Fréttablaðið - 13.02.2012, Síða 44

Fréttablaðið - 13.02.2012, Síða 44
13. febrúar 2012 MÁNUDAGUR20 20 menning@frettabladid.is Einar Scheving og félagar koma fram á fjórðu tónleikum djass- tónleikaraðarinnar á KEX Host- eli, Skúlagötu 28, sem verða haldnir þriðjudaginn 14. febrú- ar. Auk Einars skipa hljómsveit- ina þeir Jóel Pálsson á saxófón, Guðmundur Pétursson á gítar, Eyþór Gunnarsson á hljómborð og Jóhann Ásmundsson á bassa. Þeir félagar munu leika leika fönk- og bræðingsskotna djass- tónlist, meðal annars eftir John Scofield, Weather Report, Led Zeppelin og fleiri. Auk þess leika þeir nokkur lög eftir Einar Scheving. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og standa í um það bil tvær klukkustundir með hléi. Sem fyrr er aðgangur ókeypis. - gun Funk-bræðingur Anna María Design, Skólavörðustíg 3 Rvk Aurum, Bankastræti 4 Rvk Carat, Smáralind Fjóla gullsmiður, Hafnargötu 21 Kef Fríða skartgripahönnuður, Strandgötu 43 Hfj G Þ Skartgripir og úr, Bankastræti 12 Rvk Georg V. Hannah, Hafnargötu 49 Kef Gull og Silfur, Laugavegi 52 Rvk Gull og silfursmiðjan Erna, Skipholti 3 Rvk Gullkistan, Frakkastíg 10 Rvk www.gullsmidir.is Valentínusardagurinn er á morgun Gefðu elskunni skartgrip í tilefni dagsins Kíktu til gullsmiðsins - Hann tekur vel á móti þér Gullkúnst Helgu, Laugavegi 11 Rvk Meba, Kringlunni og Smáralind Metal Design, Stefán Bogi gullsmiður Skólavörðustíg 2 Rvk Ófeigur gullsmiðja og listmunahús, Skólavörðustíg 5 Rvk Orr Gullsmiðir, Bankastræti 11 Rvk Sign Gullsmíði og skartgripahönnun, Tímadjásn, Grímsbæ Rvk STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR fatahönnuður heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands á morgun klukkan tólf í tengslum við hina nýopnuðu sýningu TÍZKA – kjólar og korselett í Bogasal safnsins. Steinunn hefur mikla þekkingu á íslenskri fatahönnun og tískustraumum 20. aldar og því fengur að fyrirlestrinum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Mánudagur 13. febrúar 2012 ➜ Námskeið 20.15 Námskeiðið Pílagrímaleiðin til Santiago de Compostella með rithöf- undinum og ferðalangnum Jóni Björns- syni hefst hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. ➜ Fyrirlestrar 13.30 Bjarni E. Sigurðsson mun flytja erindi um Flosa Þórðarson Freysgoða, eða Brennu-Flosa eins og hann var kallaður, í félgsmiðstöðinni Aflagranda 40. Fyrirlesturinn er í tengslum við sýninguna Persónur úr Njálssögu, eftir Þórhildi Jónsdóttur, sem er í gangi þar núna. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is TROMMARI OG TÓN- SKÁLD Einar Scheving spilar á Kexi með öðrum íslenskum tónsnillingum. Gallerí 002, sem rekið er í íbúðarblokk í Hafnarfirði, er bókað vel fram á árið 2013. Galleríið er hugar- smíð og heimili myndlistar- mannsins Birgis Sigurðs- sonar. Þegar Birgir Sigurðsson missti vinnuna árið 2010 leit hann svo á að það væru skilaboð til hans um að láta gamlan draum rætast og helga líf sitt myndlistinni. „Ég gekk með þá hugmynd í maganum að breyta íbúðinni minni í gall- erí og ég ákvað að kýla á hana. Sumum finnst að íbúð eigi bara að vera íbúð og bíll eigi bara að vera bíll, en mér finnst það ekki. Íbúð getur verið listasafn, þess vegna.“ Um 30 myndlistarmenn hafa sýnt í Gallerí 002, en þar á meðal eru Hekla Dögg Jónsdóttir, Ragn- ar Kjartansson, Snorri Ásmunds- son, Þorvaldur Þorsteinsson, Hulda Vilhjálmsdóttir og Ingvar Högni Ragnarsson. Sýningar standa alla jafna yfir eina helgi og þá tæmir Birgir íbúðina sína og flytur út, svo myndlistarmennirn- ir geti athafnað sig að vild. Eftir helgina flytur hann svo aftur inn, oft í breytt umhverfi, þar sem leif- ar af listsköpun helgarinnar fá að standa eftir. Fram undan er svo að taka hugmyndina skrefi lengra, en til stendur að breyta innréttingum í húsinu í listaverk. „Það skemmti- legasta við þetta er að ég var orð- inn ofsalega leiður á sumum hlut- um í íbúðinni. En eftir að 002 varð til hefur framkvæmdagleðin í þessari yndislegu íbúð aukist um 3.000 prósent,“ segir Birgir. Í dag vinnur hann hlutastarf sem rafvirki á veturna og tekur svo vinnutarnir yfir sumartím- ann, til að fjármagna rekstur næsta vetrar. Hann hefur ekki hefðbundnar tekjur af galleríinu, enn sem komið er. „Nei, ekki enn þá, en það mun gerast. En nú fæ ég ómældar gleðitekjur út úr þessu, sem skiptir mestu máli.“ Í sinni eigin myndlist sérhæf- ir Birgir sig í ljósskúlptúrum og hvers kyns gjörningum. Hann seg- ist hafa sérstaklega gaman af því að ögra hugmyndum fólks í mynd- list sinni. Meðal þess sem hann hefur fengist við er að túlka hreyf- ingar iðnaðarmanna með dansi og breyta bílnum sínum í ljósverk, svo einungis tvennt af fjölmörgu sé nefnt. Meðal þess sem hann vinnur að í dag er að nota heild- sölulista Ískrafts, síns gamla vinnuveitenda, sem innblástur við að skapa tónverk í miðaldastíl. Þá vinnur hann jafnframt að bók um Gallerí 002, í samstarfi við Ingvar Högna, myndlistarmann kenndan við Útúrdúr. Gallerí 002 er uppbókað út þetta ár og skipulagning fyrir árið 2013 er langt á veg komin. Birgir er ekki spar á stóru orðin þegar hann lýsir því hversu ánægður hann er með galleríið sitt. „Þetta er það langskemmtilegasta sem ég hef nokkurn tímann gert og ögrar mér á allan hátt.“ holmfridur@frettabladid.is ÍBÚÐ ER EKKI ÍBÚÐ OG BÍLL ER EKKI BÍLL HEIMILI OG GALLERÍ Nágrannar Birgis Sigurðssonar myndlistarmanns studdu við bakið á honum þegar hann ákvað að opna gallerí á heimili sínu að Þúfubarði 17 í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í VERKI VALGERÐAR Síðasti listamaðurinn til að sýna í Galleríi 002 var Valgerður Freeland Sigurðardóttir, en hér má sjá Birgi umkringdan verkum hennar á heimili sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.