Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2012, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 13.02.2012, Qupperneq 8
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR8 Gæðum tilveruna góðu ljósi Lightsack Rýmingarverð: 8.900 kr. Maggie Rýmingarverð: 6.900 kr. TILBOÐS- & RÝMINGARVERÐ MANNRÉTTINDI Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum laganna í framkvæmd. Þetta sagði mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Thomas Hammar- berg, að lokinni tveggja daga heimsókn til Íslands. Hann kynnti sér meðal annars mismunun og umbætur á jafn- réttislöggjöf þar sem horft er til jafnréttis kynjanna, þjóðernisupp- runa, kynþátta, einstaklinga með fötlun, aldraðra, réttinda samkyn- hneigðra og transfólks. Hammarberg segir gildandi lög veita þess- um hópum mis- góða vernd, ofbeldi gegn konum sé við- varandi vanda- mál og herða þurfi baráttu gegn mansali. Mannréttinda- fulltrúinn segir yfirvöld þurfa að grípa til sérstakra aðgerða til þess að koma í veg fyrir fátækt sem kunni að vera að aukast meðal ein- staklinga með fötlun, einstæðra foreldra, aldraðra og innflytjenda. Fulltrúinn nefnir að á Íslandi megi merkja ótta við útlendinga og múslíma í umræðum á netinu og í öðrum miðlum. Það er skoðun mannréttinda- fulltrúans að sjálfstæði dóms- kerfisins hafi aukist og nefnir hann sérstaklega umbætur á skip- an dómara. Fjárframlög til ákæru- valdsins eru ekki í samræmi við málafjölda, að því er Hammarberg segir. -ibs Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins segir umbóta þörf á Íslandi: Vill alhliða lög gegn mismunun THOMAS HAMMARBERG ALÞINGI Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð- herra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúru- svæða felist endanleg úthlut- un þeirra náttúrusvæða sem þar eru undir. Vinna við áætl- unina er á lokaspretti og hún segir hana vera forgangs- verkefni hjá sér og Oddnýju G. Harðardóttur, starfandi iðnaðarráðherra. „Ég hef velt upp þeirri spurningu í hvaða stöðu núlif- andi kynslóð er að setja sig gagnvart framtíðinni með því að taka þessar ákvarðanir í eitt skipti fyrir öll, en fyrst og fremst er þetta mjög mikilvægt ferli sem ég er alveg handviss um að er náttúruvernd til framdráttar.“ Hugmyndin að baki rammaáætluninni var að skrá þau náttúrusvæði sem mætti nýta, svo sem til virkjana, og þau sem ætti að vernda. Einhver lenda svo í biðflokki og ákvörðun varðandi þau bíður þá betri tíma. Svandís segir þessa afstöðu sína ekki ganga gegn grunnhugsun áætlunarinnar. „Nei, en ég tel rétt að halda þeirri spurningu vakandi hvaða vald við erum að taka okkur.“ Samkvæmt þingmálaskrá á að leggja ramma- áætlun fram í byrjun febrúar. Ljóst er að málið gæti orðið ríkisstjórninni erfitt, enda umdeilt hvar á að virkja og hvar vernda. Málið er nú á borði umhverfis ráðherra og iðn- aðarráðherra. Þegar þeir hafa náð saman um það verður það kynnt í ríkisstjórn og þaðan fer það fyrir stjórnarflokkana áður en það er lagt fyrir Alþingi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nú unnið að því að ná sátt um að tillagan breytist ekki í meðförum þingsins; komi þaðan út eins og hún fór þangað inn. Telja menn að ef opnað verði fyrir umræðu um einstaka kosti þýði það umræðu um hvert og eitt einasta landsvæði. Því þurfi að ná sátt um umdeild svæði eins og neðri hluta Þjórsár áður en málið kemur á Alþingi. Líkt og sést á meðfylgjandi töflu er kostnað- ur við 2. áfanga áætlunarinnar um hálfur millj- arður. Við það bætist undirbúningskostnaður á árunum 2005 til 2006 og einhver kostnaður við 1. áfanga áætlunarinnar. kolbeinn@frettabladid.is Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun Umhverfisráðherra segir rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða ekki fela í sér endanlega út- hlutun náttúrusvæða. Varasamt sé að binda hendur komandi kynslóða. Kostnaður er hálfur milljarður. URRIÐAFOSS Mikill styr stendur um fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár, en rammaáætlun gerir ráð fyrir þremur virkjunum þar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR SAMGÖNGUMÁL Lægsta tilboð í Vaðlaheiðargöng rennur út á morg- un, 14. febrúar. Formleg ósk um að það verði framlengt um fjóra mán- uði var lögð fram fyrir helgi. Fjórir mánuðir eru liðnir frá því að tilboð voru opnuð í gerð Vaðla- heiðarganga en lægsta boð kom frá ÍAV og Marti og var upp á tæpa níu milljarða króna, um hálfum milljarði króna undir kostnaðar- áætlun. Stjórn Vaðlaheiðarganga hefur nú farið þess á leit við verk- takana að þeir framlengi tilboð sitt um fjóra mánuði. Með framlengingu tilboðsins vonast menn til að skapa Alþingi nægilegt svigrúm til að móta endan lega afstöðu til verkefnisins. Óvissa um Vaðlaheiðargöng: Farið fram á að tilboð í göngin verði framlengt EFNAHAGSMÁL Hækka þarf iðgjöld til Lífeyrissjóðs starfsmanna rík- isins (LSR) til að bregðast við nei- kvæðri stöðu A-deildar sjóðsins. Skýrt kemur fram í lögum um sjóðinn að haga þurfi iðgjöldum í samræmi við skuldbindingar. Það að heildarstaða hans sé nei- kvæð um 47,4 milljarða króna bendir því til þess að hækka þurfi iðgjöldin í framtíðinni til að mæta auknum skuldbindingum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins og Fjár- sýslu ríkisins. - mþl Viðbrögð frá ráðuneyti: Iðgjöld í LSR þurfa að hækka KÖNNUN Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi, sam- kvæmt niðurstöðum skoðanakönn- unar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðust 43,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku til spurningar- innar mjög eða frekar fylgjandi því að draga ákæruna til baka, en 44,4 prósent sögðust því mjög eða frekar andvíg. Um 12,1 prósent sagðist hlutlaust í málinu. Meirihluti stuðningsmanna stjórnarflokkanna er andvígur því að ákæran verði dregin til baka. Um 67,5 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar vilja halda ákærunni til streitu, líkt og 74,1 prósent stuðningsmanna Vinstri græns. Um 75,6 prósent stuðnings- manna Sjálfstæðisflokksins sögð- ust vilja draga ákæruna til baka, en 19,3 prósent voru því andvíg. Um 60,5 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksins vildu falla frá ákærunni. Hringt var í 800 manns dagana 8. og 9. febrúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóð- skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Ert þú fylgjandi því eða andvíg(ur) að Alþingi dragi til baka ákæruna á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi? Alls tóku 94,3 prósent afstöðu. - bj Þjóðin klofin í afstöðu til ákæru fyrir Landsdómi: Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru Skoðanakönnun um landsdómsmálið Ert þú fylgjandi því eða andvíg(ur) að Alþingi dragi til baka ákæruna á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi? Mjög fylgjandi 28,4% Frekar fylgjandi 15,1% Hlutlaus 12,1% Frekar andvíg(ur) 16,0% Mjög andvíg(ur) 28,4% Heimild: Skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 Braut og bramlaði Gestgjafi í unglingasamkvæmi brást reiður við þegar lögregla stöðvaði samkvæmið aðfaranótt laugardags. Hóf gestgjafinn að „brjóta og bramla“ eins og lögregla lýsir því. Ungmennin voru færð á lögreglustöð þar sem forráðamenn sóttu þau. Stunginn og fangelsaður Maður sem hlaut hnífsstungu í stympingum í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt föstudags var fangelsaður með fjórum öðrum eftir að gert hafði verið að sárum hans. LÖGREGLUMÁL Kostnaður við 2. áfanga* 2005-2009 394.452** 2010 34.599 2011 25.361 Alls 454.812 * Á verðlagi hvers árs ** Allar tölur eru í þúsundum króna VEISTU SVARIÐ? 1. Hvaða stofnun greip í taumana vegna útflutnings á gullmunum til bræðslu? 2. Hvað kostar að taka stúdents- próf í fjarnámi? 3. Hvar er eldgamalt stöðuvatn sem rússneskir vísindamenn hafa borað sig ofan í? SVÖRIN 1. Safnaráð. 2. Sjö hundruð og fjörutíu þúsund krónur. 3. Undir suðurskauts- ísnum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.