Fréttablaðið - 15.03.2012, Page 6
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR6
Hvers vegna eru tígrisdýr röndótt?
Fimmtudaginn 15. mars
kl. 16:30 – 17:30
Stofa M101 í HR
ALAN TURING:
Faðir tölvunarfræðinnar
þessu tilefni:
ICE-TCS og tölvunarfræðideild HR efna til fyrirlestraraðar af
http://icetcs.ru.is/turingyear2012RU.html
Einstaklingar þróast úr einsleitri frumu yfir í að sýna oft
mjög flókin mynstur. Árið 1952 lagði Alan Turing grunninn
að því stærðfræðilega hvernig slík mynstur gæti komið
fram. Fjallað verður um kenningar Turings og áhrif þeirra.
Turing nýtti sér hugmyndir úr stærðfræði, líffræði,
efnafræði og tölvunarfræði en það er ekki gert ráð fyrir
þekkingu áheyrenda á þeim sviðum.
Fundir og ráðstefnur
Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn
fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa.
Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi,
flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf
varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
GLÆSILEGUR VEISLUSALUR!
Náttúruparadís í hjarta borgarinnar
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
499 kr.
Verð 995 kr.
Afsláttur
496 kr. 50%
3.990 kr.
Verð 10.270 kr.
Afsláttur
6.280 kr. 61%
Ekta St. Louis beikonborgari með osti og frönskum
á Grill 66 um allt land á aðeins 499 kr. (kostar 995 kr.)
GILDIR Í
24 TÍMA
1 ÁRS AFMÆLISVIKA
VIÐ ENDURTÖKUM ÖLL VINSÆLUSTU TILBOÐIN
1 af hverjum 100 fær
endurgreitt eitt Hópkaupsbréf!
hopkaup.is
Eyrnaband og handstúkur saman á aðeins 3.990 kr.
(kosta 10.270 kr.)
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu bárust tvær kærur
vegna hópnauðgana í fyrra. 18
einstaklingar leituðu til Stígamóta
vegna hópnauðgana árið 2011 og er
þetta mesti fjöldi sem hefur leitað
sér aðstoðar vegna málaflokksins
frá upphafi.
Björgvin Björgvinsson, yfir-
maður kynferðisbrotadeildar lög-
reglunnar, segir engan mark tækan
fjölda kæra vegna hópnauðgana
hafa borist inn
á borð lögreglu
undanfarin ár.
„[Kærur
ve g n a h ó p -
nauðgana] hafa
ekki komið inn
á borð lögreglu
í þessum mæli,“
segir Björgvin.
„Á síðasta ári
voru kærurnar
tvær. Fjöldi
mála þar sem gerendur hafa verið
fleiri en einn hefur verið á svipuðu
róli í gegnum árin.“
Önnur kæran sem um ræðir
var á hendur Agli Einarssyni og
kærustu hans. Parið var kært
fyrir nauðgun í byrjun desember
í fyrra. Málið er nú á borði ríkis-
saksóknara og er búist við því
að það taki að minnsta kosti tvo
mánuði þar til ákveðið verði hvort
ákæra verði gefin út. Hin kæran
var á hendur tveimur pólskum
karlmönnum, Arkadiusz Zdzislaw
Pawlak og Rafal Grajewski. Kona
kærði þá fyrir nauðgun í október í
fyrra og voru mennirnir dæmdir í
fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í janúar.
Þessar fáu kærur koma Guðrúnu
Tvær hópnauðganir
af 18 kærðar í fyrra
Lögreglunni bárust tvær kærur vegna hópnauðgana á síðasta ári. Búið að
dæma í öðru málinu. 18 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana. Ein möguleg
ástæða fjölgunar mála hjá Stígamótum er aukin gengjamyndun, segir talskona.
GUÐRÚN
JÓNSDÓTTIR
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Tveir menn voru úrskurðaðir í fjögurra ára fangelsi
vegna hrottafenginnar nauðgunar í janúar síðastliðnum og er það eina hóp-
nauðgunin frá 2011 sem hefur ratað fyrir dómstóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Af þeim 18 hópnauðgunartilkynningum sem bárust Stígamótum í fyrra voru
ofbeldismennirnir tveir í sex tilvikum, í tveimur tilvikum þrír og í þremur til-
vikum voru ofbeldismennirnir fjórir eða fleiri. Upplýsingar vantaði um fjölda
gerenda í sjö tilfellum.
Ríflega 11 prósent af þeim 313 einstaklingum sem leituðu til samtakanna í
fyrra kærðu mál sín til lögreglu.
Fjórir eða fleiri menn í þremur tilvikum
ATVINNUMÁL Ráðist verður í sérstakt
átak vegna sumarstarfa ungmenna
í ár. Álíka verkefni var í gangi í
fyrra þar sem velferðarráðuneytið
og Vinnumálastofnun auglýstu 900
sumarstörf um allt land. Átakið á
að fjölga störfum á vegum ríkisins
og sveitarfélaga ætluðum náms-
mönnum og atvinnuleitendum.
Vinnumálastofnun hefur nú þegar
lagt inn umsókn til velferðarráðu-
neytisins vegna verkefnisins.
Sara Sigurðardóttir, formaður
Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir
átakið nauðsynlegt þar sem margir
stúdentar séu í óvissu með sumar-
vinnu. „Við í Stúdentaráði vonum að
umsóknin verði samþykkt þar sem
atvinnutækifæri stúdenta eru ekki
mörg,” segir Sara. „Átakið gekk
vonum framar í fyrra þar sem tókst
að búa til fjölda starfa fyrir ung-
menni um allt land.“
Stúdentaráð hefur í hyggju að
verðlauna það fyrirtæki sem ræður
flesta stúdenta til starfa. „Við viljum
gera okkar besta til að afla vinnu
fyrir sem flesta stúdenta og því
munum við afhenda því fyrirtæki
sem reynist stúdentum í atvinnu-
leit best ákveðna heiðursviður-
kenningu,“ segir Sara. - st
Fjölga á störfum á vegum ríkis og sveitarfélaga ætluðum námsmönnum:
Átak vegna sumarstarfa ungra
VIÐSKIPTI Tólf mánaða verðbólga
í Evrópu var hvergi meiri en á
Íslandi í síðasta mánuði, sam-
kvæmt samræmdri neyslu-
verðsvísitölu Hagstofu Evrópu-
sambandsins.
Verðbólgan var 6,7% á Íslandi
en meðaltalsverðbólga í ríkjum
innan Evrópusambandsins
var 3,0%. Næstmest var verð-
bólgan í Ungverjalandi, en þar
var hún 5,8%. Í Sviss var 1,2%
verð hjöðnun en í verðbólgan var
einna lægst í Noregi. Þar var
hún 1%. - jhh
Nýjar tölur frá Hagstofu ESB:
Verðbólgan
mest á Íslandi
Jónsdóttur, talskonu Stígamóta,
ekki á óvart.
„Það er mín tilfinning að eftir
því sem brotin verða alvarlegri
verður erfiðara að kæra,“ segir
hún. „Og líklegt er að óttinn eftir
atburðinn verði enn meiri ef um
hóp gerenda er að ræða.“
Guðrún bendir á að þrátt fyrir
að 18 tilkynningar hafi borist,
séu tilvikin það fá að eðlilegt
sé að fjöldinn taki töluverðum
breytingum milli ára, en árið 2010
leituðu 13 einstaklingar til Stíga-
móta vegna hópnauðgana.
„Þó gæti verið að ein ástæða
fjölgunarinnar sé aukin gengja-
myndun hér á landi og hvernig
sá kúltúr er að festa sig í sessi
hér á óskemmtilegan máta,“ segir
Guðrún og bætir við að flestir
meintir gerendur í málunum hafi
verið Íslendingar.
sunna@frettabladid.is
SUMARVINNA Búa á til fjölda sumar-
starfa fyrir ungmenni um allt land.
Var rétt hjá Alþingi að herða
gjaldeyrishöftin?
JÁ 62,6%
NEI 37,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hjólar þú í vinnuna?
Segðu þína skoðun á visir.is
HÚSNÆÐISMARKAÐUR Íbúðalánasjóður átti þann 20.
febrúar síðastliðinn alls 1.751 íbúð. Af þeim voru
804 íbúðir áður í eigu einstaklinga en 947 áður í
eigu lögaðila. Alls eru 707 af íbúðunum í útleigu en
698 standa auðar. Þá eru 255 eignir óíbúðarhæfar og
91 eign nýkomin í eigu sjóðsins og því enn flokkuð
sem í vinnslu.
Þetta er meðal þess sem kom fram í svari Guð-
bjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrir-
spurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi um íbúðaeign Íbúða-
lána sjóðs. Fyrirspurn Guðlaugs var lögð fram þann
13. febrúar en svarið barst á mánudag.
Sé litið til landshluta eru flestar eignir á Suður-
nesjum eða 529 talsins. Á höfuðborgarsvæðinu á
Íbúða lánasjóður 340 eignir, á Suðurlandi 260 eignir
og á Vesturlandi 244 eignir. Þá á sjóðurinn 224 eignir
á Austurlandi, 114 á Norðurlandi og 39 á Vestfjörðum.
Af póstnúmerum skera póstnúmer 230 og 260 í
Reykjanesbæ sig úr en Íbúðalánasjóður á saman-
lagt 404 eignir í póstnúmerunum. Þá á sjóðurinn 109
eignir í póstnúmeri 800 í Árborg, 105 eignir í póst-
númeri 730 í Fjarðabyggð og 91 eign í póstnúmeri
300 á Akranesi. - mþl
Tæpan þriðjung eigna Íbúðalánasjóðs að finna á Suðurnesjum:
698 eignir Íbúðalánasjóðs auðar
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Íbúðalánasjóður leigir út alls 707 íbúðir
í sinni eigu, að mestu til aðila sem bjuggu í eignunum þegar
sjóðurinn eignaðist þær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN