Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 24
4 föstudagur 13. janúar faðir hans vinnur hjá Maersk þann- ig að fjölskyldan er á víð og dreif um heiminn. „Ég hef mjög gaman af því að ferðast og upplifa nýja menningar- heima. Ég sé hvað það gefur mér í dag að hafa flutt mikið milli landa í æsku. Ég finn að ég hef meiri skiln- ing á menningu annarra landa en til dæmis vinir mínir,“ segir Fredrik en fjölskyldan hefur meðal annars búið í Stavanger í Noregi og Damaskus í Sýrlandi. Sjálfur hefur Fredrik bæði búið í New York og í Mílanó. LEIKINN RAUNVERULEIKI Raunveruleikaþættir hafa skotið föst- um rótum í sjónvarpsmenningunni síðustu ár og uppgangurinn hefur verið mikill, sérstaklega í Bretlandi. Raunveruleikastjörnur verða fræg- ar á einni nóttu og Fredrik segir að það hafi verið skrýtið að venjast því í fyrstu. „Að vera beðinn um eigin- handaráritun úti á götu og fá aðdá- endabréf er skrýtið en skemmtilegt. Að fá boðskort á frumsýningu og veita viðtal með Tom Hanks við hliðina á sér er hins vegar sérkennilegt,“ segir Fredrik og viðurkennir að það hafi komið honum spánskt fyrir sjónir þegar fjölmiðlar við rauða dregilinn á einni frumsýningunni tóku við hann viðtal þegar það var fullt af frægu fólki, meðal annars Tom Hanks, allt í kringum hann. „Ég er bara strák- ur sem er með í raunveruleikaþætti og finnst ég kannski ekki eiga skilið svona mikla athygli.“ Þættirnir Made in Chelsea eru með vinsælustu þáttum Bretlands og sería þrjú að fara í tökur á næstu dögum. Þættirnir hafa verið seldir til Ástral- íu og hugsanlega er innrás á Banda- ríkjamarkað í bígerð. „Það væri virki- lega gaman og klárlega markmiðið að komast að í Bandaríkjunum en ég er ennþá að hugsa hvort ég vilji vera með í næstu seríu eða segja þetta gott núna og snúa mér að öðru. Það kemur í ljós.“ Þættirnir fjalla um vinahóp úr ríkramannahverfinu Chelsea í Lund- únum þar sem hraðskreiðir bílar, kampavín og kokteilpartí eru hluti af hversdeginum. Krakkarnir í þátt- unum eru vinir í alvörunni en það er nokkurn veginn það eina í þáttun- um sem á sér stoð í raunveruleikan- um. Þættirnir falla í flokkinn„Script- ed reality show“ eða leiknir raunveru- leikaþættir. „Þetta er frekar sérkennilegt því við erum ekki leikarar og ekki í hlut- verkum í þáttunum en vinnum samt eftir handriti og þurfum oft að end- urtaka atriðin oft og mörgum sinn- um. Ég man að fyrst fannst mér mjög erfitt að vera eðlilegur í kring- um myndavélina og það tók langan tíma að ná eðlilegu flæði í samtölun- um en núna er ég orðinn vanur því að ganga úti á götu með myndavélina mér við hlið. Það skiptir líka ennþá meira máli að koma vel fyrir þegar maður er að „leika“ sjálfan sig og það sem maður gerir í þáttunum á eftir að fylgja manni alla ævi. Margir úr þáttunum hafa þannig stigið feilspor sem þeir eiga eftir að sjá eftir,“ segi Fredrik en framleiðendur þáttann hafa mikil áhrif á framvindu mál og eiga það til að ýta undir dramatí milli þátttakenda. „Það er allt gert til að búa til got sjónvarp. Ég byrjaði að sjá í gegnum þetta í annarri seríunni og hef dreg ið mig aðeins til baka vegna þessa. byrjun hverrar seríu erum við tekin á fund með framleiðendum þar sem ástamál okkar og önnur persónule mál eru krufin og athugað hvort hæg sé að nota í þáttunum. Í síðustu seríu var ég til dæmis á föstu með stelpu sem fékk fyrir vikið aukahlutverk.“ FRÆGÐINNI FYLGJA FRÍÐINDI Fredrik fær borgað fyrir þættina o viðurkennir að launin séu góð. Þa að vera þekkt andlit í Bretlandi hefu einnig ýmiss konar tækifæri og fríð indi í för með sér. Fataframleiðend ur senda honum fatnað og hann fæ boðskort á alls konar viðburði o frumsýningar í London. „Það skrýtnasta sem fylgir því a vera þekkt andlit í Bretlandi fanns mér hið svokallaða PA eða Publi Apperance, eins og það er kallað. Þ borga næturklúbbar þér fyrir að kom og láta sjá þig á staðnum. Hringja sv í fjölmiðla sem koma og taka myn af því þegar maður mætir, oftast í bí frá skemmtistaðnum og blandar geð Í byrjun ársins 2011 gjörbreyttist líf hins hálfíslenska háskólanema Fredriks Kristjáns Jónssonar Ferrier. Hann ákvað ásamt vinum sínum að taka þátt í raunveruleikaþáttaröðinni Made in Chelsea sem sló í gegn í Bretlandi og Fredrik gengur nú rauða dregla og opnar heimili sitt fyrir blöðum á borð við Hello! Viðtal: Álfrún Pálsdóttir Myndir: Valgarður Gíslason Á RAUÐUM DREGLI Í LOND É g hugsaði mig vel og lengi um áður en ég ákvað að taka þátt. Velti fyrir mér kost- um og göllum þess að fara í sjónvarpið og að lokum voru kostirnir fleiri. Foreldrar mínir voru ekki beint sáttir fyrst og skildu ekki hvernig þáttur á borð við þennan gæti verið ein- hverjum til framdráttar en nú eru þau sátt. Ég hef farið varlega og hugsa vandlega um hvernig ég kem fyrir í sjónvarpinu. Þetta verð- ur á feril skránni minni alla ævi og þá er eins gott að vera meðvitað- ur,“ segir Fredrik og bætir við að það sé auðvelt að láta glepjast af glamúrnum sem fylgir því að vera sjónvarpsstjarna. „Ég á sem betur fer góða fjölskyldu sem heldur mér niðri á jörðinni.“ SJALDSÉÐ KYRRÐ Á ÍSLANDI Fredrik eyddi áramótunum á Ís- landi en eldri systir hans, Char- lotte Ólöf, er búsett hér á landi ásamt íslenskum eiginmanni. Honum finnst gott að koma til Ís- lands og kúpla sig út úr erilsama lífinu í London. Hann reynir að koma að minnsta kosti einu sinni á ári og finnst mikilvægt að kom- ast í tæri við náttúruna. „Það er alltaf gott að koma hing- að og anda að sér hreinu lofti, vera í friði og upplifa náttúruna sem er einstök á Íslandi. Það er einhver sjaldséð kyrrð hérna sem erfitt er að finna annars staðar,“ segir Fredrik sem einnig var mjög upp með sér að fá að upplifa allan þennan snjó í Reykjavík. „Ég frétti að þetta væri mesti snjór á þess- um árstíma í mörg ár, sem er mjög gaman. Svo sá ég líka norðurljósin, sem eru líklega daglegt brauð fyrir þig, en ótrúlega magnað fyrir mig.“ Gamlárskvöldi var eytt á Skóla- vörðuholtinu þar sem sprengju- æði Íslendinga kom útlendingn- um skemmtilega á óvart og mikil ánægja var með kvöldið. Næturlíf miðborgarinnar var einnig kann- að í ferðinni en Fredrik skemmti sér einna helst á Prikinu. „Það var frábært að sjá ljósakrónurnar byrja að sveiflast þegar líða tók á nótt- ina. Frábær stemning.“ Faðir þeirra Charlotte heitir Jón Arthur og er Íslendingur og móðir hans ensk en Fredrik hefur aldrei búið á Íslandi. Faðir hans starfar í olíugeiranum sem gerir það að verkum að fjölskyldan hefur búið á ýmsum stöðum í heiminum gegn- um tíðina og talar Fredrik meðal annars ensku, spænsku og arab- ísku. Núna eru foreldrar hans bú- settir í Kaupmannahöfn þar sem Erfitt að leika sjálfan sig „Það skiptir ennþá meira máli að koma vel fyrir þegar maður er að „leika“ sjálfan sig og það sem maður gerir í þát þáttunum hafa stigið þannig feilspor sem þau eiga eftir að sjá eftir,“ segir Fredrik Kristján Jónsson Ferrier um leik sinn í raunveruleikaþáttunum SALON REYK JAVÍK = VERTU VELKOMIN SALON REYKJAVÍK GRANDAGARÐUR 5 1 0 1 R E Y K J A V Í K SÍMI : 56 85 305 O P N U N A R T Í M A R VIRKA DAGA: 9 - 18 LAUGARDAGA 9 - 13 SALON REYKJAVÍK BÝÐUR UPP Á NÝJA NATURA KERATIN SLÉTTUNARMEÐFERÐ SEM GEFUR MJÚKT, SLÉTT, HEILBRIGÐT, FALLEGT OG GLANSANDI HÁR. Þetta er frekar sérkennilegt því við erum ekki leikarar og ekki í hlutverkum í þáttunum en vinnum samt eftir handriti og þurfum oft að endurtaka atriðin oft og mörgum sinnum.”

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.