Fréttablaðið - 15.03.2012, Qupperneq 44
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR32 32
menning@frettabladid.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
3000 GESTIR hafa skoðað sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, „Á bóndadag,“ sem
stendur yfir í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningunni lýkur komandi helgi þannig að síðustu
forvöð eru að sjá sýninguna sem fjallar um sauðkindina frá ýmsum hliðum.
Ein vinsælasta ópera allra
tíma, La Bohème, verður
frumsýnd í Hörpu annað
kvöld. Yfir 160 manns eru
á sviðinu og í gryfju þegar
mest lætur.
„General-prufan gekk ofsalega vel
og þetta er allt að smella. Nú eru
allir bara að slaka á og undirbúa
sig fyrir frumsýningu,“ segir Inga
María Leifsdóttir, kynningar- og
markaðsstjóri Íslensku óperunnar.
Á morgun klukkan 20 verður
óperan La Bohème eftir Puccini
frumsýnd í Eldborg í Hörpu. Um
200 manns koma að sviðsetningu
verksins og eru yfir 160 manns á
sviði og í gryfju þegar mest lætur.
La Bohème er ein vinsælasta
ópera sem samin hefur verið, en hún
er jafnan á fjölum helstu óperuhúsa
heims. Í henni segir af hópi lista-
manna í París í byrjun síðustu aldar,
sem búa við þröngan kost og sára
fátækt. Sjónum er beint að ástar-
sambandi sauma konunnar Mimi og
skáldsins Rodolfo, sem fella hugi
saman. Vinir þeirra koma líka við
sögu – heim spekingurinn Colline,
tónlistar maðurinn Schaunard
og kvikmyndagerðar maðurinn
Marcello, að ógleymdri hinni
skrautlegu söngkonu Musettu.
Það eru þau Hulda Björk
Garðars dóttir og Gissur Páll
Gissurar son sem túlka Mimi og
Rodolfo, en Þóra Einarsdóttir og
Garðar Thór Cortes syngja einnig
aðalhlutverkin á tveimur sýningum.
Ágúst Ólafsson fer með hlutverk
Marcello, Jóhann Smári Sævars-
son er Colline, Bergþór Pálsson er
bæði Benoît og Alcindoro, Hrólfur
Sæmundsson fer með hlutverk
Schaunard og Herdís Anna Jónas-
dóttir syngur hlutverk Musettu.
Aðrir aðstandendur sýningar-
innar eru Daníel Bjarnason hljóm-
sveitarstjóri, Jamie Hayes leikstjóri
og Will Bowen leikmynda hönnuður.
Búninga hannar Filippía I. Elís-
dóttir, lýsingu Björn Bergsteinn
Guðmundsson, Henrik Linnet sér
um myndvinnslu og Stella Sigur-
geirsdóttur á heiðurinn af ógrynni
leikmuna sem prýða sýninguna.
Tveir kórar taka þátt í sýningunni,
kór Íslensku óperunnar og 32 barna
kór. Þar að auki koma við sögu
lúðrasveit, meðlimir Sirkus Íslands,
hundurinn Drakúla og hljómsveit
Íslensku óperunnar. Konsertmeist-
ari er Sigrún Eðvaldsdóttir.
Frá áramótum hefur undir-
búningur að uppsetningu óperunnar
farið stigvaxandi og segir Inga
María álagið hafa verið mikið á
alla aðstandendur, ekki síst þau
fjölmörgu börn sem koma að
sýningunni. Hins vegar skemmti
allir sér svo vel að álagið gleymist
fljótt. „Börnin hafa staðið sig
ótrúlega vel. Þau þurftu að leggja
mikinn texta á minnið, löng lög,
hvenær þau eigi að koma inn og
hvernig eigi að bera sig á sviðinu.
En þetta er búið að vera svo mikið
fjör að allir eru ánægðir.“
Þetta er í annað sinn sem
Íslenska óperan sýnir í Hörpu, en
13 þúsund manns sáu Töfraflaut-
una síðastliðið haust.
holmfridur@frettabladid.is
EFTIRVÆNTING Í LEIKHÓPNUM
BÖRNIN Í LA BOHÈME Kór 32 söngvara á aldrinum 8 til 13 ára tekur þátt í uppfærslu Íslensku óperunnar á La Bohème. Börnin koma við sögu í öðrum þætti óperunnar, sem gerist
á aðfangadagskvöld í París. Borgarbúar flykkjast út á göturnar, kaupa í jólamatinn og síðustu jólagjafirnar og börnin setja sterkan svip á götumyndina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKRAUTLEG LEIKMYND Enski leikmyndahönnuðurinn Will Bowen hannaði leik-
myndina. Á sviðinu er jafnframt ógrynni af leikmunum sem Stella Sigurgeirsdóttir
á heiðurinn af að hafa safnað saman. Meðal þess sem sjá má á sviðinu eru bækur,
jólapakkar, reiðhjól, blöðrur og, ef vel er að gáð, handsmíðaðar gervi-sígarettur.
Ákveðið hefur verið að beita
nýrri nálgun að Reykjavík Dance
Festival, sem hóf göngu sína
árið 2002, í ár. Hátíðin fer fram
dagana 21. til 31. ágúst næst-
komandi undir yfirskriftinni A
Series of Events. Opin kynning á
sérstakri útfærslu hátíðarinnar
verður haldin í kvöld, fimmtu-
daginn 15. mars, klukkan 21 á
Dansverkstæðinu, Skúlagötu 28.
Í tilkynningu kemur fram að
ekki verði um að ræða danshátíð í
hefðbundnum skilningi heldur tíu
daga kóreógrafíu í formi dans-
hátíðar sem opnar fyrir nýjar
samræður meðal listamanna
og áhorfenda og býður grund-
völl fyrir flæði þekkingar og
miðlunar innan list greinarinnar.
Listrænir stjórnendur Reykja-
vík Dance Festival, Halla Ólafs-
dóttir og Emma Kim Hagdahl,
sjá um kynninguna í kvöld
sem er fyrsti viðburðurinn af
mörgum sem efnt verður til áður
en Reykjavík Dance Festival
hefst í ágúst.
Ný nálgun
að danshátíð
NÝ NÁLGUN Frá Reykjavík Dance
Festival.
Hljómsveitirnar Spaðar og Var-
sjárbandalagið efna til sameigin-
legs tónleikaballs á Nasa annað
kvöld, föstudagskvöldið 30. mars.
Húsið verður opnað klukkan 22
og um klukkan 23 stíga Spaðar á
svið og spila fram yfir miðnætti.
Þá tekur Varsjárbandalagið við
og leiðir dansleikinn til lykta.
Hið árlega
Spaðaball
SPAÐAR Spila með Varsjárbandalaginu á
Nasa annað kvöld.