Fréttablaðið - 06.02.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 06.02.2012, Síða 8
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR8 NÝ SKÝRSLA UM STARFSEMI LÍFEYRISSJÓÐANNA Í AÐDRAGANDA HRUNSINS Lífeyrissjóðirnir eru nánast það eina sem stendur upp úr í þessu samfélagi eftir hrunið,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Landsamtaka lífeyris- sjóða, sem kveðst fagna útkomu skýrslu úttektarnefndar á starf- semi og umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda hrunsins Úttektarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að heildartap íslensku lífeyrissjóðanna hafi verið tæpir 480 milljarðar króna frá því í árs- byrjun 2008. Arnar bendir á að sjóðirnir sjálfir hafa gefið út að tapið væri á bilinu 360 til 380 millj- arðar en þá miðað við 30. septem- ber, eða nokkrum dögum fyrir hrunið. Þeirra áætlun rými vel við niðurstöðu úttektarnefndarinnar því eignir sjóðanna hafi rýrnað um 95 milljarða króna fyrstu níu mán- uði ársins 2008. Að sögn Arnars munu lífeyris- sjóðirnir á næstu vikum fara yfir úttektina. „Menn þurfa að læra af þeim mistökum sem kunna að hafa verið gerð,“ segir Arnar sem kveð- ur ýmsar breytingar þegar hafa verið gerðar. Það eigi meðal ann- ars við um boðsferðir og kynnis- ferðir sem gagnrýndar hafi verið á árinu 2008 og 2009. „Það var tekið á því strax og þeir sem ekki voru komnir með slíkar reglur settu þær.“ Heimildir rýmkaðar Í kjölfar hrunsins hafa heimild- ir lífeyrissjóðanna til fjárfest- inga verið rýmkaðar og þeim breytt. Arnar segir enda fátt um kosti fyrir sjóðina miðað við áður. „Gjaldeyrishöftin vega auðvitað þyngst. Hlutabréfamarkaðurinn hrundi,“ segir formaðurinn og telur upp þá fjárfestingarmögu- leika sem nú séu fyrir hendi. Meðal þeirra eru ríkisskuldabréf, sjóðfélagalán og bankareikningar. Vegna gjaldeyrishaftanna sé ekki hægt að fara í nýjar erlendar fjár- festingar þótt þeim sem fyrir voru sé viðhaldið. Þá hafi sjóðirnir sett tæpa 40 milljarða í Framtakssjóð- inn. Fé hefur til dæmis verið fest í Högum og HS orku. Úttektarnefndin hefur efa- semdir um að sú heimild sem líf- eyrissjóðirnir hafa fengið til að stofna fasteignafélög standist lög um lífeyrissjóði. Arnar segir ekki hafa reynt á þetta ennþá. „Því er ekki að neita að menn hafa verið að skoða hvort það væri yfirleitt möguleiki að sjóðirnir myndu með öðrum stofna fasteignafélög og byggja hagkvæmt til útleigu. Mér finnst eðlilegt að þetta verði skoð- að,“ segir hann. Einn meginþráðurinn í skýrslu úttektarnefndarinnar er gagn- rýni á sjóðina fyrir að hafa ekki kynnt sér fjárfestingar sínar nógu gaumgæfilega. „Menn hafa kannski verið að fá kynningar frá bönkum og verðbréfafyrirtækjum á fjárfestingarkostum, bæði varð- andi skuldabréf og jafnvel hluta- bréf. Hlutabréf voru á markaði og þá voru ársreikningar og árs- hlutareikningar og úttektir frá virtum endurskoðendum lögð til grundvallar,“ segir Arnar sem hins vegar tekur undir gagnrýni á skuldabréfaútboð fyrirtækja. Hann nefnir dæmi sem tekið er í skýrslunni og er um fyrirtækið Bakkavör. „Það er útboð hér á landi og það eru erlendar eignir og rekst- ur undir. Þetta er allt uppáskrif- að. Svo kemur í ljós að eignir sem voru lítt veðsettar erlendis eru veðsettar eftir á og án þess að þeir sem áttu skuldabréfin hér á landi vissu. Þetta var auðvitað mjög slæmt mál,“ segir Arnar. Þótt ekkert hafi verið að kynningu á því skuldabréfaútboði hafi menn þó átt að setja í skilmála að slíkt mætti ekki gerast. „Ég er ekki endilega viss um að menn hafi verið að skoða erlend veðbókavottorð á þessum tíma vegna þess að þessi bréf voru kannski skráð í kauphöllinni og undir eftirliti og fyrirtækin undir eftirliti endurskoðenda. Síðan þegar allt fór á versta veg kom í ljós að þessar eignir voru kannski veðsettar þótt menn teldu þær lítt veðsettar.“ Aðspurður segir Arnar lítið hafa reynt á breytt verklag að þessu leyti einfaldlega vegna þess að lítið sem ekkert sé á boðstólum af fyrirtækjaskuldabréfum. „En menn eru auðvitað miklu gagn- rýnni á fyrirtækjaskuldabréf en áður. Það er einn af þessum lær- dómum sem menn drógu strax af hruninu.“ Þá segir Arnar að hafa verði í huga að þótt íslenskir lífeyrissjóð- ir hafi tapað um fimmtungi eigna sinna við hrunið gildi það sama hlutfall fyrir lífeyrissjóði í Vestur- Evrópu og jafnvel Bandaríkjunum. Ekki kom margt á óvart Arnar segir ekki margt koma á óvart í skýrslu úttektarnefnd- arinnar. „Auðvitað kom á óvart þegar allt er lagt saman hvað Kaupþing, Exista og Skipti og allt saman er stórt hlutfall af eigna- rýrnuninni. Og á vissan hátt með Baug en þó ekki eins því maður vissi að sjóðirnir voru víða,“ segir hann og minnir á með neyðarlög- unum hafi skuldabréfin verið sett fyrir aftan innlán. „Þeir sem voru að kaupa skuldabréf í þessum fyr- irtækjum, hvort sem það voru bankar eða annað, voru auðvitað í góðri trú.“ Að sögn Arnar er stóra verk- efnið núna að fara vel í gegnum mál lífeyrisjóðanna. Eins og hann segir hér fyrr séu sjóðirnir nán- ast það eina sem stendur upp úr í samfélaginu eftir hrunið. Ríkis- sjóður fór mjög illa, Seðlabank- inn fór gríðarlega illa, allar fjár- málastofnanir, öll stórfyrirtæki og heimilin fóru illa. Þannig að það urðu nánast allir fyrir miklu höggi en sem betur fer standa lífeyris- sjóðirnir þó þetta keikir á eftir þótt þeir hafi orðið fyrir miklu áfalli. gar@frettabladid.is Lífeyrissjóðir nánast það eina sem stendur Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að flest sem kemur fram í úttekt á starfsemi sjóðanna hafi verið vitað. Þó komi á óvart hve stór hlutur Exista-samsteypunnar hafi verið í tapi sjóðanna. Helgi Magn- ússon,formað- ur stjór na r Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, segir tjón lífeyris- sjóðanna við hrunið auð - vitað tilfinn- anlegt. Mikil- vægt sé hins vegar að miða við tímann frá hruni. Þá sé heildarrýrnunin um 380 millj- arðar króna en ekki 480 millj- arðar. „Lífeyrisjóðirnir fengu högg sem nam einum fimmta af eign- um en þeir stóðu samt af sér hrunið og eru að eflast á nýjan leik. Til samanburðar er nauð- synlegt að hafa í huga að aðrar helstu fjármálastofnanir lands- ins hrundu til grunna í hruninu,“ segir Helgi. Þá segir Helgi að setja þurfi málið í samhengi við það sem gerðist erlendis þar sem eignir sjóða rýrnuðu einnig þótt þar hafi ekki orðið viðlíka hrun. Í því ljósi sé ekki óeðlilegt þótt íslensku sjóðirnir hafi orðið fyrir áfalli. Margháttaðar breytingar hafi verið gerðar eftir hrun og skerpt á reglum.“ Að sögn Helga er í skýrslu úttektarnefndarinnar ýmsar ábendingar sem lífeyrissjóðirn- ir hljóti að þurfa að taka mið af. Spurður um gagnrýni í úttekt- i n n i seg i r hann að hafa þurfi í huga að lífeyris- sjóðirnir hafi staðið hrunið af sér betur e n f le s t i r aðrir. „Auðvitað þurfum við að hafa í huga ábendingar og athugasemdir. Sumu af því er maður sam- mála en annað er með þeim hætti að maður mótmælir,“ segir Helgi og boðar rökstuddar athuga- semdir á næstunni. „Við mótmælum því að við höfum ekki kynnt okkur málin nógu vel,“ segir Helgi sem kveð- ur stjórn Lífeyrissjóðs verzlun- armanna fylgjast mjög náið með fjárfestingum. „Við erum ekki sammála þessari gagnrýni hvað okkar sjóð varðar.“ Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gildis lífeyris- sjóðs, segir margar gagnlegar ábendingar í skýrslu úttektar- nefndarinnar. „Það sem við höfum verið að gera frá hruni er að efla eign- astýringuna og áhættustýr- inguna og síðan verkferla og formlegheit öll sem réttilega var bent á af nefndinni að þurfti að bæta. Ég tek undir að það vant- aði upp á formlegheitin; að skrá niður og slíkt,“ segir Árni. - gar Formaður lífeyrissjóðs ósammála sumu í úttekt: Mótmælir því að hafa fjárfest án rannsóknar ARNAR SIGURMUNDSSON Formaður Landsamtaka lífeyrissjóða segir að draga verði lærdóma af skýrslu um starfssemi sjóðanna.ÁRNI GUÐMUNDSSON HELGI MAGNÚSSON Þetta er allt uppá- skrifað en svo kemur í ljós að eignir sem voru lítt veðsettar erlendis eru veðsettar eftir á og án þess að þeir sem áttu skuldabréfin hér á landi vissu. KOLI OG HVÍTT – 5900 kr. FORRÉTTUR PARMASKINKA , GLÓÐAÐ BRAUÐ OG GEITAOSTASÓSA AÐALRÉTTUR PÖNNUSTEIKTUR KOLI, FENNEL , MASCARPONE, BYGG OG PERUSÓSA EFTIRRÉTTUR SÚKKULAÐI, KARAMELLA, MJÓLK OG LAKKRÍS Kolabrautin er á 4ðu hæð Hörpu Borðapantanir 519 9700 info@kolabrautin.is w w w.kolabrautin.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.