Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 6
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR6 UMHVERFISMÁL Norræna húsið, Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands hafa tekið saman höndum um endur bætur á friðlandinu í Vatns- mýrinni. Endurbæturnar fela meðal annars í sér að tryggja Tjarnar- fuglum öruggt varpland, uppræta ágengar plöntur í friðlandinu og endurnýja og viðhalda líffræðileg- um fjölbreytileika á svæðinu. „Það er löngu tímabært að taka til á svæðinu, hjálpa fuglunum sem lífga svo skemmtilega upp á miðborgina og gera svæðið að raunverulegum griðastað fugla, gróðurs og vatna- lífvera,“ segir Þuríður Helga Krist- jánsdóttir, verkefnastjóri hjá Nor- ræna húsinu, en hugmyndin fæddist hjá starfsfólki Norræna hússins fyrir allnokkru. Hópur sérfræð- inga, eftir milligöngu Norræna hússins, hefur komið með tillögur að úrbótum sem þegar eru hafnar. Þuríður segir að ætlunin sé að gera svæðið að fyrirmynd fyrir endurheimt votlendis. Í fyrsta áfanga verði klárað að girða frið- landið af með síki og lækka landið, til að mynda votlendi, og uppræta óæskilegan gróður. Einnig verður vatni beint betur um síkin svo koma megi í veg fyrir að þau þorni upp og vatn í þeim staðni. „En það er ljóst að þessar framkvæmdir verða ekki einar og sér til þess að bæta ástandið við Tjörnina. Fleira þarf að koma til.“ Alþekkt er að fuglum fer fækk- andi sem verpa í friðlandinu og vistkerfinu þar fer hnignandi. Þur- íður vísar þar til vöktunar þeirra Ólafs Karls Nielsen og Jóhanns Óla Hilmarssonar undanfarin ár. Þeir hafa bent á að nauðsynlegt sé að taka upp fyrri sið og ráða eftir- litsmann við Tjörnina, eða „anda- pabba“ eins og hann var kallaður. Þuríður tekur undir með Ólafi og Jóhanni Óla og telur það geta skipt sköpum að eftirlitsmaður sé við Tjörnina til að fóðra ungfugla, hirða um varp og bægja frá ung- drápurum. Hugmyndir um endurbætur fela jafnframt í sér að auka rannsóknir, enda verður litlu áorkað án þeirra. Sérstaklega áhugaverð er sú áhersla sem lögð verður á miðlun fróðleiks um svæðið. Eitt af því sem áætlað er að gera er að setja upp sjálfsala með fæðu sem er snið- in að þörfum fuglanna, enda nauð- synlegt að minnka brauðgjöf sem mengar Tjörnina og laðar máfa að svæðinu. „Við sem stöndum að verkefninu viljum líka gefa almenningi og nemendum kost á að fylgjast með endurbótunum. Norræna húsið mun af því tilefni setja upp tvær sýning- ar á þessu ári,“ segir Þuríður. svavar@frettabladid.is Hljómskálagarður Norræna húsið Askja náttúrufræðihús Umhverfislistaverk Hola á himinbotni Hringbraut Þorfinns tjörn Votlendi Tjarnir og síki Malbikaður stígur Malarstígur Nýr stígur Upplýsingaskilti Lagnir Lóðarmörk Sandfjara við austurenda tjarnar Fuglaskoðunarhús og bryggja Núverandi hús Afmörkun á því svæði sem deiliskipulags- breytingin tekur til 1. Útrýming óæskilegra tegunda 2. Nýtt síki svipað og þau sem áður hafa verið gerð 3. Stígur milli Hringbrautar og Norræna hússins 4. Fuglaskoðunarhús og bryggja 5. Endurheimt votlendis – skapa skilyrði fyrir votlendi, land lækkað 6. Stjórnun rennslis við megininnstreymi 7. Lagfæra aðgengi að brú 8. Breytingar á bakka við Norræna húsið Vatnsmýrin endurbætt fyrir Tjarnarfugla og fólk Metnaðarfullt verkefni um endurbætur friðlandsins í Vatnsmýri er að hefjast. Varpland verður bætt, vot- lendi endurheimt og gerð gangskör í rannsóknum. Sérstaklega gætt að þekkingarmiðlun til almennings. Háskóli Íslands FRIÐLAND Í VATNSMÝRI. SKÝRINGARUPPDRÁTTUR. FRAMKVÆMDA- OG EIGNASVIÐS REYKJAVÍKURBORGAR. LANDMÓTUN SF. TEIKNISTOFA ■ Tryggja Tjarnarfuglum öruggt varpland ■ Gefa vísbendingu um þann gróður sem einkenndi svæðið fyrr á tímum ■ Endurnýja og viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika á svæðinu ■ Gera svæðið að fyrirmynd fyrir endurheimt votlendis ■ Rannsóknir á svæðinu verði styrktar og þekkingu miðlað til almennings ■ Auka áhuga og þekkingu almennings á náttúrusvæðum innan og utan borgarinnar Markmið framkvæmdanna í Vatnsmýri Ókeypis heyrnarmæling Pantaðu tíma í ókeypis heyrnarmælingu og leyfðu okkur að leiðbeina þér við val á heyrnartækjum með allt að fjögurra ára ábyrgð. Læknastö›in • Kringlunni Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is REYKJAVÍKURBORG Ákveðið hefur verið að freista þess að hindra hljóðmengun frá Tjarnarbíói með framkvæmd sem áætlað er að kosti 18 til 20 milljónir króna. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu á miðvikudaginn seg- ist fólk sem býr í húsi sem áfast er við Tjarnarbíó vart haldast við á heimili sínu þegar háværir tónleikar eru í bíóinu. Mælingar sýndu að hljóðmagnið var langt yfir heilbrigðismörkum. Af þeim sökum var starfseminni sett- ar skorður. Með þeim er talið að rekstrargrundvellinum væri kippt undan húsinu. Það eru sjálfstæðir leikhópar sem leigja Tjarnarbíó af Reykjavíkurborg. Í áætlun sem borgarráð sam- þykkti á fimmtudag er gert ráð fyrir að skera veggi milli húsanna og steypa nýjan vegg með hljóð- einangrun. Annar möguleiki var að breyta hinu áfasta íbúðarhúsi í atvinnu- húsnæði með skrifstofum sem ekki væru viðkvæmar fyrir hávaða að kvöldlagi. Talið er að endurbæturnar muni taka um fjórar vikur þegar í þær verður ráðist. - gar Borgarráð ákvað að lagfæra Tjarnarbíó til að treysta grundvöll rekstrar í húsinu: Tuttugu milljónir í hljóðeinangrun FRÉTTABLAÐIÐ Sagt var frá því í blaðinu á miðvikudag að íbúar á Suðurgötu 15 væru langþreyttir á mikilli hávaða- mengun frá Tjarnarbíói. g, shá Tvisvar höfum við flúið á gistiheimili til S i m u e l h g UMHVERFISMÁL „Þetta er alveg hrikalegt þegar maður er með lítið barn og getur ekki verið með það heima,“ segir Sergiy Okhremchuk, íbúðareigandi í Suðurgötu 15, sem fast er við Tjarnarbíó þaðan sem berst svo mikill hávaði að heil-brigðisreglugerðir bresta. Sergiy segir að eftir að breyt-ingar voru gerðar á Tjarnarbíói og það tekið aftur í notkun haust-ið 2010 hafi hávaðinn þaðan keyrt um þverbak. Virðist sem sú ein-angrun sem fyrir var hafi horfið í framkvæmdunum. Fjórar íbúðir eru í Suðurgötu 15, tvær eru í einkaeigu og tvær á Hjálp- ræðisherinn. „ Þ et t a er farið að taka á taugarnar,“ segir Sergiy sem á þriggja ára son með ko i i Sergiy hefur ekki trú á þeim aðgerðum sem lagðar eru til. Miðað við nú di Í TJARNARBÍÓI Hljóðeinangrunin er svo léleg að íbúar í Suðurgötu 15 haldast varla við þegar rokktónleikar eru í Tjarnarbíói. Þungarokkshljómsveitin Skálmöld kom fram í húsinu í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRIÐRIK FRIÐRIKSSON Hávaði úr Tjarnarbíói hrakti fólk að heiman Hljóðleki er svo mikill frá Tjarnarbíói að það stenst ekki heilbrigðiskröfur. Íbúi í næsta húsi segir ástandið hrikalegt. Hátalarar voru settir á púða en allt kom fyrir ekki. Grundvöllur rekstrarins er horfinn með skorðum við starfseminni. EFNAHAGSMÁL Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. Til samanburðar urðu 982 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2010. Þetta kemur fram í tölum Hag- stofunnar um nýskráningar og gjaldþrot sem birtar voru nýlega. Í umfjöllun Greiningar Íslands- banka segir að ástæða þessa mikla fjölda sé umfangsmikil endurskipulagning atvinnulífsins sem hafi náð hámarki á síðasta ári. Gjaldþrotatölurnar bendi til þess að atvinnulífið sé enn nokkuð laskað en einnig að nauðsynleg endurskipulagning hafi loks kom- ist á almennilegt skrið. - mþl Gjaldþrotum fjölgaði: Metfjöldi fór í þrot árið 2011 LÖGREGLA Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði aðfaranótt laugar- dags. Maðurinn hafði þá í bræðis- kasti brotið afturrúðu í lögreglu- bíl. Áður hafði hann óboðinn sest upp í bílinn, en verið vísað úr honum. Lögregla segir manninn skipverja á erlendu skipi. Í skýrslu lögreglu af atburð- um næturinnar kemur jafnframt fram að maður hafi verið hand- tekinn við krá á Laugavegi, en á heimili hans hafi fundist nokkurt magn af kannabisefnum. - óká Settist óboðinn í lögreglubíl: Ölvaður og æst- ur braut rúðu FRAMKVÆMDIR Árið 2011 urðu flest gjaldþrot í byggingastarfsemi og mann- virkjagerð, alls 329. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gætir þú hugsað þér að nota svokallaða skyndibíla eins og hugmyndir hafa komið fram um nýlega? JÁ 35,8% NEI 64,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Getur þú hugsað þér að kjósa eitthvað af þeim nýju fram- boðum sem eru að koma fram? Segðu þína skoðun á visir.is FERÐAIÐNAÐUR Þrjátíu verkefni fá styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í ár, en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Alls verður 69 milljónum króna úthlutað til að stuðla að uppbygg- ingu, viðhaldi og verndun ferða- mannastaða í opinberri eigu eða umsjón. Hæstu styrkirnir, fimm milljónir króna hver, eru veittir vegna framkvæmda við Gullfoss, Fjallabakssvæði, Skógafoss og Hveravelli. Alls bárust 124 umsóknir og nam umbeðin upphæð tæpum 455 milljónum króna. - þj Framkvæmdir í ferðamálum: 69 milljónir til uppbyggingar KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.