Fréttablaðið - 15.03.2012, Page 28

Fréttablaðið - 15.03.2012, Page 28
FÓLK|TÍSKA ■ GOTT AÐ BREYTA TIL Sítt hár hefur verið lengi í tísku en nú fer það að styttast hjá þeim sem fylgja tískunni. Klippingin 2012 nefnist Bob, hárið er jafnsítt og nær niður fyrir eyru. Þessi hársídd er þægileg þar sem hægt er að krulla hárið eða setja það upp í greiðslu. Hársérfræðingar segja að klippingin henti öllum konum, hún sé sportleg og falleg. Vísað er til Charlize Theron sem hefur valið þessa klippingu. Bob-tískan er ekki ný. Hún hefur alltaf verið vinsæl og þekktist fyrst fyrir níutíu árum. Síða hárið verður þó áfram líka. STUTT HÁR ER MÁLIÐ Ný sending af kjólum og skokkum st. 38-50 Ótrúlegt úrval Fyrir fermingarveisluna Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16, www.topphusid.is Mörkinni 6 - Sími 588 5518 Verð kr. 32.900 FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Í kvöld á Stöð 2 Fín síðkjólaböll eru ekki algeng hér á landi og Elínborg segir að íslenskar konur kjósi yfirleitt frekar stutta kjóla þegar þær fara á árshátíð. „Þó eru galakvöld hjá Frímúrurum og einstaka árshátíðir bjóða upp á síðkjóla. Þægi- legir, stuttir kjólar eru vinsælastir og fleiri velja að hafa þá í áberandi litum. Appelsínugulur og ljósbleikur hafa verið vinsælir litir undanfarið. Doppótt efni eða með dýramynstri eru sömuleiðis eftirsótt. Einnig hef ég tekið eftir því að kvenlegir kjólar, eins og þeir voru um 1960, í anda Hollywood-stjarna eru vinsælir um þessar mundir. Konur koma gjarnan með gamla kjóla af ömmum sínum og biðja mig að breyta þeim. Ungar konur í dag eru hávaxnari en ömmur þeirra og langömmur svo oft þarf að lagfæra kjólana,“ greinir Elínborg frá. PASSA BUDDUNA Elínborg stofnaði Saumsprettuna á níunda áratugnum en margir hafa leitað þangað í gegnum tíðina með fatalag- færingar. Einnig rak hún Saumnálina en nýlega opnaði Elínborg verslun og fata- breytingar á Skólavörðustíg 22 þar sem hún selur kjóla sem hún hefur hannað og saumað. „Ég er með kjóla til sýnis í búðinni en legg síðan áherslu á að sauma þá í réttri stærð fyrir viðskipta- vininn. Hver kjóll er því sérsaumaður,“ segir Elínborg. „Konur eru hagsýnar um þessar mundir. Þær vilja nota nýja kjólinn oftar en einu sinni og við ýmis tækifæri. Milli- fínir kjólar hafa því verið langvinsælastir. Það er greinilegt að fólk hugsar mikið um budduna og hvað sé hagkvæmast. Mjög mikið hefur verið að gera í minniháttar fatabreytingum eins og að stytta, síkka, þrengja, víkka eða gera annars konar breytingar. Fólk vill nýta það sem til er,“ segir Elínborg sem lagfærir herrafatnað jafnt sem dömufatnað. „Ef fötin eru úr gæðaefnum þá borgar sig að laga þau.“ HERÐAPÚÐARNIR KOMA AFTUR Elínborg saumar kjóla eftir óskum við- skiptavinarins sé þess óskað. Þegar hún er spurð um dragtir segist hún vita til þess að kvenjakkar með breiðum öxlum séu að ryðja sér til rúms úti í heimi. „Ég hef þó ekki orðið vör við herðapúðana hér á landi,“ segir hún. „Dóttir mín, Margrét Sigríður Valgarðsdóttir, er að ljúka námi í fatahönnun og var í starfs- námi í París í haust en þar sá hún þessa nýju jakkatísku,“ segir Elínborg. ■ elin GÖMLU KJÓLARNIR DREGNIR FRAM ELÍNBORG ÞORSTEINSDÓTTIR hefur saumað kjóla og starfað við fata breytingar í áratugi. Hún segist finna fyrir vaxandi áhuga á að nýta vönduð, gömul föt. NÓG AÐ GERA Elínborg saumar og hannar kjóla auk þess að lagfæra og breyta dömu- og herrafatnaði. MYND/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.