Fréttablaðið - 15.03.2012, Page 4
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 14.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,6072
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,05 127,65
199,51 200,47
165,95 166,87
22,317 22,447
22,179 22,309
18,703 18,813
1,5216 1,5306
194,53 195,69
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
WM 14A163DN
Tekur mest 5,5 kg, vindur upp
í 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+.
Íslenskt stjórnborð.
(Fullt verð: 109.900 kr.)
Tækifæri
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
19°
13°
12°
16°
18°
10°
10°
21°
16°
13°
15°
27°
10°
19°
15°
7°Á MORGUN
Fremur hægur
vindur.
LAUGARDAGUR
Víða 3-8 m/s en
hvessir S-til síðdegis.
2
0
-3
-1
-2
0
-1
2
2
3
-3
5
8
7
6
5
6
7
10
5
10
6
2
-2 -2
-3
2 1
-2
-2
-1
0
KÓLNAR Í dag má
búast við norðlæg-
um áttum, þeim
fylgir éljagangur N-
til en léttir heldur
til syðra. Á morgun
snýst vindur smám
saman í suðlægar
áttir og á laugar-
daginn eru horfur
á SV-átt og stöku
éljum, einkum NV-
og V-til. Hiti víða
um frostmark.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
VINNUMARKAÐUR Alls 11.621 ein-
staklingur var atvinnulaus í
febrúar að meðtali. Jafngildir það
7,3% fólks á vinnumarkaði. Þetta
kemur fram í tölum Vinnumála-
stofnunar um ástand á vinnu-
markaði í febrúar.
Atvinnulausum fjölgaði þar
með um 169 að meðaltali á milli
mánaða, eða um 0,1 prósentustig.
Er það í takt við spár greiningar-
aðila en yfirleitt nær atvinnuleysi
árstíðabundnu hámarki í febrúar
eða mars. Atvinnuleysi á höfuð-
borgarsvæðinu er nú 7,9% en á
landsbyggðinni er það 6,2%. - mþl
Nýjar tölur um vinnumarkað:
Atvinnulausum
fjölgaði lítillega
SUÐURNES Atvinnuleysi er mest á
Suðurnesjum eða 12,6%. Minnst er það
á Norðurlandi vestra eða 2,9%.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti og David
Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, sögðust í gær afar ánægðir
með hið góða samband og nánu
tengsl landanna.
Þeir hittust í Washington þar
sem Cameron heimsótti Banda-
ríkjaforseta í Hvíta húsinu.
Viðræður þeirra snerust að
stórum hluta um ástandið í
Afganistan, Íran og Sýrlandi, auk
þess sem þeir ræddu væntan-
lega leiðtogafundi NATO og G8-
ríkjanna á næstu vikum. - gb
Cameron heimsótti Obama:
Hæstánægðir
með tengslin
BRUNI „Við höfum það helvíti skítt. Það er
allt ónýtt og við erum bara að moka út
ruslinu,“ sagði Árni Steinarsson, annar
eiganda 800 Bars á Selfossi, í gærkvöld.
Veitingastaðurinn brann til kaldra kola
í gær þegar eldur kom upp í röraverk-
smiðjunni Seti upp úr hádegi. Bálið var
fljótt að breiðast yfir í samliggjandi hús-
næði 800 Bars, en eldveggur er á milli
húsanna sem vonast var til að héldi, en
hann gaf sig að lokum. Eldurinn fór þá
inn í loftræstirör og á nokkrum mín-
útum var þakið orðið alelda. Slökkvilið
frá Selfossi, Hveragerði, Þorlákshöfn og
Reykjavík var kallað út og tóku um sextíu
manns þátt í slökkvistarfinu.
Svo mikill varð eldurinn um tíma að
lögreglan á Selfossi sendi þau tilmæli
til íbúa að hafa glugga á húsum sínum
lokaða ef ske kynni að reyk frá brunastað
myndi leggja yfir hverfin. Þá var lokað
fyrir hluta af neysluvatnsveitu Árborgar
um tíma til að viðhalda vatnsþrýstingi á
vettvangi.
Ekki náðist að bjarga neinu út úr hús-
næði 800 Bar öðru en smávægilegu magni
af áfengisflöskum sem var borið út áður
en það varð eldinum að bráð. Eigendurnir
hafa ekki tekið ákvörðun um framhaldið,
en staðurinn er tryggður fyrir brunatjóni.
„Við vitum ekki hvað verður. Það verður
engin ákvörðun tekin um það núna,“
segir Árni. Talið er að tjónið hlaupi á
hundruðum milljónum króna.
Bergsteinn Einarsson, framkvæmda-
stjóri röraverksmiðjunnar Set, segir
brunann raska starfsemi verk smiðjunnar
sáralítið. Geymsluhúsnæðið hafi verið
það eina sem brann, en komið var í veg
fyrir að eldurinn læsti sig í sjálfa röra-
verksmiðjuna. Að sögn Bergsteins er
lagerbyggingin notuð í lítið annað en
geymslu en vissulega hafi orðið tölu-
vert tjón þar sem allt sem inni í henni
var brann til kaldra kola. Hann telur það
hlaupa á tugum milljóna.
„En þetta er mikið tjón fyrir 800 bar
sem missti allt sitt,“ segir Bergsteinn.
„Þeir standa uppi með miklu meiri röskun
á sinni starfsemi en við.“
Talið er að kviknað hafi í út frá raf-
magni, en starfsmenn Sets urðu varir
við rafmagnstruflanir í mötuneyti verk-
smiðjunnar um hádegi. Eldurinn var
búinn að breiðast mikið út þegar fólkið
sneri aftur til vinnu fyrir klukkan eitt.
Slökkvistarfi var að mestu lokið upp úr
klukkan sex í gærkvöld. sunna@frettabladid.is
Algjör eyðilegging á Selfossi
800 Bar á Selfossi brann til kaldra kola í gær. Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna. Eldurinn kom
upp í röraverksmiðjunni Seti og barst í nærliggjandi byggingar. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni.
HÚSIÐ GJÖRÓNÝTT Slökkvistarfi var að mestu lokið um kvöldmatarleytið í gærkvöld og var unnið hörðum höndum að
því að henda út rusli fram eftir kvöldi. MYND/KRISTJÁN BERGSTEINSSON
BÁLIÐ FLJÓTT AÐ BREIÐAST ÚT 800 Bar á Selfossi gjöreyði-
lagðist í miklum eldsvoða í gær þegar kviknaði í röraverk-
smiðjunni Seti upp úr hádegi. Fimm slökkvilið voru kölluð á
vettvang. MYND/JÓHANN K. JÓHANSSON
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Fjármálaráð-
herrar evruríkjanna sautján hafa
formlega samþykkt að veita Grikk-
landi fjárhagsaðstoð úr neyðarsjóði
Evrópusambandsins, eins og fyrir-
heit voru gefin um í síðustu viku.
Grikkir fá því 39,4 milljarða
evra greidda smám saman, sem á
að duga þeim til að greiða næstu
afborganir af ríkisskuldum.
Fjármálaráðherrarnir hafa
einnig samþykkt að beita refsi-
aðgerðum gegn Ungverjalandi
vegna þess að fjárlagahalli landsins
fer fram úr þeim mörkum sem
reglur ESB segja til um.
Margarethe Vestager, fjármála-
ráðherra Danmerkur, segir að þessi
ákvörðun verði reyndar endur-
skoðuð í júní, áður en til fram-
kvæmda refsiaðgerðanna kemur,
en þær felast í því að Ungverjar
fá ekki greiddar þær 495 milljónir
evra úr þróunarsjóðum ESB sem
þeir annars ættu rétt á.
Á hinn bóginn samþykktu evru-
ríkin að veita Spánverjum svigrúm
til þess að vera með 5,3 prósenta
fjárlagahalla í ár, eða nokkru hærri
halla en áður hafði verið gerð krafa
um. Spánverjar fá hins vegar ekki
að hafa hallann 5,8 prósent, eins og
þeir höfðu þó boðað, og þurfa því
að finna ný sparnaðarráð í ríkis-
rekstri upp á 0,5 prósent. - gb
Evruríkin refsa Ungverjum fyrir að halda ekki fjárlögum innan rammans:
Grikkir fá greitt úr neyðarsjóði
MARGARETHE VESTAGER Fjármálaráð-
herra Danmerkur á blaðamannafundi í
Brussel. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN Stærsti maður
heims er hættur að stækka, að
því er virðist. Hann er nú 251,5
sentimetrar á hæð.
Sultan Kösen, sem er fæddur í
Tyrklandi árið 1982, hefur gengist
undir meðferð við læknadeild
Virginíuháskóla í Bandaríkjunum.
Hann á við ofvöxt að stríða, sem
venjulega stafar af æxli í heila-
dingli og veldur margvíslegum
heilsuvanda. Læknarnir segja allt
benda til þess að meðferðin hafi
nú skilað þeim árangri að Kösen
sé hættur að stækka. - gb
Kösen hættur að stækka:
Læknum tókst
að stöðva vöxt
Þetta er mikið tjón fyrir 800
Bar sem missti allt sitt. Þeir
standa uppi með miklu meiri röskun á
sinni starfsemi en við.
BERGSTEINN EINARSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI SETS