Bændablaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 2012 5 9 4 8 1 1 6 3 2 7 8 4 9 2 2 6 8 3 9 2 9 5 6 4 7 6 1 2 7 9 8 9 4 4 3 8 1 3 7 4 9 8 2 1 5 8 9 3 8 4 6 1 5 9 1 3 9 6 4 5 9 2 8 7 6 4 324 7 7 7 Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www. sudoku2.com og þar er einnig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Sabína Ósk Pálmarsdóttir er búin að fara á hestanámskeið í sumar og hafði gaman af. Hún ætlar að gera margt fleira áður en hún byrjar í 1. bekk í Varmárskóla í Mosfellsbæ í haust, því hún fer í heimsókn til ömmu sinnar og afa til Noregs og passar litla bróður sinn Patrek Þorra, sem er rúmlega eins árs, svo fátt eitt sé nefnt. Nafn: Sabína Ósk Pálmarsdóttir. Aldur: 6 ára. Stjörnumerki: Vatnsberi. Búseta: Mosfellsbær. Skóli: Er að byrja í Varmárskóla í haust. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Er viss um að mér finnst leikfimi skemmtilegust. Hvert er uppáhalds dýrið þitt? Hvolpar og hestar. Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur. Uppáhaldshljómsveit: Blár ópal. Uppáhaldskvikmynd: Björn bróðir. Fyrsta minningin þín? Þegar ég var lítil og ruslaði til í herberginu mínu með bleyjunum mínum. Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á hljóðfæri? Ég hef verið á hestanám- skeiði á sumrin. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Horfa á myndbönd á Youtube. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Dýrakennari. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég er að berjast við Jökul vin minn í leikskólanum. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Leiðinlegast í heimi er að laga til í herberginu mínu. Ætlar þú að gera eitthvað sér- stakt í sumar? Ég ætla að fara á hestanámskeið í hraðahóp, fara til Noregs að heimsækja ömmu og afa og frændsystkini mín, borða fullt af ís og passa litla bróður. /ehg Prjónað pils – hlýtt og gott, tilvalið í fjallgönguna! Prjónahornið Fólkið sem erFir landið Ætlar að borða fullt af ís í sumar Fyrsta minning Sabínu Óskar er af því að rusla til í herberginu sínu með eigin bleyjum Margir nota sumarfríið til að ganga á fjöll, þá er gott að eiga hlýtt og fljótprjónað pils til að ganga í. Gypsy-garnið hentar einmitt mjög vel til þess. Stærð: S – M – L – XL – XXL – XXXL Mitti:70 – 74 – 82 – 90 – 102 – 110 cm Kantur: 100 – 106 – 114 – 122 – 134 – 146 cm Lengd: 40 – 42 – 44 – 46 – 48 – 50 cm Efni: Gypsy frá Kartopu nr. 410, 300 – 350 – 350 – 400 – 450 – 500 g Hringprjónn nr. 7 x 80 cm Hringprjónn nr. 6 x 80 cm Prjónafesta: 10 x 10 cm = 13L x 18 umferðir Aðferð: Úrtaka: Takið úr þannig við 1. og 3. merki: prjónið uns komið er að merki, takið 1L óprj, prj 1L, steypið þeirri óprj yfir. Takið úr þannig við 2. og 4. merki: prjónið uns 2L eru að merki, prj þær 2 saman. Pils: Pilsið er prjónað neðan frá og upp. Fitjið upp 120 – 126 – 136 – 146 – 160 – 176 L á hring- prjón nr. 6 og prjónið garðaprjón 4 cm, skiptið þá yfir á hringprjón nr. 7 og prjónið slétt uns stykki mælist 17 – 18 – 19 – 20 – 21 – 22 cm. Setjið þá merki þannig: 1. merki eftir 15. – 15. – 17. – 17. – 20. – 22. L, 2. merki eftir 45. – 48. – 51. – 56. – 60. – 66. L, 3. merki eftir 75. – 78. – 85. – 90. – 100. – 110. L, 4. merki eftir 105. – 111. – 119. – 129. – 140. – 154. L. Í næstu umferð er tekið úr 1L við hvert merki (sjá „úrtaka“ undir Aðferð). Endurtakið svo úrtökuna í 4. hverri umferð, alls 6 – 6 – 7 – 7 – 7 – 8 sinnum = 96 – 102 – 108 – 118 – 132 – 144 L. Þegar stykki mælist 31 – 33 – 35 – 36 – 38 – 40 cm, skiptið þá yfir á hringprjón nr. 6 og takið úr 12 – 14 – 10 – 10 – 10 – 12 L jafnt yfir umferð. Prjónið svo lsl, 1br uns stykki mælist 40 – 42 – 44 – 46 – 48 – 50 cm. Fellið laust af með sléttu yfir sléttu og brugðnu yfir brugðnu. www.heimavik.is Áskrift að Bændablaðinu borgar sig! Tryggðu þér áskrift af Bændablaðinu og fáðu blaðið sent heim til þín. Ársáskrift kostar einungis 6.600 kr. en eldri borgarar fá 50% afslátt. Þeir sem tryggja sér áskrift í júlí og ágúst fá sérmerktan bol frá Bændablaðinu í kaupbæti. Með áskrift tryggir þú þér 24 tölublöð af Bændablaðinu á ári. Auglýsinga- og áskriftarsími Bændablaðsins er 563-0303 Netfang: bbl@bondi.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.