Fréttablaðið - 15.03.2012, Page 16
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR16
Umsjón: nánar á visir.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
EIRVÍK innréttingar
NÝJUNG
á íslenskum
innréttingamarkaði
Farðu alla leið með Eirvík
Við höfum gert samning við einn stæsta innréttingafram-
leiðanda Þýskalands um framleiðslu á eldhúsinnréttingum
sem verða seldar undir vörumerki Eirvíkur.
Þér er boðið í glæsilegan sýningasal okkar þar sem við
kynnum nýjustu strauma í hönnun eldhúsa.
ÞÝSKÍSLENSKSAMVINNA
SÝNING LAUGARDAG KL. 11:00-15:00
Íbúðalánasjóður stefnir að því að
hefja að bjóða óverðtryggð húsnæð-
islán í haust. Alþingi samþykkti 17.
september í fyrra að gefa sjóðnum
heimild til þess að veita slík lán.
„Þetta er vitaskuld stórt mál
og ýmsar hindranir í veginum en
okkur hefur orðið margt ágengt.
Við höfum nú í meginatriðum
teiknað upp hvaða valkosti við
sjáum fyrir að geta veitt,“ segir
Sigurður Erlingsson, framkvæmda-
stjóri Íbúðalánasjóðs, og heldur
áfram: „Það er einn skýr val-
kostur efst á teikniborðinu og þessa
dagana erum við að útfæra hann
aðeins nánar. Við teljum þetta vera
áhugaverðan kost og höfum einnig
fengið að heyra það frá þeim sem
hafa fengið kynningu á honum.“
Sigurður segir að gangi allt
eftir muni Íbúðalánasjóður hefja
að bjóða óverðtryggð lán eftir
sumar frí. Þá segir hann að við
vinnu sjóðsins hafi verið litið til
þess að bjóða óverðtryggð lán til
lengri tíma en nú standi til boða
á markaðnum. Þá leggur hann
áherslu á að draga úr áhættu lán-
takenda eins og frekast er kostur.
Þá mun Íbúðalánasjóður leggjast
í útgáfu á óverðtryggðum skulda-
bréfum í tengslum við þennan
nýja valkost. „Við munum hér eftir
sem hingað til reyna í okkar fjár-
mögnun að tryggja að skulda- og
eignahliðarnar séu paraðar saman.
Það má því búast við því að nýjar
útgáfur líti dagsins ljós í haust,“
segir Sigurður og bætir við að
sennilega verði fyrst farið í útgáfu
og svo í kjölfarið verði lánveitingar
hafnar. - mþl
Fyrsta skrefið að gefa út óverðtryggð skuldabréf:
Íbúðalánasjóður kynnir
óverðtryggð lán í haust
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Íbúðalánasjóður
mun ráðast í útgáfu á óverðtryggðum
skuldabréfum í haust í aðdraganda þess
að bjóða í fyrsta sinn óverðtryggð hús-
næðislán. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Norræni fjárfestingabankinn
(NIB) hefur ákveðið að lækka
vexti á lánum Orkuveitu Reykja-
víkur (OR). Stjórnendur OR líta
á þetta sem merki um aukinn
trúverðugleika fyrirtækisins á
alþjóðlegum fjármálamarkaði. Í
til kynningu til Kauphallar vegna
þessa kemur fram að þetta sé
gert vegna þess árangurs sem
náðst hefur í rekstri hennar. Full-
trúar bankans hafa fylgst náið
með framvindu aðgerðaáætlunar
OR og eigenda hennar, sem köll-
uð er „PLANIГ, og kynnt var
vorið 2011. Samkvæmt henni er
fjárþörf fyrirtækisins rúmlega
50 milljarðar króna á tímabilinu
2011-2016. Til að brúa það bil hefur
nýfjárfestingum verið frestað,
dregið hefur verið úr rekstrar-
kostnaði, gjaldskrá hækkuð, eignir
seldar og eigendur OR hafa veitt
fyrirtækinu há víkjandi lán.
Í yfirliti yfir framvindu
áætlunarinnar í lok september
síðast liðins, sem Frétta blaðið hefur
undir höndum, kemur fram að
97,26% af markmiðum verkefnisins
á árinu 2011 hafi náðst á þeim tíma.
OR mun birta ársreikning sinn á
morgun. Þá er einnig áformað að
kynna næstu framvinduskýrslu.
- þsj
Aðgerðaáætlun OR og eigenda skilar árangri:
NIB lækkar vexti á
lánum Orkuveitunnar
FRÉTTASKÝRING
Af hverju var hætt við skráningu
Horns?
Fagfjárfestar, að mestu lífeyris-
sjóðir, vildu ekki að Landsbankinn
ætti meira en helmingshlut í Horni
fjárfestingafélagi hf. eftir að það
yrði skráð á hlutabréfamarkað.
Þegar bankinn lýsti sig tilbúinn
til að verða við því þá kom í ljós að
eftirlitsaðilar sættu sig ekki við að
bankinn héldi á meira en 10-20%
hlut nema til skemmri tíma.
Bankanum var tilkynnt að þeir
myndu krefjast þess að hann
minnkaði stöðu mjög hratt eftir
skráningu. Að mati Lands bankans
hefði slíkt lækkað virði Horns.
Þetta eru helstu ástæður þess
að hætt hefur verið við skráningu
Horns á markað, að minnsta kosti
í bili. Félagið, sem er í 100%
eigu Landsbankans, hafði kynnt
þau áform fyrir fagfjárfestum á
undan förnum vikum að það ætlaði
að skrá sig á almennan hlutabréfa-
markað í lok mars eða byrjun
apríl.
Ætluðu að selja fjórðung
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins stefndi Landsbankinn
upprunalega að því að selja um
25% í Horni þegar félagið yrði
skráð á markað. Ástæðan var sú
að félagið er bæði stórt og dýrt og
ekki var reiknað með að hægt yrði
að selja meira til að byrja með.
Síðan var vilji til að minnka stöðu
bankans hægt og rólega.
Lífeyrissjóðir sem fengu
kynningu á þessari leið vildu ekki
að bankinn myndi eiga meirihluta,
enda héldi hann þá áfram á öllum
stjórnarþráðum í höndum sér.
Landsbankinn var þá tilbúinn að
fara niður fyrir 50% en samhliða
myndi verðið lækka. Mun meiri
áhugi var á þeirri leið hjá fagfjár-
festum. Heimildir Fréttablaðs-
ins herma að þá hafi hins vegar
borist skilaboð frá Fjármála-
eftirlitinu (FME) um að bankanum
yrði gert að minnka eignarhald
sitt mjög hratt niður í allt að 10%
hlut eftir skráningu. Það er í sam-
ræmi við ákvörðun FME varðandi
Bankinn hefði þurft
að selja Horn hratt
LANDSBANKINN Sumar af verðmætustu eignum sem bankinn hefur eignast í
kjölfar hrunsins voru settar inn í Horn. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Horn er í 100% eigu Landsbankans og því óbeint í meirihlutaeigu íslenska
ríkisins, sem á 81,3% hlut í bankanum. Eignir Horns eru um 30 milljarðar
króna og eigið fé um 24 milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum. Félagið mun birta ársreikning sinn á allra næstu dögum.
Á meðal eigna félagsins eru 49,9% hlutur í Promens, 12,5% hlutur í Eyri
Invest, 6,7% hlutur í A bréfum og 42,6% hlutur í B bréfum Stoða (áður FL
Group), 6,54% hlutur í Oslo Bors VPS Group og 3,95% hlutur í Eimskipi.
Auk þess á Horn 1,9% hlut í Intrum Justitia sem er skráð á markað í Svíþjóð.
Félagið hagnaðist um 10,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum síðasta árs.
Birta ársreikning á næstu dögum
skráningu Haga á hlutabréfa-
markað í desember síðastliðnum. Í
skráningarlýsingu Haga kom fram
að Eignabjarg, dótturfélag Arion
banka, þyrfti að selja 20% eignar-
hlut sinn fyrir 1. mars síðast liðinn.
Á endanum veitti FME Eigna-
bjargi leyfi til að eiga áfram 10%
hlut en félagið seldi hin 10% til
fjárfesta í lokuðu útboði.
Áhyggjur af lækkuðu verði
Innan Landsbankann höfðu menn
áhyggjur af því að krafa um að
selja stóran hluta í Horni hratt
myndi lækka verðið sem bankinn
fengi fyrir hlut sinn, og bréf þeirra
sem hefðu fjárfest í félaginu við
skráningu. Því var ákveðið að
hætta við skráningu og tilkynna
bæði FME og Kaup höllinni um
það.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ekki búið að útiloka
að skrá Horn á markað, þó að
það sé ólíklegra en áður. Á meðal
annarra leiða sem verið er að
skoða varðandi framtíð félagsins
er að stofna sérstaka fagfjár-
festasjóði innan dótturfélags
Landsbankans til að eiga í Horni
eða að selja undir liggjandi eignir
þess hverja fyrir sig.
thordur@frettabladid.is
HÆKKUN er orðin á Kanadadollar gagnvart íslensku
krónunni frá áramótum. Á sama tíma hefur evra hækkað
um 5 prósent og Bandaríkjadalur um 3,8 prósent.
6,9%