Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 25
13. janúar föstudagur 5 ir a a k tt m g- Í n m g gt u u I g ð ur ð- d- ær g ð st c á a o d íl ði við gesti staðarins. Þetta er vel þekkt innan bransans og getur borgað mjög vel.“ TÓNLISTARÁHUGINN Fredrik segist nota íslenskan uppruna sinn til að skera sig úr fjöldanum í Bretlandi og búa til ákveðna ímynd. Sítt ljóst hárið og skandinavískt yfir- bragð skemmir ekki fyrir þegar maður þarf að koma sér á framfæri erlendis án þess að falla í fjöldann. Auk þess að leika í þáttunum og vinna sem fyr- irsæta á tónlistin hug hans allan en Fredrik spilar meðal annars á fiðlu og píanó. Hans draumur er að geta lifað á tónlistinni og segir að þátttaka sín í þáttunum sé einungis liður í að koma nafni sínu á framfæri. Hann hefur nú stofnað hljómsveitina Loki ásamt mági sínum, Bjarna Biering Margeirssyni, en planið er að gefa út tónlist á næsta ári. Hægt er að fylgjast með framvindu hjómsveitarinnar á samskiptasíðunni Twitter (@fredrikferrier og @bjarnibm). „Við erum þegar komnir með fjögur lög og erum að vinna í meira efni. Tón- list okkar svipar til Massive Attack og Jamie Woon en ég er mikill aðdáandi þeirra sveita. Einnig uppgötvaði ég Gus Gus um daginn en þau eru mjög góð. Ég sá einmitt söngkonuna á vappi í miðborginni um daginn,“ segir Fre- drik og vísar þar í Urði Hákonardóttur. En getur Ferrier hugsað sér að búa á Íslandi, eins og systir hans, í fram- tíðinni? „Nei, ég hugsa ekki. Ísland fyrir mér er staður sem ég get farið til og slappað af. Ég á bara góðar minning- ar frá landinu og ég vil ekki eyðileggja þá mynd með því að búa hérna, en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.“ ✽ m yn da al bú m iðDON ttunum á eftir að fylgja manni alla ævi. Margir úr m Made in Chelsea. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SPEGILL, SPEGILL, HERM ÞÚ MÉR … GUERLAIN KYNNIR: Parabenfrír Vor „lookið“ 2012 frá GUERLAIN er komið í verslanir. Í eftirfarandi verslunum fást GUERLAIN snyrtivörur: i ✽✽ Fjögurra ára í Stavanger í Noregi. Auglýsingaplakat fyrstu seríu Made in Chelsea. Á Skólavörðuholti við Ha llgrímskirkju á gamlárskvöld ásamt vin i sínum, Adam Waise, og mági sínum, B jarna Biering Margeirssyni. Við Skógarfoss í byrjun janúar 2012.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.