Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 26
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR26
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
DAVID CRONENBERG leikstjóri er 69 ára í dag.
„Ritskoðarar gera nákvæmlega það sama og geðsjúklingar:
þeir rugla saman veruleika og blekkingu.“
Krakkarnir í Fúríu stungu upp á því að
setja upp Frankenstein og mér fannst
það frábær hugmynd. En þegar ég fór
að leita að leikgerðum á íslensku komst
ég að því að það var engin til,“ segir
Benedikt Karl Gröndal leikstjóri sem
í kvöld leikstýrir frumsýningu Fúríu,
leikfélags Kvennaskólans í Reykjavík,
á eigin leikgerð á hinni frægu sögu
Mary Shelley um Frankenstein. „Ég
ákvað að láta það ekki stoppa okkur
og skrifaði leikgerð fyrir krakkana,“
heldur Benedikt áfram. „Og útkoman
varð þetta verk okkar sem við frum-
sýnum í kvöld.“
Benedikt segist hafa breytt sögunni
töluvert enda hafi hann skrifað leik-
gerðina með þarfir Fúríuhópsins í huga.
„Þetta er mjög dramatísk saga en ég
reyndi aðeins að létta hana og útkoman
varð það sem við köllum ógnvæn-
legan gamanleik,“ segir hann. „Það eru
nærri þrjátíu krakkar sem leika og ég
reyndi að skrifa línur fyrir þau flest.
Mér fannst mjög mikilvægt að allir
sem hefðu áhuga fengju að vera með og
það eru um fimmtíu krakkar í allt sem
koma að sýningunni, því auk leikaranna
er stór hópur baksviðs.“
Þetta er önnur sýningin sem Benedikt
setur upp í framhaldsskóla, áður hefur
hann leikstýrt Jóni og Hólmfríði hjá
leikfélagi FB. En hvaða bakgrunn hefur
hann? „Ég lærði leiklist í Commedia
leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn
og útskrifaðist þaðan sem leikari árið
2009. Núna fyrir jólin var ég að leika
með Grindvíska atvinnuleikhúsinu,
Gral, en annars hef ég verið með annan
fótinn úti í Danmörku og var til dæmis
að leika í barnasýningu í Kaupmanna-
höfn síðasta sumar. Þótt ég sé lærður
leikari hef ég líka mikinn áhuga á leik-
stjórn og bara öllu sem viðkemur leik-
húsinu. Það snýst allt um að búa til góða
sýningu,“ segir Benedikt Karl.
Eins og áður segir er frumsýning
Fúríu á Frankenstein í kvöld klukkan
20 og er sýnt í Uppsölum, byggingu
Kvennaskólans að Þingholtsstræti 37,
gamla Verzlunarskólanum. Næstu
sýningar verða 18., 19. og 21. mars.
fridrikab@frettabladid.is
BENEDIKT KARL GRÖNDAL: LEIKSTÝRIR EIGIN LEIKGERÐ AF FRANKENSTEIN
Lét skortinn á leikgerðum af
Frankenstein ekki stöðva sig
SÉRSNIÐIN LEIKGERÐ Leikstjórinn Benedikt Karl Gröndal samdi leikgerðina af Frankenstein
með þarfir Fúríuhópsins í huga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Merkisatburðir 15. mars
44 f.Kr. Júlíus Sesar myrtur fyrir utan Öldungaráðið í Róm.
1493 Kristófer Kólumbus kemur til baka til Spánar úr fyrstu
Ameríkuferð sinni.
1639 Brynjólfur Sveinsson verður biskup í Skálholti.
1905 Bæjarsíminn í Reykjavík formlega opnaður með fiðluleik í
símann. Þá eru 15 talsímar í Reykjavík.
1953 Þjóðvarnarflokkur Íslands stofnaður.
1961 Suður-Afríka segir sig úr Breska samveldinu.
2003 Hu Jintao tekur við sem forseti Alþýðulýðveldisins Kína af
Jiang Zemin.
2006 Bandarísk stjórnvöld tilkynna ríkisstjórn Íslands þau áform
sín að kalla allar orrustuþotur sínar og björgunarþyrlur
heim frá Keflavíkurflugvelli.
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug
og stuðning við andlát og útför okkar
elskulegu móður, tengdamóður
og ömmu,
Guðrúnar Hjörleifsdóttur
(Guggú).
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun
og hlýhug.
Ragnhildur Bergþórsdóttir Sigurbergur M. Ólafsson
Atli Bergþórsson Sólrún Helga Örnólfsdóttir
Eleonora Bergþórsdóttir
Hekla Mekkín, Hlynur Snær, Sindri Freyr og Alísa Rán.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún E. Guðmundsdóttir
Lækjargötu 32, Hafnarfirði,
sem lést 8. mars síðastliðinn, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn
16. mars nk. kl. 15.00.
Sigríður Harðardóttir
Margrét Magnúsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir Einar Gylfason
Guðmundur Magnússon Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Herjólfsson
Hvammsgötu 5, Vogum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn
9. mars. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju
laugardaginn 17. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð.
Ingibjörg Bjarnadóttir
Þorgrímur Ólafsson Klara Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, mágkona og systir,
Sólveig Svava Weinel
4927 Warfield Drive,
27406 Greensboro,
Norður Karólína, Bandaríkjunum,
lést á heimili sínu sunnudaginn 11. mars.
Jim Weinel
Sigurður Sigurbjörnsson Elísabeth Sigurbjörnsson
Joan Love Gibbs
Sigrún Sigurðardóttir
Aðalheiður Sigurðardóttir
Gísli Sigurðsson
María Sigurðardóttir
Margrét Sigurðardóttir
Málþing um Sigurð Guð-
munds son málara og
menningar sköpun á Íslandi
á árunum 1857-1874 verður
haldið í Þjóðminjasafni
Íslands á laugardag. Þingið
hefst kl. 10 í fyrirlestrasal
safnsins.
Verkefnið, undir forsjá
Terry Gunnell þjóðfræði-
prófessors við HÍ, er þriggja
ára þverfagleg rannsókn
styrkt af Rannís og er fyrsta
starfsárinu nýlokið.
Á málþinginu verða
kynntar hinar ýmsu hliðar
verkefnisins og fyrstu niður-
stöður, en meginmarkmið
fyrsta ársins var að kanna
tíðaranda tíma bilsins, hug-
myndafræðilegan bakgrunn
Sigurðar málara og sam-
starfsfólks hans og ástand
mála á hinum mörgu sviðum
þar sem þau létu að sér
kveða.
Málþing um
Sigurð málara
TALAÐ UM SIGURÐ Málþingið
hefst í Þjóðminjasafni klukkan 10
á laugardagsmorgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hinn heimsfrægi söngleikur My Fair Lady,
sem byggir á sögu George Bernard Shaw um
Pygmalion, var frumsýndur á Broadway 15. mars
1956 í Mark Hellinger-leikhúsinu. Tónlistin í verkinu
er eftir Frederick Loewe og textinn eftir Alan Jay
Lerner. Sýningin sló hressilega í gegn og varð sú
sýning sem lengst hafði gengið á Broadway til þess
tíma. Síðasta sýningin, hinn 29. september 1962,
var númer 2.717.
Stjörnur sýningarinnar voru Rex Harrison og Julie
Andrews, Moss Hart leikstýrði og Hanya Holm var
danshöfundur. Plata með tónlistinni úr verkinu
í flutningi stjarnanna varð söluhæsta platan í
Bandaríkjunum árið 1956, en síðar á sýningar-
ferlinu hættu þau Harrison og Andrews og í þeirra
stað komu Edward Mulhare og Sally Ann Howes.
Harrison lék einnig í kvikmyndinni sem gerð
var eftir verkinu en Julie Andrews varð að láta sitt
hlutverk af hendi til Audrey Hepburn, jafnvel þótt
Hepburn gæti ekki sungið.
ÞETTA GERÐIST: 15. MARS 1956
My Fair Lady frumsýnt á Broadway