Fréttablaðið - 13.02.2012, Side 44
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR20 20
menning@frettabladid.is
Einar Scheving og félagar koma
fram á fjórðu tónleikum djass-
tónleikaraðarinnar á KEX Host-
eli, Skúlagötu 28, sem verða
haldnir þriðjudaginn 14. febrú-
ar. Auk Einars skipa hljómsveit-
ina þeir Jóel Pálsson á saxófón,
Guðmundur Pétursson á gítar,
Eyþór Gunnarsson á hljómborð
og Jóhann Ásmundsson á bassa.
Þeir félagar munu leika leika
fönk- og bræðingsskotna djass-
tónlist, meðal annars eftir John
Scofield, Weather Report, Led
Zeppelin og fleiri. Auk þess
leika þeir nokkur lög eftir Einar
Scheving.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og standa í um það bil tvær
klukkustundir með hléi. Sem
fyrr er aðgangur ókeypis.
- gun
Funk-bræðingur
Anna María Design, Skólavörðustíg 3 Rvk
Aurum, Bankastræti 4 Rvk
Carat, Smáralind
Fjóla gullsmiður, Hafnargötu 21 Kef
Fríða skartgripahönnuður, Strandgötu 43 Hfj
G Þ Skartgripir og úr, Bankastræti 12 Rvk
Georg V. Hannah, Hafnargötu 49 Kef
Gull og Silfur, Laugavegi 52 Rvk
Gull og silfursmiðjan Erna, Skipholti 3 Rvk
Gullkistan, Frakkastíg 10 Rvk
www.gullsmidir.is
Valentínusardagurinn
er á morgun
Gefðu elskunni skartgrip í tilefni dagsins
Kíktu til gullsmiðsins - Hann tekur vel á móti þér
Gullkúnst Helgu, Laugavegi 11 Rvk
Meba, Kringlunni og Smáralind
Metal Design, Stefán Bogi gullsmiður
Skólavörðustíg 2 Rvk
Ófeigur gullsmiðja og listmunahús,
Skólavörðustíg 5 Rvk
Orr Gullsmiðir, Bankastræti 11 Rvk
Sign Gullsmíði og skartgripahönnun,
Tímadjásn, Grímsbæ Rvk
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR fatahönnuður heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands á morgun
klukkan tólf í tengslum við hina nýopnuðu sýningu TÍZKA – kjólar og korselett í Bogasal safnsins. Steinunn
hefur mikla þekkingu á íslenskri fatahönnun og tískustraumum 20. aldar og því fengur að fyrirlestrinum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 13. febrúar 2012
➜ Námskeið
20.15 Námskeiðið Pílagrímaleiðin til
Santiago de Compostella með rithöf-
undinum og ferðalangnum Jóni Björns-
syni hefst hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands.
➜ Fyrirlestrar
13.30 Bjarni E. Sigurðsson mun flytja
erindi um Flosa Þórðarson Freysgoða,
eða Brennu-Flosa eins og hann var
kallaður, í félgsmiðstöðinni Aflagranda
40. Fyrirlesturinn er í tengslum við
sýninguna Persónur úr Njálssögu, eftir
Þórhildi Jónsdóttur, sem er í gangi þar
núna.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
TROMMARI OG TÓN-
SKÁLD Einar Scheving
spilar á Kexi með öðrum
íslenskum tónsnillingum.
Gallerí 002, sem rekið er í
íbúðarblokk í Hafnarfirði,
er bókað vel fram á árið
2013. Galleríið er hugar-
smíð og heimili myndlistar-
mannsins Birgis Sigurðs-
sonar.
Þegar Birgir Sigurðsson missti
vinnuna árið 2010 leit hann svo
á að það væru skilaboð til hans
um að láta gamlan draum rætast
og helga líf sitt myndlistinni. „Ég
gekk með þá hugmynd í maganum
að breyta íbúðinni minni í gall-
erí og ég ákvað að kýla á hana.
Sumum finnst að íbúð eigi bara að
vera íbúð og bíll eigi bara að vera
bíll, en mér finnst það ekki. Íbúð
getur verið listasafn, þess vegna.“
Um 30 myndlistarmenn hafa
sýnt í Gallerí 002, en þar á meðal
eru Hekla Dögg Jónsdóttir, Ragn-
ar Kjartansson, Snorri Ásmunds-
son, Þorvaldur Þorsteinsson,
Hulda Vilhjálmsdóttir og Ingvar
Högni Ragnarsson. Sýningar
standa alla jafna yfir eina helgi
og þá tæmir Birgir íbúðina sína og
flytur út, svo myndlistarmennirn-
ir geti athafnað sig að vild. Eftir
helgina flytur hann svo aftur inn,
oft í breytt umhverfi, þar sem leif-
ar af listsköpun helgarinnar fá að
standa eftir. Fram undan er svo að
taka hugmyndina skrefi lengra, en
til stendur að breyta innréttingum
í húsinu í listaverk. „Það skemmti-
legasta við þetta er að ég var orð-
inn ofsalega leiður á sumum hlut-
um í íbúðinni. En eftir að 002 varð
til hefur framkvæmdagleðin í
þessari yndislegu íbúð aukist um
3.000 prósent,“ segir Birgir.
Í dag vinnur hann hlutastarf
sem rafvirki á veturna og tekur
svo vinnutarnir yfir sumartím-
ann, til að fjármagna rekstur
næsta vetrar. Hann hefur ekki
hefðbundnar tekjur af galleríinu,
enn sem komið er. „Nei, ekki enn
þá, en það mun gerast. En nú fæ ég
ómældar gleðitekjur út úr þessu,
sem skiptir mestu máli.“
Í sinni eigin myndlist sérhæf-
ir Birgir sig í ljósskúlptúrum og
hvers kyns gjörningum. Hann seg-
ist hafa sérstaklega gaman af því
að ögra hugmyndum fólks í mynd-
list sinni. Meðal þess sem hann
hefur fengist við er að túlka hreyf-
ingar iðnaðarmanna með dansi og
breyta bílnum sínum í ljósverk,
svo einungis tvennt af fjölmörgu
sé nefnt. Meðal þess sem hann
vinnur að í dag er að nota heild-
sölulista Ískrafts, síns gamla
vinnuveitenda, sem innblástur við
að skapa tónverk í miðaldastíl. Þá
vinnur hann jafnframt að bók um
Gallerí 002, í samstarfi við Ingvar
Högna, myndlistarmann kenndan
við Útúrdúr.
Gallerí 002 er uppbókað út þetta
ár og skipulagning fyrir árið 2013
er langt á veg komin. Birgir er
ekki spar á stóru orðin þegar hann
lýsir því hversu ánægður hann er
með galleríið sitt. „Þetta er það
langskemmtilegasta sem ég hef
nokkurn tímann gert og ögrar mér
á allan hátt.“
holmfridur@frettabladid.is
ÍBÚÐ ER EKKI
ÍBÚÐ OG BÍLL
ER EKKI BÍLL
HEIMILI OG GALLERÍ Nágrannar Birgis Sigurðssonar myndlistarmanns studdu við
bakið á honum þegar hann ákvað að opna gallerí á heimili sínu að Þúfubarði 17 í
Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í VERKI VALGERÐAR Síðasti listamaðurinn til að sýna í Galleríi 002 var Valgerður Freeland Sigurðardóttir, en hér má sjá Birgi
umkringdan verkum hennar á heimili sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA