Fréttablaðið - 15.03.2012, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGInnheimta & reikningaþjónustur FIMMTUDAGUR 15. MARS 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benetiktj@365.is, s. 512-5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Í Bandaríkjunum kveða lög um innheimtustofnanir á um að ekki megi hringja í skuldarann
beri hann kostnað af símtalinu.
Þar eru einnig ákvæði um það
á hvaða tímum sólarhrings er
leyfilegt að hringja í innheimtu-
erindum, í hvern megi hringja
og hvar. Hins vegar er leyfilegt að
skrá í gagnabanka á hvaða tímum
skuldarinn svari oftast í símann í
þeim tilgangi að framtíðarsímtöl
fari fram á þeim tíma.
Lögin eru mjög ítarleg og listinn
yfir það hvað má og hvað ekki
er langur. Fulltrúi innheimtu-
fyrirtækis má til dæmis ekki nota
ósæmilegt orðbragð, ekki hóta
skuldaranum refsingum, verður
að kynna sig með fullu nafni og
fullu nafni þess sem hann hringir
fyrir og síðast en ekki síst taka það
fram strax í upphafi um hvað upp-
hringingin snúist.
Til þess að fara á svig við þessa
ströngu reglugerð hafa ýmis
innheimtufyrirtæki tekið í sína
þjónustu sjálfvirka upphring-
ingu. Ákveðin skilaboð eru þá
lesin inn á tölvu sem síðan er
forrituð til að hringja í ákveð-
in símanúmer á vissum tímum.
Með þessari aðferð komast skila-
boð innheimtu þjónustunnar til
skila án þess að átt sé á hættu að
mannlegur breyskleiki geti valdið
misskilningi eða brotum á reglu-
gerðinni ströngu með tilheyrandi
hættu á málsókn.
Mjög strangar reglur gilda
einnig um það í hverja megi
hring ja t i l að hafa upp á
skuld urum sem skipt hafa um
heimilisfang og símanúmer og
hvað megi segja í slíkum sam-
tölum. Leyfilegt er að hringja í
ættingja eða fyrrum nágranna og
spyrjast fyrir um nýtt heimilisfang
eða símanúmer skuldarans en
alls ekki má minnast á að fyrir-
spurnin tengist skuld. Um skuldir
einstaklings er einungis leyfilegt
að tala við hann sjálfan, maka
hans eða lögfræðing.
Bannað að ræða
skuldina við aðra
Bandaríkin eru land lögsóknanna og til þess að verja innheimtufyrirtæki fyrir hættunni
á lögsóknum skuldara hafa verið settar skýrar reglur um samskipti fyrirtækisins við þá.
Hér er lítið brot af því sem ekki má.
Upphringingar frá innheimtustofnunum vekja sjaldnast gleði skuldarans.
AÐ SEMJA VIÐ KRÖFUHAFA
Á vef Umboðsmanns skuldara www.ums.is er að finna ýmis góð ráð, til
dæmis um hvernig best sé að semja við kröfuhafa.
Undirbúningur skiptir miklu
máli og fólk verður að spyrja
sig nokkurra spurninga áður en
fundur er haldinn og fara yfir
nokkur atriði.
Til dæmis: Hverjir eru hagsmunir
þínir? Hvaða hluti viltu ræða og
semja um?
Settu þér raunhæf markmið.
Skoðaðu vel samningsstöðu þína og möguleika. Skoðaðu allar lausnir vel
og vandlega. Hvað finnst þér sanngjarnt?
Þegar kemur að samningafundinum er skynsamlegt að vera vel úthvíldur,
jákvæður og gera ráð fyrir að komist verði að góðu samkomulagi. Það
hjálpar aldrei að ákveða fyrirfram að samningar muni ekki nást.
HVERJIR GETA AÐSTOÐAÐ?
Allir geta lent í erfiðleikum með fjármál sín. Til eru ýmis úrræði í sam-
félaginu til að takast á við vandann, en brýnast er þó að gera eitthvað
strax í málunum. Á vefnum www.island.is er að finna sérstakan fjár-
máladálk. Þar er listi yfir aðila sem geta aðstoðað þegar fólk lendir í
greiðsluerfiðleikum.
● Umboðsmaður skuldara veitir fólki sem á í greiðsluerfiðleikum endur-
gjaldslausa ráðgjöf. Ráðgjöfin felst í að aðstoða fólk við að fá yfirsýn yfir
fjárhagsstöðuna eins og hún er í dag og leita leiða til úrbóta.
● Íbúðalánasjóður býður upp á nokkur úrræði vegna greiðslu erfiðleika.
Helstu leiðir eru samningar, skuldbreyting, frestun á greiðslum og
lenging lánstíma.
● Meðlagsgreiðandi getur leitað úrræða
hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga vegna
vanskila.
● Bankar og aðrar lánastofnanir og fjár-
málafyrirtæki veita ráðgjöf um leiðir til að
leysa úr greiðsluerfiðleikum.
● Hægt er að sækja um réttaraðstoð
til nauðasamninganefndar til að standa
straum af kostnaði við að koma á nauða-
samningi.
AÐ SKULDA SKATTA OG GJÖLD
Tollstjóri hefur á verksviði sínu að innheimta skatta og gjöld.
Gjaldfallnir skattar eru aðfararhæfir og er því hægt að krefjast
fjárnáms hjá þeim sem skuldar til að tryggja greiðslu þeirra eftir að
greiðsluáskorun hefur verið birt í dagblöðum og aðfararfrestur sem
þar er gefinn upp er liðinn.
Með því að gera greiðsluáætlun um ógreidd gjöld er hægt að
komast hjá þeim óþægindum og kostnaði sem fylgja innheimtu-
aðgerðum. Hægt er að gera greiðsluáætlun um skatta og gjöld
hjá þjónustufulltrúum lögfræðideildar innheimtusviðs á 4. hæð
Toll hússins, Tryggvagötu 19, þeir eru til viðtals á opnunartíma
embættisins, frá klukkan 8 til 15.30.
Ef fjárnámsbeiðni hefur þegar verið send út er ekki hægt að gera greiðsluáætlun fyrr en búið er að ljúka fyrir-
töku beiðninnar hjá sýslumanni. Það frestar ekki sjálfkrafa innheimtu þó gjaldandi hafi kært skattáætlun eða þó
ágreiningur sé um réttmæti skattálagningar. Alltaf þarf að hafa samband við innheimtumann ríkissjóðs til að fá
frest á innheimtu. Heimild: www.tollur.is
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín