Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 31
Kynningarblað Hagræði, sveigjanleg úrræði og góð ráð fyrir kröfuhafa og skuldara. INNHEIMTA FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012 &REIKNINGAÞJÓNUSTUR Momentum innheimtuþjónusta veitir alhliða þjónustu við innheimtu, allt frá útgáfu greiðslu seðils til löginnheimtu. Momentum, sem tók til starfa árið 2000, er í eigu þriggja lögmanna sem einnig starfrækja löginnheimtufyrirtækið Gjaldheimtuna, sem var stofnað árið 2003. Momentum starfar á fruminnheimtu- og milliinnheimtumarkaði en Gjaldheimtan á löginnheimtumarkaði. Hjá fyrir tækjunum starfa um það bil 30 starfsmenn, þar af fimm lögmenn. Höfuðstöðvar félaganna eru að Suðurlandsbraut 18 en auk þess starfrækir Momentum starfsstöð á Siglufirði þar sem starfa allt að fimm starfsmenn. Milliinnheimta er viðurkenndur þáttur í rekstri fyrirtækja og stofnana, enda felst mikið hagræði í því að geta útvistað slíkri starfsemi til sérfræðinga og ein- beitt sér að kjarnastarfsemi. Þannig fara saman hagsmunir kröfuhafa og greiðenda en markmiðið er að innheimtan sem slík raski ekki viðskiptasambandi fyrirtækis og viðskiptavina þess sem eiga tímabundið í erfið leikum með að standa í skilum. Starfsfólk Momentum veitir upplýsingar og ráðgjöf um hvernig best er að haga innheimtumálum fyrirtækja og stofnana. Sveigjanleiki í fyrirrúmi Milliinnheimtuferli Momentum er mjög sveigjanlegt en ferlið er skilgreint sérstaklega fyrir hvern og einn kröfuhafa í samningum milli félagsins og kröfuhafa; kröfuhafi hefur mjög mikið svigrúm til að laga innheimtu- ferlið að þörfum einstakra hópa viðskipta- vina sinna. Þegar krafa berst til Momentum er henni stýrt í rétt ferli miðað við fyrirmæli kröfuhafa og fer fjöldi innheimtubréfa, sím- hringinga og tímalengd milli aðgerða eftir óskum kröfuhafa og mati hans á þörfum ein- stakra hópa viðskiptavina hans. Momentum innheimtir kröfur sem stofnaðar hafa verið í innheimtu kerfum bankanna. Kröfur eru stofnaðar samkvæmt reikningum frá kröfuhafa, annað hvort af kröfuhafa sjálfum með tengingu við vefbanka eða hjá Momentum, sem tekur þá við gögnum beint frá kröfuhafa. Vegna þess að krafan er til staðar í kröfupotti bankanna, þá sér greiðandi kröfuna í sínum heimabanka þar til hún hefur verið greidd. Rekstrar aðilar geta stillt kerfi sín þannig að kröfur fari sjálfvirkt til innheimtu hafi þær ekki verið greiddar á eða eftir eindaga, eða valið að senda ein stakar kröfur til Momentum eftir því sem þeim þykir sjálfum viðeigandi. Hagkvæm og auðveld rafræn samskipti Mikil þróun hefur orðið á síðustu misserum í rafrænum samskiptum milli banka, rekstrar- aðila og innheimtufyrirtækja sem auðveldar uppgjör, upplýsingaflæði og öryggi við milli- innheimtu. Fyrir nokkrum árum var farið að bjóða upp á beina rafræna skiptingu greiðslna við uppgjör krafna í milliinn- heimtu, en þetta skiptigreiðslukerfi er til mikilla hagsbóta fyrir alla aðila. Það þýðir að þegar krafa er greidd er henni skipt upp í bankanum og fær kröfuhafi strax höfuð- stól og dráttarvexti kröfunnar inn á sinn reikning en Momentum fær áfallinn kostnað á sinn reikning. Momentum meðhöndlar þess vegna aldrei peninga kröfuhafa heldur koma þeir beint inn á reikning kröfuhafa eins og um hverja aðra greidda kröfu væri að ræða. Í þessu felst mikil hagræðing bæði fyrir innheimtu aðila og stjórnendur kröfu- hafa, sem ekki þurfa lengur að sækja skila- greinar til Momentum. Réttarbót með nýjum lögum Í upphafi árs 2009 tóku gildi innheimtulög sem voru til hagsbóta fyrir jafnt skuldara sem kröfuhafa, en tryggt er með lögunum að ekki er hægt að fara í kostnaðarsamar inn- heimtuaðgerðir án þess að greiðendum sé send að minnsta kosti ein aðvörun fyrir fram á lágmarksgjaldi. Sömuleiðis var tryggt með lögunum að innheimtufyrirtæki séu undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins eða annarra eftir- litsaðila. Momentum er undir eftirliti Lög- mannafélags Íslands enda eingöngu í eigu lögmanna. Nokkrir aðilar starfa við innheimtur en Momentum er meðal stærstu fyrirtækja á þessum markaði. Momentum greinir sig frá öðrum aðilum á sama markaði með ýmsum hætti. Fyrirtækið leggur til að mynda sérstaka áherslu á sveigjanleika bæði við greiðendur og kröfuhafa. Kröfuhafinn getur sjálfur ráðið innheimtu ferlinu og valið hvaða úrræðum er beitt. Þá er lögð mikil áhersla á að koma fram af lipur leik og virðingu í innheimtunni sjálfri og semja um frágang mála við greiðendur, en sú aðferðafræði skilar að mati Momentum betri árangri til lengri tíma litið. Engin kostnaður kröfuhafa Kröfuhafinn greiðir engan kostnað af þjónustu Momentum, engin árgjöld eða annan fast- an kostnað. Þá greiðir kröfuhafi heldur engin skráningargjöld krafna, hlutfall af höfuð- stól kröfu eða kostnað við að nýta sér skipti- greiðslukerfið. Almenn stefna Momentum er sú að kostnaður af innheimtum lendi á þeim sem stofnuðu til hans með því að greiða ekki kröfu á umsömdum tíma, en dreifist ekki almennt á alla viðskiptavini kröfuhafa. Þannig er tryggt að þeir sem standa skil á greiðslum á tilsettum tíma geti notið bestu kjara í viðskiptum sínum við kröfuhafa. Aukið hagræði og lægri kostnaður í innheimtu Momentum leggur áherslu á sveigjanleika og hagkvæm rafræn samskipti Milliinnheimta er viðurkenndur þáttur í rekstri fyrirtækja og stofnana, enda felst mikið hagræði í því að geta útvistað slíkri starfsemi til sérfræðinga og einbeitt sér að kjarnastarfsemi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.