Fréttablaðið - 13.02.2012, Síða 4

Fréttablaðið - 13.02.2012, Síða 4
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR4 FJÖLMIÐLAR Óskar Ófeigur Jóns- son, blaðamaður á Fréttablaðinu og Vísi.is hlaut um helgina fjölmiðlaviður- kenningu Knattspyrnu- sambands Íslands (KSÍ) fyrir árið 2011. Í frétt á vef KSÍ segir að Óskar hafi notað tölfræði mikið í sínu starfi og með góðum árangri. „Hann hefur um árabil fjallað um knattspyrnu og hefur jafnan haldið umfjöllun um kvenna- knattspyrnu mjög á lofti“, segir aukinheldur á vef KSÍ. Geir Magnússon, formaður KSÍ, afhenti Óskari viðurkenn- inguna á ársþingi sambandsins á laugardag. - þj Blaðamaður Fréttablaðsins: Hlaut fjölmiðla- verðlaun KSÍ ÓSKAR ÓFEIGUR JÓNSSON EFNAHAGSMÁL Aukið líf heldur áfram að færast í íbúðamarkað á höfuðborgarsvæðinu. Alls var þinglýst 372 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á svæðinu í janúar sem er 70 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Velta samninganna nam rétt tæplega 11 milljörðum króna. Meðalupphæð á kaupsamning er því 29,4 milljónir króna. Á árinu 2011 voru kaupsamning- ar á höfuðborgarsvæðinu samtals 4.613 og fjölgaði um 54 prósent milli ára. Þá hækkaði íbúðaverð um tíu prósent að nafnvirði og fimm að raunvirði. - mþl 70% fleiri samningar: Aukinn kraftur í íbúðamarkað SLYSAVARNIR Gísli Örn Gíslason er skyndihjálparmaður ársins 2011 að mati Rauða kross Íslands. Hann bjargaði lífi dóttur sinnar, Sigurbjargar Jóhönnu, 29. janúar árið 2011. Feðginin ætluðu bæði að vera að heiman þetta kvöld, en röð til- viljana réði því að þau voru bæði stödd í herbergi Sigurbjargar þegar hún fór í hjartastopp. Gísli hóf strax hjartahnoð og kallaði á eiginkonu sína, sem hringdi í sjúkrabíl. Sjúkraflutningamenn og lögreglumenn komu á staðinn 7 til 8 mínútum síðar. Gísli tók við viðurkenningu Rauða krossins í Smáralind á laugardag, á 112 daginn. - hhs Verðlaun fyrir skyndihjálp: Bjargaði lífi dóttur sinnar SKYNDIHJÁLPARMAÐUR ÁRSINS 2011 Gísli Örn Gíslason sýndi hárrétt handtök þegar dóttir hans hans fór í hjartastopp á heimili þeirra. MYND/RAUÐI KROSS ÍSLANDS LÖGREGLA Dregið hefur úr ofbeldi tengdu skemmtanahaldi í mið- borg Reykjavíkur. Lögreglan þakkar fækkunina auknu eftirliti og góðu samstarfi við starfsfólk og dyraverði veitingastaða. Þá er það tilfinning lögreglu- manna að aukið eftirlit hafi fælt sölumenn fíkniefna í einhverjum mæli frá þessum stöðum, að því er fram kemur í tilkynningu frá varðstjóra í vesturbæ Reykja- víkur. Um nýliðna helgi könnuðu ómerktir lögreglumenn aðstæður á skemmtistöðum. - hhs Aukið eftirlit skilar árangri: Minna ofbeldi í miðborginni VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 10° -1° 0° 2° 0° -3° 1° 1° 19° 6° 8° 5° 18° -4° 5° 12° -3°Á MORGUN 3-8 m/s um allt land. MIÐVIKUDAGUR Strekkingur V-til, annars hægari. 6 5 4 4 3 4 3 4 3 7 0 11 15 14 13 11 15 6 12 6 13 8 6 4 5 3 5 5 2 5 6 4 MILT Í VEÐRI Nokkuð hlýtt er á landinu í dag og næstu daga en búast má við hægt kólnandi veðri frá miðvikudegi. Í dag blæs nokkuð hressilega í fl estum landshlutum, á morgun eru horfur á nokkuð hægum vindi en á mið- vikudaginn hvessir á nýjan leik við V- ströndina. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður Ofstopi hræddi börn Útigangsmenn með ofstopa og ógn- andi tilburði við fólk á Klambra túni grættu börn sem skelfdust þá um miðjan dag í gær. Þeir voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Bíl var ekið yfir fót Klukkan hálf fimm aðfaranótt sunnudags var lögreglu tilkynnt að bíl hefði verið ekið yfir rist manns í Austurstræti og af vettvangi. Bíllinn fannst heima hjá skráðum eiganda hálftíma síðar en ekki var ljóst hver hafði ekið. Eigandinn og gestur hans voru báðir handteknir. LÖGREGLUMÁL LÖGREGLUMÁL Karl á áttræðis- aldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu, skammt frá Stjórn- arráðinu, snemma að morgni 31. janúar síðastliðinn. Hann mun hafa verið einn að verki og hefur verið sleppt úr haldi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tilgangur mannsins með sprengjunni hafi ekki verið að valda skaða, heldur að koma ákveðnum skilaboðum á fram- færi til stjórnvalda. Ekkert hefur enn komið fram um hvaða skilaboð það voru. Þá er sprengjan ekki talin hafa verið til þess fallin að valda eyði- leggingu eða hættu, enda hafi maðurinn staðið við hlið sprengj- unnar er hún sprakk. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu í Reykjanesbæ á föstu- dag, og við húsleit fannst ýmislegt sem tengdist málinu. Þá var bíll mannsins af sömu gerð og lýst var eftir í fjölmiðlum. Lögreglan var með mikinn viðbúnað eftir að upp komst um sprenginguna þar sem Hverfisgötu var lokað á meðan sprengjusveitir Landhelgisgæslu og lögreglu rann- sökuðu sprengjuleifarnar. - þj Sprengjumálið upplýst eftir játningu Suðurnesjamanns á áttræðisaldri: Tilgangurinn var ekki að valda skaða NÁÐIST Á MYND Sprengjumaðurinn náðist á mynd skömmu eftir atvikið. GENGIÐ 10.02.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,9666 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 121,90 122,48 192,94 193,88 161,55 162,45 21,733 21,861 21,165 21,289 18,316 18,424 1,5674 1,5766 189,10 190,22 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ÍS LE N SK A S IA .I S S FG 4 20 40 0 4. 20 08 KÖNNUN Ríflega helmingur lands- manna vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi kost á sér fyrir fimmta kjörtímabilið sem forseti Íslands, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðu 53,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku að þeim fyndist Ólafur Ragnar eiga að gefa kost á sér í kosning- unum í sumar, en 46,2 prósent voru á öndverð- um meiði. Könn- unin var unnin dagana 8. og 9. febrúar. Stuðning- ur við að Ólaf- ur Ragnar gefi kost á sér í for- setakosningum sem fram eiga að fara í júní næstkomandi hefur auk- ist frá því í september á síðasta ári. Í sambærilegri könnun Fréttablaðs- ins og Stöðvar 2 sögðust þá 47,6 pró- sent vilja að Ólafur gæfi kost á sér í embættið, og hefur stuðningurinn því aukist um 6,3 prósentustig á fimm mánuðum. Stuðningur við að Ólafur Ragn- ar gefi kost á sér er mestur meðal stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en er einn- ig mikill meðal þeirra sem styðja nýju framboðin Samstöðu og Bjarta framtíð. Alls vilja 63 prósent stuðnings- manna Framsóknarflokksins Ólaf í framboð í sumar, og 57 prósent þeirra sem kjósa myndu Sjálf- stæðisflokkinn. Í kringum 60 pró- sent þeirra sem styðja Samstöðu og Bjarta framtíð voru sömu skoðunar. Áhugi á því að Ólafur gefi kost á sér áfram er minnstur meðal þeirra sem kjósa myndu Samfylkinguna, um 32 prósent. Helmingur stuðn- ingsmanna hins stjórnarflokksins, Vinstri græns, vill að Ólafur sækist eftir endurkjöri. Stuðningur við að Ólafur gefi kost á sér í sumar er meiri meðal karla en kvenna, og mun meiri meðal fólks undir fimmtugu en þeirra sem eldri eru. Þá styðja íbúar landsbyggðarinnar Ólaf frek- ar en þeir sem eldri eru. Hringt var í 800 manns dagana 8. og 9. febrúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóð- skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Finnst þér að Ólafur Ragnar Grímsson ætti að gefa kost á sér fyrir fimmta kjörtímabil- ið sem forseti Íslands þegar kosið verður í sumar? Alls tóku 89,9 pró- sent afstöðu. brjann@frettabladid.is Aukinn stuðningur við framboð Ólafs Tæplega 54 prósent landsmanna vilja að Ólafur Ragnar gefi kost á sér í for- setakosningum í vor samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við að Ólafur gefi kost á sér hefur aukist nokkuð síðustu mánuði. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Undanfarnar vikur hefur hópur stuðningsmanna Ólafs Ragnars safnað undir- skriftum fólks sem skorar á hann að gefa kost á sér áfram. Í gær voru rétt rúmlega 29 þúsund undirskriftir skráðar á vefsíðu söfnunarinnar, askoruntil- forseta.is. Sú tala gæti reyndar átt eftir að lækka eitthvað, þar sem kennitölur þeirra sem skráðir eru hafa ekki verið keyrðar saman við þjóðskrá. Þeir sem standa fyrir undirskriftasöfnuninni hafa verið gagnrýndir fyrir að undirskriftirnar séu ekki birtar á síðunni. 29 þúsund undirskriftir safnast Já 53,8% Nei 46,2% Meirihluti vill að Ólafur gefi kost á sér Finnst þér að Ólafur Ragnar Grímsson ætti að gefa kost á sér fyrir fimmta kjörtímabilið sem forseti Íslands þegar kosið verður í sumar? Heimild: Skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.