Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 13. janúar 2012 17 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að nýjar reglur um hverfaforgang í framhaldsskólum gangi ekki upp. Lagaheimild hafi skort, regl- urnar hafi ekki verið settar með reglugerð heldur með bréfaskrift- um og birtingu þeirra hafi verið ábótavant. Hæpið sé að stjórnar- skráin heimili slíka takmörkun á aðgengi til náms. Ráðuneytið fær, með öðrum orðum, falleinkunn. Umröðun fjölgar ekki sætum Rifjum aðeins upp forsöguna. Í kjölfar afnáms samræmdra prófa í tíunda bekk, nýrra fram- haldsskólalaga og töluverðrar aðsóknar eldri nemenda í fram- haldsskólamenntun í tengslum við aukið atvinnuleysi sköpuðust vandræði með innritun í fram- haldsskóla fyrir tæpum þremur árum. Sumir fengu hvergi inni. Eldri nemendur áttu erfitt með að fá skólavist. Þessu átti að redda með setningu hverfakvóta. Rökin væru þau að þannig ætti að tryggja öllum nemendum aðgang að einhverjum skóla. Frá sjónarhóli einfaldrar talningar- fræði gengur þessi röksemda- færsla auðvitað ekki upp. Ef það eru fleiri farþegar í strætó en sætin skiptir ekki máli í hvaða röð fólkið er látið setjast, það munu alltaf jafnmargir þurfa að standa. Þetta er stundum kallað „varðveislulögmál“. Það er hægt að athuga hvenær barn uppgötvar varðveislulögmálið, til dæmis með því að hella úr tveim- ur jafnstórum kókómjólkurfern- um í tvö misbreið glös, og spyrja barnið hvort glasið innihaldi meira. Einhvers staðar í kringum sjö ára aldur átta börn sig á því að bæði glösin innihalda jafnmik- ið af kókómjólk. Lögun ílátsins breyti engu um magnið. Eflaust má kalla það mein- fyndni að ýja að því að mennta- málaráðherra hafi ekki náð þroska sjö ára barns, og eflaust er það hárrétt að um ódýrt skot sé að ræða. Hins vegar stendur eftir að hvorki í viðtölum við ráð- herra, eða opinberum skýringum ráðuneytisins er að finna nokkra skýringu á því að hverfaforgang- urinn hafi breytt nokkru um það eðli vandans, þ.e. að sætin voru of fá, þótt hann kynni að hafa gert verkefni menntamálaráðu- neytisins ögn meðfærilegra. Nú er ekki þar með sagt að landfræðilegur forgangur eigi aldrei rétt á sér. Það getur talist málefnalegt að veita heima- mönnum forgang í skóla í hér- aðinu, ef það á að hindra að 16 ára ungmenni þurfi að flytja langar vegalengdir til að sækja sér nám. En það er ekki mannréttindabrot að menn þurfi hugsanlega að taka strætó í skólann. Fjölþætt lögbrot ráðherra Ráðherrar þurfa að fara að lögum. Í gildi eru lög um fram- haldsskóla. Þar er ekkert fjallað um hverfaforgang. Í gildi er reglugerð um innritun í fram- haldsskóla. Þar er ekki held- ur fjallað um hverfaforgang, fyrsta val, annað val, einhver 40%, eða neitt þessu líkt. Sá sem læsi reglugerðina fengi allt aðra mynd af innrituninni en raun- in varð. Það er í raun óskiljan- legt að Katrín Jakobsdóttir hafi í það minnsta ekki kosið að breyta reglugerðinni þegar hún ákvað að breyta fyrirkomulaginu. Nei, nýja innritunarfyrir- komulagið var kynnt á heima- síðu ráðuneytisins, og í bréfi til skólastjórn enda. Lagalegur grundvöllur fyrirkomulagsins átti að felast í gerð skólasamn- inga við einstaka skóla, og þar yrði fjallað um að nemendur ákveðinna grunnskóla ættu að fá forgang. Þegar umboðsmað- ur Alþingis leitaði eftir slíkum skólasamningum á þeim tíma árs 2010 sem innritunin stóð yfir kom í ljós að þeir höfðu ekki enn verið undirritaðir. Í lok sumars hafði verið lokið við gerð helmings þeirra. Það lítur sem sagt út fyrir að innritun heils skólaárs hafi farið fram þvert á gildandi lög, þvert á gildandi reglur en á grundvelli bréfaskrifta við skólastjórnend- ur og ógerðra skólasamninga. Hvernig mögulega getur það tal- ist ásættanleg stjórnsýsla? Virðum valfrelsi ungs fólks Þann 16. júlí 2010 benti ég, í Fréttablaðsgrein, á að umrætt fyrir komulag innritunar í fram- haldsskóla væri ólöglegt. Nú liggur fyrir álit Umboðsmanns Alþingis um að svo sé sannarlega. Það er gott. Því ber sérstaklega að fagna að til sé fólk sem hafi ákveðið að láta þessa vitleysu ekki yfir sig ganga. Þeim ber að þakka þessa baráttu. Ungt fólk á að vera metið á grundvelli eigin verðleika en ekki á grundvelli þess hvar for- eldrar þeirra hafa kosið að búa. Stjórnmálamenn sem eru á annarri skoðun ættu að hugsa sinn gang. Farsæll dauði hverfaforgangs Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök en ekki opin- ber stofnun. Það er mikilvægt að hnykkja á þessu því algengt er að fólk geri kröfur til samtakanna rétt eins og þau séu opinber eftir- litsstofnun sem getur kallað eftir gögnum eða sektað verslanir sem grunaðar eru um brot á reglum. Þá kemur mörgum utanfélagsmönnum á óvart að hafa ekki fullan aðgang að lögfræðiráðgjöf eða annarri þjónustu samtakanna. Þótt Neyt- endasamtökin eigi allt sitt undir félagsmönnum vinna þau að öflugri hagsmunagæslu fyrir alla neyt- endur í landinu. Það njóta því allir góðs af því starfi sem félagsmenn standa undir með árgjaldi sínu. Á næsta ári eru 60 ár frá stofn- un Neytendasamtakanna sem eru ein af elstu samtökum neytenda í heiminum. Bágborinn réttur neyt- enda á tímum einokunar og hafta á þessum árum var sennilega hvatinn hjá stofnendum samtak- anna sem reyndar voru víðsýn- ir og þekktu vel til markaðsað- stæðna í öðrum löndum. Í dag er ekki síður mikilvægt að hafa öflug hagsmunasamtök neytenda þegar aðferðirnar og tæknin til að seilast í buddu neytenda tekur sífellt á sig nýja mynd. Félagsmenn Neytendasamtak- anna voru þegar best lét um 22.000 en hefur farið fækkandi og eru nú um 9.500 talsins. Neytendasamtök- in hafa allt frá stofnun rekið neyt- endaaðstoð sem er opin fyrir alla, en ekki bara félagsmenn. Stjórn- völd hafa gert þjónustusamning við Neytendasamtökin og auk almennrar aðstoðar við neytend- ur sjá þau um hýsingu úrskurðar- nefnda og aðstoð fyrir neytendur á innri markaði EES-svæðisins. Fyrir þessa þjónustu fá samtökin 8,5 millj. frá stjórnvöldum. Sú upp- hæð hefur haldist óbreytt frá 2009 en það ár var upphæðin lækkuð úr 12 millj. eða um 30%. Það verður að viðurkennast að stór hluti starfs samtakanna fer í að uppfylla þennan þjónustusamn- ing og sú upphæð sem Neytenda- samtökin leggja sjálf í þessa þjón- ustu hækkar ár frá ári. Þjónustan hefur nefnilega haldist óbreytt þó stjórnvöld leggi fram sífellt lægri upphæð til að leiðbeina og aðstoða almenning í neytendamálum. En samtökin hafa sýnt stjórnvöldum skilning vegna bágrar stöðu ríkis- kassans. Styrkur samtakanna felst í fjölda félagsmanna og því fleiri félagsmenn sem eru í samtökunum þeim mun sterkari eru þau. Kvart- anir og ábendingar sem berast til samtakanna eru teknar alvarlega og málum fylgt eftir. Fyrirtækj- um berast daglega erindi frá Neyt- endasamtökunum þar sem þau eru krafin svara vegna ábendinga sem félagsmenn senda eða hringja inn. Þannig verður aðhald á markaðn- um og kemur öllum til góða. Bar- átta fyrir úrbótum í reglugerðum og lögum er stór hluti af starfinu ásamt ýmsum rannsóknum og miðlun upplýsinga til neytenda. Þessi hluti starfsins þjónar öllum almenningi ekki bara félagsmönn- um. En hvað fá þá félagsmenn til viðbótar? Félagsmenn fá aðgang að heim- ilisbókhaldi samtakanna, þeir fá Neytendablaðið fjórum sinnum á ári og milligöngu Neytendasam- takanna í kvörtunarmálum. Þeir hafa aðgang að gæðakönnunum og verðkönnunum og auk þess geta þeir fengið mælitæki lánað heim til að mæla rafmagnsnotkun heim- ilistækja sinna. Árgjaldið er 4.950 kr. og með hverjum nýjum félags- manni er samtökunum gert kleift að veita markaðinum meira aðhald öllum neytendum til hagsbóta. Hagsmunasamtök en ekki stofnun Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG landsbankinn.is 410 4040Landsbankinn jl .i s *Nafnávöxtun 30.12.2010–30.12.2011. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að fi nna á landsvaki.is. Fyrirvari: Sparibréf verðtryggð er verðbréfasjóður sam- kvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur e irliti Fjármála- e irlitsins. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt  árfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vís- bendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má fi nna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á landsvaki. is eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsinguna áður en  árfest er í sjóðnum, en þar er meðal annars ítarleg um öllun um  árfestingar- stefnu sjóðsins og áhættu sem felst í  árfestingu í honum. Landsbankinn býður upp á  öl- breytt úrval ríkis skulda bréfa sjóða. Sparibréf verðtryggð er sjóður sem  árfestir í verðtryggðum skuldabréf- um íslenska ríkisins og hefur það markmið að endurspegla ávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa. Reglubundinn sparnaður Með reglubundnum sparnaði í sjóðum getur þú byggt upp eigna- safn með áskri frá 5.000 kr. á mánuði. Enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskri . Sparnað í sjóðum má alltaf innleysa. Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4040 eða sendu okkur póst á  armalaradgjof@landsbankinn.is. Framúrskarandi ávöxtun Sparibréfa verðtryggðra á árinu 2011 16,3% Ársávöxtun 2011* Neytendur Þuríður Hjartardóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.