Fréttablaðið - 06.02.2012, Side 16

Fréttablaðið - 06.02.2012, Side 16
16 6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR Nýverið birti Hagfræðistofn-un Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna varðandi almenna niðurfærslu lána sem nefnd er: „Greinargerð um afföll íbúðalána við stofnun nýju bankanna og kostnað við niður- færslu lána“. Strax er ljóst af lestri skýrsl- unnar að gríðarleg mistök voru gerð þegar lánasöfn föllnu bankanna voru flutt yfir í nýju bankana. Augljóst er að lána- söfnin voru verulega ofmetin og allt of dýru verði keypt. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, gerði sam- komulag við skýrsluhöfunda sem bundu hendur þeirra við að leggja heilstætt mat á kostnað og ábata af tillögum Hagsmuna- samtaka heimilanna. Undrun sætir að fræðimenn taki að sér slíkt verkefni í ljósi þeirra takmarkana sem Jóhanna Sig- urðardóttir hefur á þá sett. Tilgangur þess að setja slíka hlekki á skýrsluhöfunda er aug- ljóslega sá að koma í veg fyrir að þeir leggi heilstætt mat á væntanleg jákvæð áhrif tillagn- anna sem afsetja hinn beina kostnað. Ótrúlegt er að sjá hvernig þessi skýrsla er unnin, hroð- virknisleg og með bæði stað- reynda- og ályktanavillum. Höf- undar skýrslunnar gefa sér t.d. meira pláss í að fjalla um eigin vangaveltur um hvernig hafa má hendur í hári skattsvikara heldur en tillögur Hagsmuna- samtaka heimilanna í heild sinni. Einnig virðist Hagfræði- stofnun vera farin að leggja mat á lögfræðileg álitaefni sem stofnunin ætti að eftirláta öðrum að fást við enda er ekki annað að sjá en lögfræðiþekk- ingu skýrsluhöfunda sé veru- lega ábótavant. Til dæmis er nefnt í skýrslunni að ef geng- ið er á rétt kröfuhafa þá væri slíkt brot á jafnræðisreglu. Það er rangt, hið rétta er að slíkt gæti hugsanlega verið brot á eignarréttarákvæðum stjórn- arskrárinnar. Viðurkennt er að löggjafinn hefur heimild til að hnika til réttindum manna með ákveðnum hætti ef það er gert á málefnalegan hátt og látið jafnt yfir alla ganga, sérstak- lega ef aðstæður kalla á brýnar aðgerðir. Þetta er staðfest m.a. í nýlegum dómi Hæstaréttar í Neyðarlagamálinu svokallaða. Einnig má benda á að Mann- réttindadómstóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að eftirláta eigi aðildarríkjum verulegt svigrúm þegar kemur að eignarétti þó menn geti hver haft sína skoðun á því hve mikið svigrúmið á að vera. Ályktun skýrsluhöfunda um að ekki sé heimilt að ganga á hlut kröfuhafa er því einfald- lega ekki rétt. Við slíka óvissu hefði verið faglegt af skýrslu- höfundum að setja upp tvær sviðsmyndir, annars vegar þar sem heimilt væri að ganga á rétt kröfuhafa og hins vegar þar sem slíkt væri ekki talið heimilt og kostnaðurinn félli á ríkissjóð. Það var hins vegar ekki gert. Hagfræðistofnun horfir svo alfarið fram hjá þeirri stað- reynd að lánasöfn bankanna eru ekki í góðu ástandi í dag vegna mikilla vanskila. Niðurfærslu lánanna fylgir aukin greiðslu- geta sem einnig örvar hagkerf- ið í heild og er því til þess fallin að hafa jákvæð áhrif á það sem eftir stæði af eignum bankanna og gera þær verðmætari. Einn- ig er í skýrslunni horft framhjá því að hluti og jafnvel verulegur hluti hinnar hugsanlegu niður- færslu er sennilega hvort eð er tapað fé. Í ljósi þessara vankanta á skýrslunni verður hún ekki lögð til grundvallar. Nauðsynlegt er því að gera heilstæða rannsókn á tillögum Hagsmunasamtaka heimilanna sem taka alla þætti málsins til skoðunar áður en að niðurstöðu er hrapað. Annað væri óvirðing við þær þúsundir sem skrifað hafa undir áskorum samtakanna til stjórnvalda. Ótrúlegt er að sjá hvernig þessi skýrsla er unnin, hroð- virknisleg og með bæði staðreynda- og ályktana- villum. Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þetta mikil virðing og vinsemd, það fékk mig til að hugsa: „ […] Þau koma fram við mig eins og ég sé eðlileg. Eitthvað hræðilegt átti sér stað en ég fæ móttökur eins og ég sé eðlileg!“ Og smátt og smátt varð ég sjálfsöruggari og fannst ég ná stjórn að nýju.“ Ofangreind orð hefur Liz Kelly, prófessor við London Metropolitan University, eftir konu sem kærði mann fyrir nauðgun. Maðurinn var sýknaður en konan hafði engu að síður afar jákvæða upplifun af réttarkerfinu. Til samanburðar bendir Kelly á upplifun konu í máli þar sem sakborningur var fundinn sekur en konan var engu að síður niðurbrotin þegar málinu lauk vegna upplifunar af réttarkerfinu. Liz Kelly var meðal átta fyrir- lesara á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota sem innanríkis- ráðuneytið og Lagadeild Háskóla Íslands stóðu fyrir í samvinnu við Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni og Evrópuráðið föstudag 20. janúar sl. Um tvö hundruð manns tóku þátt í ráðstefnunni og þar á meðal voru fræðimenn, lögreglumenn, dómarar, saksóknarar, lögmenn, brotaþolar, starfsfólk barnavernd- ar og fulltrúar grasrótarsamtaka. Barnvinsamlegt réttarkerfi Í fyrsta hluta ráðstefnunnar var fjallað um sáttmála Evrópuráðs- ins um vernd barna gegn kyn- ferðislegri misneytingu og kyn- ferðislegri misnotkun. Einnig var fjallað um svonefndar barn- vinsamlegar réttarreglur. Mikið vatn hefur runnið til sjávar í meðferð kynferðisbrota gegn börnum. Réttarkerfið var vitan- lega ekki upphaflega þannig úr garði gert að því væri yfirleitt ætlað að taka á móti börnum en smám saman hefur það þróast til barnvinsamlegri vegar og er litið til Íslands sem fyrirmyndar í þeim efnum, ekki síst með til- komu Barnahúss. Réttarvernd barna hefur aukist á Íslandi og smám saman er verið að skapa farveg fyrir börn til að greina frá ofbeldi sem þau verða fyrir. Lokatakmarkið er þó enn fjarri en hvert skref í rétta átt er þýðingarmikið. Í öðrum hluta ráðstefnunnar var fjallað um meðferð nauðg- unarmála innan réttarkerfisins og kom þar meðal annars fram að lagabreytingar kunna að hafa takmörkuð áhrif til þess að auka réttarvernd brotaþola nauðg- ana ef viðhorfsbreyting fylgir ekki með. Viðhorf samfélagsins endurspeglist á öllum stigum meðferðar nauðgunarmála. Þann- ig sýna alþjóðlegar rannsóknir að mestar líkur eru á að sakfellt sé í nauðgunarmálum sem bera ein- kenni þeirrar staðalímynda sem ríkja um nauðganir, t.d. þar sem gerandinn er ókunnugur þoland- anum og/eða líkamlegu ofbeldi er beitt. Liz Kelly benti hins vegar á að nauðganir væru mun hvers- dagslegri en margir gerðu sér í hugarlund. Þær ættu sér oftast stað milli fólks sem þekkist og margfalt oftar en flestir vildu þora að trúa. Í þriðja hluta ráð- stefnunnar var boðið upp á þrjár málstofur þar sem fulltrúar fræðasamfélagsins, réttarvörslu- kerfisins og frjálsra félagasam- taka leiddu saman sjónarmið sín um meðferð kynferðisbrota. Þannig var fjallað um samspil barnaverndarkerfisins og réttar- vörslukerfisins, hvað leiði til ákæru í nauðgunarmálum og um trúverðugleika og sönnunarmat. Traust og bætt réttarvernd Kynferðisbrotamál eru mikil áskorun fyrir réttarkerfið – og samfélagið í heild sinni – hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Sé litið til tölfræðinnar hér á landi þá leita hundruð barna, kvenna og karla sér aðstoðar á ári hverju vegna kynferðisofbeldis. Hlut- fallslega hljóta fá mál meðferð fyrir dómstólum og má því færa rök fyrir því að réttarkerfið nái aðeins að litlum hluta utan um þessi brot. Með ráðstefnu sem þessari er reynt að varpa ljósi á það hvers vegna svo er. Hugsan- lega má með því móti finna leiðir til að auka réttarvernd brotaþola kynferðisofbeldis. Réttarvernd sakborninga er einnig meiri ef traust ríkir um meðferð brotanna innan réttarkerfisins og að hverju sinni sé grundvallarreglum stjórnarskrár og laga fylgt. Loks er afar mikilvægt að gerðar séu virkar ráðstafanir til að efla for- varnir með aukinni fræðslu og vitund um eðli þessara mála. Það hlýtur að vera markmið allra sem að þessum málum koma að upplifun brotaþola af því að leita réttar síns sé sambærileg því sem konan sem vitnað er til í upp- hafi þessarar greinar lýsir. Þann- ig má byggja upp traust um að allt sé gert til að leiða fram sann- leikann og þannig geta brotaþolar betur unnið úr reynslu sinni, hver sem niðurstaða málaferla er. Innanríkisráðuneytið og Laga- deild Háskóla Íslands munu halda áfram samstarfi til að stuðla að opinni, gagnrýnni og uppbyggi- legri umræðu um meðferð kyn- ferðisbrota innan réttarkerfis- ins og vilja þannig leggja sitt af mörkum til áframhaldandi vit- undarvakningar um kynferðis- legt ofbeldi í íslensku samfélagi. Ráðstefnan sem hér er vitnað til bar þess merki að ríkur vilji sé til slíks samtals en það eitt og sér er mikilvægur áfangi á langri vegferð. Áskorun réttarkerfis og samfélags Hún fæddist í Zeitun á Gaza-ströndinni og tilheyrir Sam- uni ættinni. Fyrir þremur árum fæddist þetta barn, saklaust, óaf- vitandi um aðstæðurnar sem hún fæddist í. Dagurinn var 8. janú- ar 2009 á 13. degi 22 daga árása Ísraelshers á Gaza. Sujud fædd- ist fyrir tímann. Þremur dögum fyrr, 5. janúar voru 29 nánir ætt- ingjar móður hennar, Nawal Sam- uni drepnir. Ísraelsher drap alls 48 meðlimi Samuni ættarinnar þennan dag. Sársaukinn er meitlaður í and- lit Nawal þegar hún lýsir þessu fyrir blaðamanni El Mundo, Rosa Meneses. Sársaukinn hverf- ur ekki við að segja frá honum. Hann dvelur áfram innra með hinni ungu móður sem var tvítug þegar hún fæddi Sujud, sársauki sem andlitið getur ekki falið. Ný innrás í undirbúningi? Er nýtt stríð gegn Gaza í undir- búningi? Í fréttum RUV 3. janú- ar segir að svo sé. Hershöfðing- inn Tal Hermoni segir að herinn sé reiðubúinn fyrir stórfellda inn- rás á Gaza, sem „fyrirbyggjandi“ aðgerð, styttra en öflugra stríð. Þetta er framhald fréttar frá því 28. desember. Þar segir hershöfð- inginn Benny Gantz að nýtt stríð verði ekki umflúið en hann bar lof á árangur stríðsins fyrir þremur árum, „það tókst fullkomlega“. Þessi árangur á eitt þéttbýlasta svæði veraldar felst í því að 20 þúsund byggingar voru eyðilagð- ar; heimili, verksmiðjur, bænda- býli, bænahús og skólar voru jafn- aðir við jörðu. „Ísraelar frömdu þar alvarlega stríðsglæpi m.a. með því að ráðast á stöðvar Sameinuðu Þjóðanna þar sem flóttafólk hafði leitað skjóls og með því að beita fosfór-íkveikjusprengjum. 1.387 Palestínumenn voru drepnir, þar af voru 773 óvopnaðir óbreyttir borgarar, aðallega konur og börn. 257 börn yngri en 16 ára gömul voru drepin. 5.500 voru særðir, meira en 700 konur og 1.800 börn hafa þurft langtíma læknishjálp og endurhæfingu sára sinna.“ Hver er framtíð Sujud, verður hún drepin í næstu innrás? Þar sem „fælingarmáttur“ stríðsins fyrir þremur árum hefur dvín- að verður önnur umferð ekki umflúin samkvæmt orðum Benny Gantz, yfirmanni ísraelska herafl- ans. Það verður að vera sársauka- fullt leifturstríð. Það er sem sagt raunveruleg hætta á því að móðir Sujud, hin 23 ára Nawal, þurfi að ganga í gegnum nýtt helvíti. Fleiri úr Samuni ættinni gætu verið drepnir, særðir eða örkumlaðir. Gaza og Íran Samhliða árásum Ísraela gegn Gaza, „Operation Cast Lead“ fyrir þremur árum, sendi Penta- gon 100 „US-European Command“ (EUCOM) hernaðarsérfræðinga til að aðstoða Ísraela við uppbygg- ingu nýs, háþróaðs radarvarnar- kerfis sem hluta nýrra sameigin- legra eða samofinna loftvarna, svokallað „X-band early warn- ing radar system“. Meðan athygli fjölmiðla beindist að Gaza bar lítið sem ekkert á þessari mikil- vægu hernaðaraðgerð. Opinbera skýringin var sú að stjórnin í Tel Aviv hafi beðið um þessa aðstoð, sem vörn gegn hugsanlegri eld- flaugaárás frá Íran. (M. Chossu- dovsky, Global Research, 23. des. 2011) Hvað er í gangi núna? Miklar væringar milli Íran og vestrænna ríkja, þá sérstaklega Bandaríkj- anna-Ísrael. Á sama tíma hóta fulltrúar Ísraelshers nýjum aðgerðum gegn Gaza. Leyniskyttur skjóta á drengi við störf sín En það eru alltaf aðgerðir í gangi. Neyðin ýtir ungum mönnum til að afla sér tekna með öllum tiltæk- um ráðum eins og að safna steypu- brotum úr hrundum húsum. Inn- flutningur á sementi, járni og öðru til byggingaframkvæmda er mjög takmarkaður, nægir ein- ungis fyrir um 5% af endurbygg- ingarþörfinni. Með sama áfram- haldi tæki 78 ár að endurbyggja Gaza. Drengirnir sem reyna að afla sér tekna með söfnun bygg- ingarefnis setja sig í mikla hættu. Breski læknirinn David Halpin tók saman mál 23 drengja sem höfðu orðið fyrir skoti ísraelskra leyniskyttna á tímabilinu 26. mars 2010 til 23. desember sama ár við þessa iðju. Leyniskytturn- ar miða sérstaklega á útlimi. Flest skotsárin voru á fótleggjum, ein- staka á handleggjum og í síðuna. (David Halpin, Global Research, 20. jan. 2011) Það sem hér hefur verið tíundað er algert brot á Genfarsáttmála nr. 1957 þar sem stríðsglæpamenn verða að svara til saka fyrir brot sín. Höfum það í huga að stjórnvöld í Tel Aviv gera ekkert nema fá grænt ljós frá stjórninni í Washington, hvort sem það er árás á Gaza eða á kjarnorkuver Írana. Sujud er orðin þriggja ára Skýrslu Hagfræði- stofnunar verulega ábótavant Fjármál Skúli Sveinsson lögfræðingur og viðskiptafræðingur Kynferðisbrot Halla Gunnarsdóttir aðstoðarmaður innanríkisráðherra Róbert R. Spanó forseti lagadeildar HÍ Hernaður Ísraela Ari Tryggvason félagi í Íslandi-Palestínu Hefst sunnudaginn 12. febrúar FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.