Eyjafjarðar. Í skýrslunni er yfirlit um helstu efnis- tökumöguleika í sveitarfélögum á svæðinu, rætt um gerð og gæði efnis í hinum ýmsu jarðmyndunum og bent á þá þætti sem takmarkað gætu efnisnám. Byggingarefni á Eyjafjarðar- svæðinu er aðallega unnið úr þrenns- konar jarðmyndunum: Í fyrsta lagi er efni unnið úr malarhjöllum frá síðjökultíma en þeir eru yfirleitt óshólmar fornra jökulfljóta sem mynduðust þar sem jöklar gengu í sjó við hærri sjávarstöðu í lok ísaldar. Efnisvinnsla í malarhjöllum er ekki sjálfbær því þeir endurnýjast ekki við þær aðstæður sem ríkja í dag. Í öðru lagi er efni unnið úr áreyrum stærstu vatnsfalla á svæðinu en þær eru framburður vatnsfalla á nútíma eða síðan jöklar hurfu í lok ísaldar. Efnisvinnsla í áreyrum telst sjálf- bær því þær endurnýjast að hluta, reyndar oft á mjög löngum tíma. Við efnistöku úr áreyrum verður að taka tillit til tveggja vatnsverndarsvæða, í Hörgárdal og Svarfaðardal. Einnig þarf að gæta að því að malareyrar umhverfis árfarvegi eru mikil- vægar seiðauppeldisstöðvar. Mælt er með að efnistaka úr áreyrum sé ekki stunduð án undanfarandi líf- ríkisrannsókna og hún sé samkvæmt ráðgjöf fiskifræðinga. Í þriðja lagi er grjótnám á nokkrum stöðum í nokkurra milljóna ára gömlum berg- grunnsmyndunum og er sú efnis- vinnsla ekki sjálfbær. Í Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit og Grýtubakka- hreppi eru miklir efnistökumögu- leikar og þar eru stórar námur sem koma til með að endast í töluverðan tíma. Í þremur sveitar- félögum, Fjallabyggð, Akureyri og Svalbarðsstrandarhreppi, eru litlir efnistökumöguleikar eða námur þegar fullnýttar. Tvö síðastnefndu sveitarfélögin eru það vel í sveit sett að stutt er að sækja byggingarefni í önnur sveitarfélög þar sem miklir námumöguleikar eru. Í Fjallabyggð er efnisnám þegar hafið á sjávarbotni í Siglufirði. Fjallað er um skýrsluna á vef Náttúrufræðistofnunar þar sem hana má lesa í heild sinni. Eyjafjörður: Víða stórar efnisnámur                7.       .

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.