Fréttablaðið - 13.02.2012, Síða 16
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
PETER GABRIEL tónlistarmaður er 62 ára í dag.
„Tónlist er alþjóðlegt tungumál sem sýnir, betur en nokkuð
annað, hversu heimskulegir kynþáttafordómar eru.“
62
Merkisatburðir 13. febrúar
1575 Hinrik III Frakkakonungur krýndur í Reims.
1633 Galileo Galilei kemur fyrir Rannsóknarréttinn í Róm.
1693 Eldgos hefst í Heklu. Daði Halldórsson, barnsfaðir Ragn-
heiðar Brynjólfsdóttur, ritar um það skýrslu.
1945 Loftárásin á Dresden hefst.
1960 Frakkar gera tilraunir með sína fyrstu kjarnorkusprengju.
1971 Suður-Víetnamar ráðast inn í Laos með hjálp Bandaríkja-
manna.
1974 Rithöfundinum og Nóbelsverðlaunahafanum Alexander
Solsjenitsjin er vísað frá Sovétríkjunum.
2001 Jarðskjálfti, 6,6 stig á Richters-kvarða, ríður yfir El Salva-
dor. Að minnsta kosti 400 manns láta lífið.
Þýska tónskáldið Richard Wagner andaðist í
Ca‘ Vendramin Calergi í Feneyjum eftir hjarta-
áfall þann 13. febrúar 1883, tæplega sjötugur
að aldri. Wagner hafði farið til Feneyja með
fjölskyldu sinni, eftir lokasýningu á óperunni
Parsifal í Bayreuth í lok ágúst, til að hafa þar
vetursetu. Hann hafði lengi þjáðst af hjarta-
kvilla og fengið nokkur misjafnlega alvarleg
hjartaáföll. Jarðneskar leifar hans voru fluttar
til Bayreuth þar sem hann var jarðsettur í garði
Villa Wahnfried.
Wagner samdi margs konar tónlist en var
þekktastur fyrir óperur sínar, sem njóta
vinsælda enn í dag. Þekktastur er fjórleikurinn
um Niflungahringinn; Das Rheingold, Die
Walküre, Siegfried og Götterdämmerung.
Lohengrin, Tristan og Isolde og Parsifal eru líka
vel þekktar óperur og lögin Reið valkyrjanna úr
Die Walküre og Brúðarmarsinn úr Lohengrin
þekkja flestir. Ólíkt flestum öðrum óperutón-
skáldum skrifaði Wagner sjálfur allan texta við
sínar óperur auk tónlistarinnar.
ÞETTA GERÐIST: 13. FEBRÚAR 1883
Richard Wagner deyr í Feneyjum
Í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu tónskáldsins Johns Cage,
sem fæddist 5. september árið 1912. Alls kyns tónleikar
og viðburðir til að heiðra minn-
ingu tónskáldsins verða haldn-
ir á árinu víðs vegar um heim-
inn. Jaðarberið og Listasafn
Reykjavíkur minnast afmælis-
ins með afmælistónleikunum
sem haldnir verða á Kjarvals-
stöðum miðvikudagskvöldið
15. febrúar.
Á tónleikunum verða fluttar
glefsur frá mismunandi tíma-
bilum í tónsmíðaferli Johns
Cage. Þar má meðal annars
heyra verk eins og Aria, Font-
ana Mix, Six Melodies for Viol-
in and Keyboard og Suite for
Toy Piano. Lögð verður áhersla
á tónskáldið Cage enda er
meirihluti verka hans fyrst og
fremst konsertmúsík þó mörg-
um finnist verk hans teygja mörkin í ýmsar áttir.
Flytjendur eru meðal annarra Heiða Árnadóttir, söng-
kona, Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleikari, Tinna Þor-
steinsdóttir, píanóleikari, Páll Ivan Pálsson, tónsmiður og
Guðmundur Steinn Gunnarsson, tónsmiður.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Afmælis Cage minnst
á Kjarvalsstöðum
Hundrað ára fæðingar-
afmælis Johns Cage verður
minnst á Kjarvalsstöðum á
miðvikudag.
Verkís verkfræðistofa á Suðurlandsbraut 4 hefur lýst upp
starfsstöðvar sínar á nýjan og spennandi hátt í tilefni 80
ára afmælis á árinu. Leikurinn hófst með því að framhliðin
varð að því sem kalla má „tóma striga listarinnar“ þar sem
listamenn sýndu Pixel Art-verk og notuðu til þess lýsingu
í gluggum. Síðan hefur tekið við margbreytileg lýsing sem
framkallar ýmiss konar áhrif og mun lifa áfram fram á
útmánuði.
Verkís hefur á sínum snærum marga af færustu lýsingar-
hönnuðum landsins og Frímann Freyr Kjerúlf Björnsson,
sem útskrifaður er úr Listaháskóla Íslandsheiður á heiður
að listrænni útfærslu lýsingarinnar, í samvinnu við mynd-
listarmennina Friðrik Svan Sigurðarson og Geir Helga
Birgisson.
„Verkfræðistofur bjóða upp á meira en margir gera sér
grein fyrir og er þetta einn liður í að sýna fram á það.
Þó Verkís sé 80 ára þá er stofan enginn öldungur heldur
hágæða þekkingarfyrirtæki í góðum tengslum við þróun
og tækninýjungar á öllum sviðum. Þessi gjörningur sýnir
að hægt er að tengja saman verkfræðiþekkingu, tækni og
list,“ segir Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verk-
ís. Hann bendir á að með uppsetningu ljósanna sé Verkís í
raun komið með stóran skjá þar sem fleiri listamenn gætu
komið með sínar útfærslur.
Kveikt hefur líka verið á nýstárlegum „Aphrodite“ lömp-
um á gafli Ármúla 6 sem eru þeir fyrstu sinnar tegundar á
Íslandi og reyndar tvö fyrstu eintökin sem til eru í heim-
inum að sögn Sveins Inga.
„Lýsingin framkallar áhrif sem minna á norðurljós eða
speglun frá vatni og skapar þannig stemningu með teng-
ingu við náttúruna.“ - gun
Verkfræðiþekking, tækni og list
VERKÍS Á SUÐURLANDSBRAUT 2 Er þetta Harpan eða hvað? verður
eflaust einhverjum á að hugsa.
Við höfum verið með fyrirlestraröð með
þessu þema frá því í haust,“ segir Hulda
Stefánsdóttir, prófessor við myndlistar-
deild Listaháskóla Íslands, spurð um
fyrirlestur sem Ragna Róbertsdóttir
myndlistarmaður heldur í LHÍ í hádeg-
inu í dag. Þemað sem um ræðir er
vinnustofan.
„Við hugsum þetta sem nánari skoðun
á vinnuaðferðum og innblæstri lista-
manna og beinum sjónum að allri
vinnunni sem liggur að baki fullkláruð-
um listaverkum og sýningum,“ útskýr-
ir Hulda. „Við fáum í rauninni að skoða
innviði starfs listamannsins. Þess vegna
kusum við þennan titil; vinnustofan.
Þetta eru opnir fyrirlestrar sem hefjast
klukkan 12.30 á mánudögum í húsnæði
myndlistardeildar á Laugarnesvegi 91.
Við höfum haldið í þessa mánudags-
fyrirlestrahefð árum saman, alveg
frá stofnun Listaháskólans og þetta er
okkar leið til að miðla út í samfélagið
því sem fer fram á okkar starfssviði.“
Rögnu Róbertsdóttur er óþarfi að
kynna, en Hulda gerir það samt: „Ragna
Róbertsdóttir á að baki langan og far-
sælan feril sem myndlistarmaður og
hefur ferðast víða við sýningarhald,
úrvinnslu og uppsetningu verka sinna.
Segja má að Ragna geri sérhvert sýn-
ingarrými sem hún tekst á við að vinnu-
stofu sinni. Annar alls ólíkur staður
innblásturs og bókstafleg uppspretta
verka hennar er víðátta íslenskrar nátt-
úru, nánar tiltekið nágrenni eldstöðva
Heklu. Í fyrirlestri sínum mun Ragna
taka dæmi af sýningarverkefnum sínum
og tilraunum með tilfærslu efnivið-
ar gjósku og glerbrota inn í sýningar-
rýmið.“
Haldnir eru átta fyrirlestrar á hvoru
misseri, sextán á vetri, og Hulda segir
þá eiga sér töluvert stóran hóp fastra
gesta.
„Hugmyndin sem l iggur ti l
grundvallar fyrirlestrunum er að kynna
hversu mikil grasrót myndlistin er í eðli
sínu. Hvað hún tengist inn á breitt svið
og gerir allt að sínu á eigin forsend-
um. Hugsunin með vinnustofunni er að
benda á að það er svo margt sem mynd-
listarmenn nota sem vinnustofu.
Það hefur komið æ betur í ljós með
hverjum fyrirlestri að hver og einn lista-
maður hefur sitt snið á þessu. Sumir eru
kannski bara með vinnubók í vasa og
geta tekið hana upp hvar sem er þannig
að hvaða staður sem er getur orðið að
vinnustofu. Aðrir eru bundnir við tiltek-
in rými og svo mætti lengi telja, þannig
að það hefur verið mjög mikil breidd í
þessum fyrirlestrum fram til þessa og
mjög gaman að fylgjast með.“
Meðal þeirra sem halda munu fyrir-
lestra um vinnustofuna á vormisseri er
Guðjón Ketilsson, sem verður með sinn
fyrirlestur mánudaginn 5. mars.
fridrikab@frettabladid.is
OPNIR FYRIRLESTRAR Í LHÍ: RAGNA RÓBERTSDÓTTIR TALAR UM VINNUSTOFUNA
Skoðun á vinnuaðferðum
og innblæstri listamanna
VINNUSTOFAN „Hugmyndin sem liggur til grundvallar fyrirlestrunum er að kynna hversu mikil grasrót myndlistin er í eðli sínu,“ segir Hulda
Stefánsdóttir, prófessor við myndlistardeild LHÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Þorgrímur Þorgrímsson
stórkaupmaður og fyrrverandi
ræðismaður Chile, til heimilis að
Skildinganesi 23 í Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi, þann 29. janúar sl.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey 8. febrúar sl.
Jóhanna Kjartansdóttir Örvar
Hanna Þóra Þorgrímsdóttir
Hrafnhildur Þorgrímsdóttir
Þorgrímur Þ. Þorgrímsson Elisabeth Saguar
Astrid E. Þorgrímsdóttir
Daníel Þór Þorgrímsson
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ingvar Magnússon
Nýbýlavegi 60,
sem lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 4. febrúar,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
14. febrúar kl. 15.00.
Jenný Bjarnadóttir
Bjarni Ingvarsson
Fríða Björk Ingvarsdóttir Hans Jóhannsson
Ingvar Örn Ingvarsson Hildur Fjóla Svansdóttir
Baldur Bjarnason, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Elín
Hansdóttir, Úlfur Hansson, Björk Ingvarsdóttir og Ingvar
Andri Ingvarsson.