Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 6. febrúar 2012 11 S B 30057 12/2011 Panodil Zapp (parasetamól, 500 mg). Ábendingar: Höfuðverkur, tannverkur, hiti sem fylgir kvefi, tíðaverkir, vöðva- og liðverkir, verkjastillandi við gigtarverkjum, hár hiti. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1 2 töflur á 4 6 klst. fresti, að hámarki 8 töflur á sólarhring. Börn 10-15 mg/kg líkamsþyngdar á 4 6 klst. fresti, að hámarki 4 sinnum/sólarhring. Gæta skal varúðar ef um skerta nýrnastarfsemi og lifrarsjúkdóm er að ræða. Skal ekki notað með öðrum verkjalyfjum sem innihalda parasetamól (t.d. samsettum lyfjum). Hærri skammtar en ráðlagðir eru geta valdið hættu á mjög alvarlegum lifrarskemmdum. Aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar: Almennar: Ofnæmisviðbrögð. Útbrot, ofsakláði, ofsabjúgur. Lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir af völdum parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis. Við langtímanotkun er ekki hægt að útiloka hættuna á nýrnaskemmdum. Pakkning: Filmuhúðaðar töflur 500 mg, 20 stk.. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli lyfsins. Nánari upplýsingar eru á http://www.serlyfjaskra.is. Panodil er skrásett vörumerki GlaxoSmithKline fyrirtækjasamstæðunnar. HRAÐVIRK LINUN SÁRSAUKA. KRÖFTUG HITALÆKKANDI OG VERKJASTILLANDI ÁHRIF. Panodil Zapp frásogast helmingi hraðar en venjulegar parasetamól töflur, þannig næst hratt sú vel þekkta og öfluga verkjastilling sem þú getur treyst. en venjulegar parasetamól töflur HEILSA Mishár blóðþrýstingur í handleggjum fólks getur verið merki um sjúkdóma í æða- kerfinu samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var við Exeter-háskóla í Bretlandi. Samkvæmt stöðluðum leiðbeiningum um hvernig skuli mæla blóðþrýsting er lagt upp með að hann sé alltaf mældur í báðum hand- leggjum til að fá sem réttasta niðurstöðu, en það er ekki alltaf gert. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mik- ill munur getur verið á blóðþrýstingi milli handleggja. Það getur verið vísbending um sjúkdóma sem gætu blundað einkennislaust í fólki. Helst er um að ræða sjúkdóm í æða- kerfinu, en mismunurinn getur þó einnig þýtt aukna hættu á hjartasjúkdómum og verið merki um aukna hættu á dauða almennt, af ýmsum orsökum. Dr. Christopher Clark, sem stýrði rannsókn- inni, segir þessa uppgötvun jákvæða þar sem oft skipti miklu máli að sjúkdómar af þessu tagi séu uppgötvaðir snemma svo hægt sé að bregðast við þeim, sérstaklega ef þeir eru að öðru leyti einkennalausir. Richard J. McManus, prófessor við Háskól- ann í Oxford, og Jonathan Mant, prófessor við Háskólann í Cambridge, segja rannsóknina styðja við núverandi þekkingu og viðmið. Frekari rannsókna sé þó þörf áður en hægt sé að skera úr um hversu áreiðanlegar upplýs- ingar mismunurinn gefi okkur í raun og veru. - trs Mishár blóðþrýstingur í handleggjum getur verið merki um sjúkdóma í æðakerfinu: Handleggirnir geta sagt til um sjúkdóma ÞRÝSTINGUR Samkvæmt verklagsreglum á að mæla blóðþrýsting í báðum handleggjum. Það virðist mikil- vægara en áður í ljósi nýrrar niðurstöðu vísindamanna. MEXÍKÓ, AP Allir 2.500 lögreglu- mennirnir í landamæraborginni Ciudad Juarez í Mexíkó hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna hótana frá glæpahópum. Lögreglan í borginni hefur náð ágætis árangri í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi undanfarið, undir stjórn nýs lög- reglustjóra. Fimm lögreglumenn hafa verið drepnir síðustu daga eftir að glæpahópur hét því að drepa einn lögreglumann á dag þar til lög- reglustjórinn segði af sér. 8.900 hafa látið lífið í borginni frá árinu 2008 vegna glæpa sem tengjast eiturlyfjaklíkunum. - þj Glæpaklíkur í Mexíkó: Löggur flytja vegna hótana Á VETTVANGI MORÐS Lögreglustjórinn í Ciudad Juarez, Julian Leyzaola, sést hér á vettvangi þar sem einn af mönnum hans var myrtur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Tæplega þrítugur karlmaður neitaði að yfirgefa fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt. Maðurinn hafði fyrr um nótt- ina verið handtekinn eftir að hafa lent í átökum við dyraverði á árshátíð í austurborginni. Að sögn lögreglu neitaði mað- urinn að segja til nafns en við leit fundust á honum skilríki. Skömmu síðar kom eiginkona mannsins til þess að sækja hann. Þá neitaði maðurinn með öllu að yfirgefa fangaklefann. Var honum því leyft að gista og stóð til að gera aðra tilraun til að sleppa honum í gærmorgun. - aþ Handtekinn á árshátíð: Neitaði að yfir- gefa fangaklefa Ósátt við slökkviliðsstjóra Stjórn Brunavarna A-Húnavatnssýslu segist líta það alvarlegum augum að Hilmar Frímannsson slökkviliðs- stjóri, sem sagði starfi sínu lausu, skuli tjá sig um málefni brunavarna í fjölmiðlum á „röngum forsendum“. Hilmar hafði sagst ekki geta tekið ábyrgð á því að það yrði einn á bakvakt á kvöldin. BRUNAVARNIR KÚBA Fídel Castro, fyrrverandi forseti Kúbu, kynnti útgáfu ævi- sögu sinnar um helgina. Castro, sem er 85 ára, hefur ekki komið fram opinberlega síðan í apríl á síðasta ári. Ævisaga hins aldna byltingar- leiðtoga verður engin smásmíði, rétt tæpar þúsund blaðsíður og verður gefin út í tveimur bind- um. Castro sagði á kynningarfund- inum að það væri skylda hvers Kúbumanns að berjast fyrir mannkynið, plánetuna og Kúbu. Fídel Castro situr við skriftir: Skrifar þúsund síðna ævisögu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.