Fréttablaðið - 15.03.2012, Síða 25
FIMMTUDAGUR 15. mars 2012 25
Í marsmánuði taka 10. bekk-ingar á landinu öllu þátt í
PISA rannsókninni. PISA mælir
kunnáttu 15 ára nemenda um
allan heim í stærðfræði, les-
skilningi og náttúrufræði. PISA
er ekki próf sem nemendur
undir búa sérstaklega heldur
mæling á hæfni og þekkingu
ungmenna við lok skyldunáms.
Það reynir á ályktunarhæfni, les-
skilning og beitingu mis munandi
aðferða. Niður stöðurnar gefa
okkur vís bendingar um hvar
við stöndum vel og hvar síður
og því betur sem nemendur
leggja sig fram, því betri mynd
af kunnáttu nemenda búum við
yfir.
Undanfarin misseri hefur
Reykjavíkurborg beint sjónum
sínum sérstaklega að PISA,
bæði niðurstöðunum og hvernig
þær geta vísað veginn til
öflugrar skólaþróunar. Borgin
hefur stutt við samstarf fag-
hópa kennara á unglingastigi
og kennara úr Háskóla Íslands
og stóraukið fræðslu um PISA
og árangursríka kennsluhætti.
Mikil áhersla hefur verið lögð
á að auka vitund kennara,
foreldra og nemendanna sjálfra
um mikilvægi rann sóknarinnar
fyrir reykvískt skólastarf.
Skólayfirvöld í Reykjavík hafa
frá fyrstu tíð unnið að þeirri
vitundar vakningu í samstarfi
við Samfok, samtök foreldra
grunnskólabarna í Reykja-
vík. Rannsóknir hafa sýnt að
engin ein breyta hefur við-
líka jákvæðari margföldunar-
áhrif til góðs fyrir árangur og
vellíðan barna í skóla eins og
jákvæð og hvetjandi viðhorf
foreldra til náms barna sinna.
En ekki bara til náms, heldur
einnig til félagslífs, óformlegs
náms og sköpunargleði.
Því hefur Reykjavíkurborg í
samstarfi við grunnskóla, félags-
miðstöðvar og foreldra, blásið
til hæfileikakeppni meðal 15 ára
ungmenna, Písa Keik 2012. Þar
gefst 10. bekkingum tækifæri til
að láta ljós sitt skína í gegnum
sköpun og listir. Við biðjum unga
fólkið að íhuga með okkur svarið
við spurningunni: Hvers vegna
finnst þér mikilvægt að gera þitt
besta? Við vitum að það stendur
ekki á svörunum. Og við skulum
leggja við hlustir.
Hvers vegna er mikilvægt að gera sitt besta?
Mjög þörf umræða hefur verið um mikilvægi þess að börn og
unglingar lesi sér til gagns og gam-
ans. Samkeppnin um tíma barna
verður sífellt meiri og fjölbreyttari.
Tölvuleikir og netið virðast heilla
meira en lestur bóka.
Af því tilefni langar mig að
minna á hvað Disney gegnir drjúgu
hlutverki þegar kemur að lestri
íslenskra barna. Það er augljós
staðreynd að Disney-bækur hafa
löngum verið vinsælustu lestrar-
bækur barna á Íslandi. Bækur sem
Edda útgáfa gefur út undir merkj-
um Disney hafa vakið áhuga barna
á lestri og stuðlað að hæfni þeirra til
að takast á við nám á síðari stigum.
Útgáfa barnaefnis er vandmeð-
farin og því er ekkert gefið eftir
í gæðum þegar efni frá Disney er
annars vegar. Þýðingar á barna-
bókum eru þar með taldar. Til að
mynda hefur hinn virti þýðandi
Jón Stefán Kristjánsson þýtt Andr-
ésblöðin sl. átta ár við miklar vin-
sældir. Aðeins fagfólk kemur að
útgáfu bóka og blaða frá Disney og
kröfur um rétt og gott málfar eru
í öndvegi.
Eins og Jón Stefán þýðandi segir
í viðtali við Egil Helgason í Kilj-
unni, þann 8. febrúar sl.: „… text-
inn í Andrés Önd er vel skrifaður.
Stundum er hann – kviss, bamm,
búmm – einfaldur og aðgengilegur
en oft ögrar textinn börnunum og
kennir þeim þannig að krakkarnir
þurfa virkilega að einbeita sér að
lestrinum“.
Bækur frá Disney eru jafnan í
efstu sætum sölulista bóksala og
útgefenda á hverju ári og gróflega
áætlað eru um 60 til 70% af 10 efstu
sætunum á hverju ári. Þá eru ekki
teknar með bækur sem viðskipta-
vinir fá í áskrift.
Alls berast um 300 þúsund ein-
tök af íslenskum Disney-blöðum og
bókum til íslenskra barna á hverju
ári. Eintakafjöldinn segir þó ekki
alla söguna, því bækurnar og blöð-
in eru marglesin og ganga barna á
milli, jafnvel árum og áratugum
saman.
Samspil mynda og vandaðra
þýðinga höfða einstaklega vel til
barna og meirihluti þessa lesefn-
is er keyptur í gegnum einhverja
hinna fjögurra Disney áskriftar-
leiða Eddu útgáfu. Því til viðbótar
gefur Edda út fjölbreytt úrval ann-
arra barnabóka á hverju ári og er
stærsti útgefandi barnabóka hér á
landi.
Andrés Önd, og Andrésblað hans,
leynir á sér þegar kemur að lestri
íslenskra barna. Þau drekka les-
efnið í sig og tengja saman orð og
myndir. Andrésblaðið hefur komið
út á íslensku í 29 ár og ekkert tíma-
rit hefur fleiri áskrifendur en Andr-
és Önd sem kemur út vikulega.
Börn þurfa gott lesefni. Foreldr-
ar þurfa að hvetja börn sín til lest-
urs og lesa reglulega fyrir börnin
sín. Við erum öll ábyrg fyrir því að
börnin fái gott lesefni.
Andrés
leynir á sér!
Menning
Jón Axel
Ólafsson
stjórnarformaður og
útgefandi Eddu útgáfu
hf.
Menntamál
Bryndís
Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Samfoks
Oddný
Sturludóttir
formaður skóla- og
frístundaráðs
VITA er lífið
Tenerife
og Kanarí
Verð í auglýsingunni eru netverð - ef bókað er á skrifstofu greiðist 1.500 kr. bókunargjald.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
20.–29. mars - 9 nátta ferð
Las Camelias
Snyrtilegt og vistlegt íbúðahótel á góðum stað á
Ensku ströndinni. Hótelið er staðsett við hina fjölförnu
Tirajana-breiðgötu og er stutt í veitingastaði og
verslanir, þar á meðal Yumbo-verslunarmiðstöðina.
Verð frá 85.250 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi í 9 nætur
20. mars. Verð án Vildarpunkta m.v. 2 fullorðna 95.250 kr.
20.–29. mars - 9 nátta ferð
Luabay
Luabay er gott 4 stjörnu hótel, mjög vel staðsett á Costa
Adeje. Örstutt frá strönd, verslunum og veitingastöðum.
Í fallegum hótelgarðinum eru 3 sundlaugar og flott
útsýni yfir hafið.
Verð frá 134.975 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn (2-11) í tvíbýli m/auka rúmi og hálfu fæði í 16
nætur 13. mars. Verð á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli m/hálfu fæði 149.450 kr.
og 15.000 Vildarpunktar.
* Verð án Vildarpunkta 144.975 kr. m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 159.450 kr.
m.v. 2 fullorðna.
Hálft fæði
5 nátta ferð
einnig í boði!
Síðustu
sætin
í vetur
á tilboð
i!
Beint flug með Icelandair
Flugsæti 20. – 29. mars.
Verð frá 49.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar.
Innifalið : Flug fram og tilbaka og skattar.
*Verð án Vildarpunkta 59.900 kr.
ÍS
L
E
N
SK
A
S
IA
.I
S
V
IT
5
89
46
0
3/
12