Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 46
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR34 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 15. mars 2012 ➜ Fundir 08.30 Ársfundur Nýsköpunarmið- stöðvar Íslands sem ber yfirskriftina Samfélagsleg nýsköpun - velferð og lífs- gæði fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. 13.30 Bókmenntaklúbbur félags kennara á eftirlaunum heldur fund í Kennarahúsinu. Gestur verður Arnþór Gunnarsson sem kynnir bók sína, Á afskekktum stað. Einnig kemur Guðrún Friðgeirsdóttir með bók sína, Norðanstúlkuna. ➜ Sýningar 17.00 Sýning á verkum Hrafnhildar Ingu Sigurðardóttir, listmálara, opnar í Artóteki. Sýningin nefnist Sjólag og er á Reykjavíkurtorgi á 1.hæð Borgar- bókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. ➜ Kvikmyndir 17.00 Konfúsíusarstofnunin Norður- ljós sýnir kvikmyndina Að lifa (To live) í stofu 101 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Myndin er frá 1994 og eftir Zhang Yimou. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. ➜ Uppákomur 21.00 Kreppukvöld verður haldið á Bar 11. Hljómsveitin Dorian Gray stígur á stokk og spilar póst-módernískt rokk með flottum og grípandi riffum. Ókeypis er á tónleikana og sannkölluð krepputilboð verða á barnum. ➜ Leikrit 14.00 Leikfélag eldri borgara, Snúður og Snælda, sýnir leikritið Rommí eftir D.L.Colburn í Iðnó. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. ➜ Málþing 15.00 Málþing verður haldið um hvers virði vatnsréttindi séu til orkuöflunar. Málþingir er á vegum Auðlindaréttar- stofnunar Háskólans í Reykjavík og Draupnis lögmannsþjónustu og verður haldið í dómsal á 1.hæð Háskólans í Reykjavík. ➜ Tónlist 20.00 Whale vs Elephant frá Þýska- landi og No Class spila á Fimmtudags- forleik í Hinu Húsinu. Um er að ræða ekta raftónleika og aðgangur er ókeypis. 21.00 Bjarkey Sigurðardóttir syngur ásamt hljómsveit á Græna Hattinum. Miðaverð er kr. 1.000. 21.00 Skúli mennski & Hjalti koma fram á Café Rosenberg. 22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tónleika á Ob-La-Dí, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Fyrirlestrar 17.00 Hönnuðurinn Giulio Vinaccia heldur fyrirlestur í Hafnarhúsinu undir yfirskriftinni Hönnun í þróunar- skyni - Frá félagslegu sjónarhorni. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. 20.00 Prófessorinn og landslags- arkitektinn Stig L. Andersson flytur fyrir- lestur í Norræna húsinu þar sem hann veltir upp spurningum um borgarrýmið og áskoranir 21. aldarinnar. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Felix Bergsson heldur ferna tónleika víðs vegar um landið á rúmum mánuði í tengslum við nýútkomna plötu hans, Þögul nóttin, sem er fyrsta sólóverkefnið. „Það má eiginlega segja að þetta sé kvöld eins og okkur þætti sjálfum gaman að fara á,“ segir Felix Bergsson um dagskrá væntan legra tónleika sinna. Um er að ræða ferna tónleika sem haldnir verða víðs vegar um landið á rúmum mánuði. „Það var ákaflega tilviljunarkennt hvaða staðir urðu fyrir valinu,“ segir Felix. „Ég hef verið fasta- gestur í Neskaupstað með barna- sýninguna Gunna og Felix, og hef alltaf lofað því að þegar ég gæfi út fullorðinsefni kæmi ég með það þangað. Nú er komið að því,“ bætir hann við, en tónleikarnir á Neskaupsstað fóru fram síðast- liðið sunnudagskvöld. Á döfinni eru svo tónleikar á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd þann 16. mars, á Græna hattinum á Akureyri þann 19.mars og í Hörpunni í Reykjavík þann 27.apríl. „Þetta verður í fyrsta skipti sem ég spila í Hörpu, svo það er mjög spennandi. Við verðum í litla huggulega salnum, enda kósý og rómantískir tón- leikar,“ segir Felix. Tónleikarnir eru haldnir í tengslum við nýlega plötu Felix, Þögul nóttin, sem kom út fyrir áramót og er hans fyrsta sóló- verkefni á starfsferli sem telur heil 25 ár. Með í för verða þeir Jón Ólafsson og Stefán Már Magnússon sem unnu plötuna með honum. Felix er strax byrjaður að huga að næstu plötu og segist ákveðinn í að sýna fólki að honum sé alvara með þessu. „Ég er búinn að vera svo mikið úti um allt hingað til að fólk á erfitt með að átta sig á hvar það hefur mig. Mig hefur þó alltaf langað til að fara af krafti út í tónlistina, og er loksins að láta af því verða,“ segir Felix að lokum. - trs FERÐAST UM LANDIÐ OG HELDUR TÓNLEIKA ER ALVARA Felix segir sér vera alvara með tónlistina, en að fólk hafi átt erfitt með að átta sig á hvar það hefði hann hingað til. Opið laugard. kl. 10-14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.