Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 12
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
GÓÐ HÚSRÁÐ Margnota hárnæring
Hárnæring sem augnfarðahreinsir
Kostnaður vegna aðgerða
á dýrum sem veikjast eða
lenda í slysum getur hlaupið
á hundruðum þúsunda
króna. Hægt er að kaupa
sjúkrakostnaðar tryggingar
hjá tryggingafélögum
fyrir dýr auk líftrygginga,
ábyrgðartrygginga,
afnotamissistrygginga og
umönnunar trygginga.
„Ég átti hund sem lenti í slysi
og sjúkra kostnaðurinn nam
hundruðum þúsunda króna. Ég
hefði reynt að fá yfirdráttarlán til
að bjarga fæti hundsins ef ég hefði
ekki verið með sjúkrakostnaðar-
tryggingu. Nú þegar fólk hefur
almennt minna á milli handanna
er nauðsynlegt að vera með slíka
tryggingu. Það þarf þá ekki að
horfa í aurana þegar það stendur
frammi fyrir þeirri ákvörðun
hvort taka eigi tvær blóðprufur í
viðbót eða fleiri en eina röntgen-
mynd,“ segir Brynja Tomer,
hundaeigandi og sölumaður dýra-
trygginga hjá VÍS.
Sjúkrakostnaðartrygging er
mikil vægust allra dýra trygginga,
að mati Brynju. „Hjá VÍS fylgir
hún dýrinu alla ævi. Hún bætir
dýralæknakostnað og lyfja-
kostnað ef dýr veikjast eða slasast
og gerir okkur kleift að veita
dýrunum okkar bestu mögulegu
umönnun.“
Iðgjaldið fyrir hunda fer eftir
því um hvaða tegund er að ræða.
„Langalgengast er að sjúkra-
kostnaðar tryggingin kosti um
sjö þúsund krónur á ári. Stærstu
hundarnir eru í þeim hópi og
flestar hundategundir. Ið gjaldið
er hærra þegar um er að ræða
tegundir sem vitað er að eru
útsettar fyrir alls konar sjúk-
dómum. Iðgjaldið getur einnig
verið lægra en sjö þúsund krónur.“
Sjálfsáhættan er um 11 þúsund
krónur á 100 daga tímabili, að því
er Brynja greinir frá. „Ef fólk
lendir í meiri dýralæknakostnaði
á þessu tímabili greiðum við 90
prósent af því sem er umfram upp
að 400 þúsundum króna.“
Ábyrgðartrygging veitir vernd
gegn þeirri skaðabótaskyldu sem
getur fallið á eiganda hundsins sé
skaðabótaskyldan bein afleiðing
af tjóni á mönnum og munum.
„Þetta á ekki við þegar hundur
veldur tjóni á eigin heimili eða á
heimili þar sem hann er í gæslu.
Aðstæður þurfa að vera þannig að
eigandi hafi bakað sér bótaskyldu.
Það má nefna dæmi um hund sem
losnaði úr taumi og hljóp út á götu.
Bíll negldi niður og annar keyrði
aftan á hann. Eigandi hundsins var
bótaskyldur og ábyrgðartrygging
hundsins bætti tjón á bílunum,“
útskýrir Brynja.
Hún bendir á að mörg sveitar-
félög hafi ábyrgðartryggingu fyrir
hunda innifalda í leyfisgjaldi og þá
þurfi ekki að kaupa hana sérstak-
lega.
Að sögn Brynju er algengur
kostnaður vegna bæði sjúkra-
kostnaðartryggingar og líf-
tryggingar 15 til 20 þúsund krón-
ur á ári án afsláttarkjara.
Þeim sem tryggja dýrin sín
fjölgar stöðugt, einkum hunda-
eigendum. „Kattaeigendur mættu
huga aðeins betur að þessu.
Veikindi heimiliskattar geta farið
með fjárhaginn. Það er hrikalegt
að standa frammi fyrir því að
buddan ráði því hvort hægt sé að
veita dýrinu læknisþjónustu. Það
kostar bara örfá þúsund á ári að
tryggja kött.“ ibs@frettabladid.is
Kostar um sjö
þúsund á ári að
tryggja hund
Á vefnum turisti.is er bent á að það geti kostað allt að
1.500 krónum meira að taka út 300 evrur í erlendum
hraðbanka en í útibúi hér heima. Greint er frá því að
greiddar séu að lágmarki 440 til 675 krónur fyrir að
nota erlendan hraðbanka með íslensku kreditkorti.
Fari úttektin yfir 15 þúsund krónur hækki þóknunin
og nemi þá 2,5 til 4,5 prósentum af upphæðinni. Við
þóknuna bætist einnig gjald sem eigandi hraðbankans
leggur ofan á. Turisti.is segir ódýrara að nota debetkort
en kreditkort í hraðbönkum úti því þóknunin á þeim
sé um einu prósenti lægri. Kortagengið sé hins vegar
það sama fyrir þessi greiðslukort.
■ Viðskipti
Dýrt getur verið að nota hraðbanka erlendis
Neytendasamtökunum hafa borist ábendingar um að verslanir sem eru með
kjöt- og fiskborð vigti allajafna umbúðir með þegar varan er vigtuð við sölu.
Þetta kemur fram á vef samtakanna sem vilja koma því á framfæri að slíkt sé
óheimilt samkvæmt reglugerð um merkingu matvæla. Bent er á að þetta gildi
einnig þegar matvörur eru seldar uppvigtaðar í kæliborðum eins og raunar
um allar aðrar matvörur. Á vef samtakanna segir að þau ætlist til þess að
verslanir fari að reglum og stilli vigtir þannig að umbúðir séu dregnar frá við
vigtun. Neytendur eru hvattir til að fylgjast með þessu og láta samtökin vita séu
umbúðir vigtaðar með.
■ Matvæli
Óheimilt er að vigta umbúðir með mat-
vælum
■ Sjúkrakostnaðartrygging fylgir dýrinu alla ævi hjá VÍS. Hún bætir dýra-
læknakostnað og lyfjakostnað ef dýr veikjast eða slasast.
■ Líftrygging greiðir bætur ef hundur hverfur, deyr, slasast eða veikist svo
illa að aflífun þarf, að mati dýralæknis.
■ Afnotamissistrygging bætir ef hundur hefur til frambúðar misst sérstaka
hæfileika sem hann bjó yfir.
■ Ábyrgðartrygging veitir vernd gegn þeirri skaðabótaskyldu sem getur fallið
á tryggingartaka sem eiganda hundsins.
■ Umönnunartrygging tryggir viðeigandi vistun geti eigandi ekki sinnt
honum með fullnægjandi hætti vegna slyss eða veikinda.
Fjölbreyttar tryggingar í boði fyrir dýrin
MIKILVÆGT AÐ TRYGGJA
Brynja Tomer á um
þessar mundir griffon-
hunda sem eru henni
afar kærir.
HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfða 20 Reykjavík sími 585 7200
OPIÐ Virka daga 10-18 laugardaga 12-18 sunnudaga lokað
NÚNA
20%
AFSLÁTTUR
LARAMIE sófasett microfiber áklæði.
2 sæta sófi B:170 D:95 H:95 cm.
3 sæta B:220 D:95 H:95 cm.
ASPEN La-z-boy stóll.
B:85 D:85 H:100 cm.
Fæst svörtu eða brúnu leðri.
111.980
FULLT VERÐ: 139.980
GERÐU
FRÁBÆR KAUP!
NÚNA
20%
AFSLÁTTUR
FULLT VERÐ: 159.990
2 SÆTA
143.990127.990
FULLT VERÐ: 179.990
3 SÆTA
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar
Þó augnfarðahreinsirinn sé
búinn í baðherbergisskápnum
er óþarfi að örvænta. Hár-
næring hefur ekki einungis
það hlutverk að gera hárið
glansandi mjúkt og næringar-
ríkt, heldur virkar hún einnig
vel sem augnhreinsir. Munið
bara að skola vel á eftir.
ER HÆKKUNIN á verði neftóbaks frá því í febrúar 2007 þar
til í febrúar á þessu ári. Áður kostaði neftóbaksdósin 400 krónur en
nú kostar hún 969 krónur.
142%