Fréttablaðið - 15.03.2012, Side 30

Fréttablaðið - 15.03.2012, Side 30
FÓLK|4 |FÓ K |TÍSKA ■ Nóbelsverðlaunahafinn Albert Einstein skartaði myndarlegu yfirvaraskeggi öll sín fullorðinsár. Eftir því sem árin færðust yfir varð svart skeggið grásprengt og þótti hæfa vel ímynd hins fluggáfaða og sérvitra vísindamanns. ■ Leikarann viðkunnanlega Charlie Chaplin þekkja flestir en um það er gjarnan deilt hvort kúluhatturinn eða vel snyrt yfirvara- skeggið hafi verið hans helsta einkennis- merki. Flestir eru þó sammála um að skegg Chaplins minni á ónafngreindan einræðis- herra enda gerði leikarinn sjálfur óspart grín að saman burðinum. ■ „Tryllingslegt“ yfirvaraskegg list- málarans Salvadors Dali þykir vera með eindæmum flott. Til marks um það hafa 6.956 manns látið í ljós ánægju sína með Facebook-síðu helgaða skeggi hans með því að „líka“ hana. ■ Leikarinn Tom Selleck var mikið kyn- tákn í upphafi 9. áratugar síðustu aldar. Aðdáendur féllu hreinlega í ómegin þegar mottan og loðin bringan birtust á sjónvarpsskjánum. ■ Ýmsir íslenskir menn eru þekktir fyrir fallegar mottur. Í þann flokk mætti klárlega setja Sigurð Pálsson skáld, Magga Lego tónlistarmann, Þórarin Jón Magnússon ritstjóra, Símon Birgis son gagnrýnanda og Helga Péturs son tónlistarmann svo fáeinir séu nefndir. FLOTTAR MOTTUR Fjölmargir karlar hafa vakið athygli fyrir fallegt skegg í gegnum tíðina. Í tilefni af mottumars er við hæfi að minnast nokkurra. MEÐ ALLT Á HREINU Gagnrýnandinn Símon Birgisson er einn þeirra íslensku karla sem hafa í gegnum tíðina látið sér vaxa myndarlega mottu. Við erum að sýna nýja fylgihluta-línu úr leðri sem er skorið og mótað í hálslín, slifsi og þver- hnýti,“ segir Bylgja Rún Svansdóttir vöruhönnuður sem ásamt Maríu Kristínu Jónsdóttur vöruhönnuði opnar sýningu í 38 þrepum við Laugaveg næst komandi fimmtudag í tengslum við Hönnunar- mars. „Við byrjuðum að vinna saman í haust og afraksturinn varð þessi fylgi- hlutalína sem ber heitið Staka,“ útskýrir Bylgja Rún. „Þetta eru alls kyns slaufur, hálsbindi og fleiri hálshnýti, alls átta mis- munandi útfærslur sem ætlaðar eru fyrir bæði kynin.“ Það var áhuginn á óhefðbundnum efnum og aðferðum við skartgripa- og fylgihlutahönnun sem varð til þess að þær Bylgja Rún og María Kristín hófu samstarf en áður höfðu þær meðal annars gert skartgripalínur hvor fyrir sig og Bylgja Rún hafði vakið athygli fyrir kryddjurtapottinn GrowMe. „María var að sýna hálsmenin sín sem kallast Þráður í fyrra í Spark Design Space þar sem ég var að vinna og selja krossviðarhringina mína, Flóru,“ segir Bylgja Rún. „Við fórum að ræða saman um áhugasvið okkar og ákváðum í framhaldi af því að hefja samstarf. Það hefur gengið ótrúlega vel og við ætlum að halda áfram að vinna saman meðfram eigin hönnun.“ Þær stöllur eru báðar útskrifaðar frá Listaháskóla Íslands og hönnun þeirra má kynna sér á heimasíðunum bylgja.com og mariakristin.com, auk þess sem hálsmen úr línunni Þráðum eftir Maríu Kristínu er að finna á skartgripasýningunni Rótum sem stendur yfir í Hafnarborg. Opnunarhóf sýningarinnar verður haldið í 38 þrepum fimmtudaginn 22. mars frá klukkan 16 til 18. Sýningin verður síðan opin á sama tíma og verslunin til 1. apríl. ■ fsb FRUMSÝNA FYLGIHLUTI ÚR SKORNU LEÐRI NÝ LÍNA Vöruhönnuðurnir Bylgja Rún Svansdóttir og María Kristín Jónsdóttir hafa hannað fylgihlutalínu úr skornu leðri sem þær kalla Stöku. Sýning á línunni verður opnuð í 38 þrepum þann 22. mars í tengslum við Hönnunarmars. SAMSTARF Bylgja Rún Svansdóttir og María Kristín Jóns- dóttir hafa í sameiningu hannað fylgihlutalínuna Stöku sem þær munu sýna í 38 þrepum á Hönnunarmars. Háls- línið er í átta mis- munandi útfærslum og hentar fyrir bæði kynin. MYNDIR/ANTON NÝ SENDING AF DRÖGTUM Útsalan að klárast enn meiri lækkun Skipholti 29b • S. 551 0770 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is FULL BÚÐ af flottum fötum fyrir flottar konur Stærðir 40-60 SÓLGLERAUGNA- TÍSKAN Í SUMAR ER AFTUR- HVARF TIL ÁRSINS 1955 ÞEGAR KONUR GENGU MEÐ „KISUGLERAUGU“ Á NEF- INU. GLERAUGUN ERU STÓR UM SIG EN LAGIÐ MINNIR Á KATTARAUGU. MARILYN MONROE VAR EIN ÞEIRRA SEM GENGU MEÐ SÓLGLERAUGU Í KISU- UMGJÖRÐ. SÖMU SÖGU MÁ SEGJA UM STJÖRNURNAR AUDREY HEPBURN OG GRACE KELLY. SÓLGLERAUGU Í ANDA MARILYN MONROE ÓVINSÆL UMMÆLI ■ EKKI GALLABUXUR EF ÞÚ ERT ORÐIN FERTUG Leikkonan Joan Collins segir að konur yfir fertugu ættu ekki að klæðast gallabuxum, það sé púkalegt. Leikkonan lét þessi orð um gallabuxur falla í morgunþætti á BBC. Hún bætir því við að ef konur vilji endilega klæðast gallabuxum þá ættu þær að vera dökkblá- ar eða svartar og notast við fallegan, þröngan bol eða jakka með klassísku sniði. „Konur þurfa að finna sinn eigin stíl. Flestar best klæddu eldri konur hafa fundið eigin stíl,“ segir Collins. Collins sem er 78 ára gengur sjálf í gallabuxum en hún hefur lengi verið í afneitun gagnvart aldri sínum. Ýmis tískublöð hafa gert grín að orðum hennar og birt mynd af Collins í þröngum galla- buxum og leðurstígvélum. Þau benda á að hún ætti að fara eftir eigin heilræðum. Myndin var tekin af paparazzi-ljós- myndara þar sem leikkonan var á göngu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.