Fréttablaðið - 15.03.2012, Side 47

Fréttablaðið - 15.03.2012, Side 47
FIMMTUDAGUR 15. mars 2012 35 Dans ★★★ ★★ Discomfort in comfort Dansflokkurinn Spírall Sýnt í Norðurpólnum 8. - 10. mars Það er kærkomin tilbreyting fyrir dansgagnrýnanda að fá að sjá þrjár danssýningar á rétt rúmum mánuði því venjulega líða mánuðir á milli sýninga. Ánægjan verður ekki minni þegar í boði eru þrjár áhugaverðar en mjög ólíkar sýningar. Íslenski dansflokkurinn reið á vaðið með Mínus 16, kröftugu dansverki þar sem dansinn var í fyrir- rúmi. Hreyfiþróunarsamsteypan var næst með beinskeytt dansleik- hús og nú síðast sýndi dansflokkurinn Spírall verk sem minnti ekki síður á myndlist á hreyfingu heldur en dans. Verkið Discomfort in Comfort eftir Karen Eide Bøen er sýnt í Norðurpólnum í einhverju bakrými. Áhorfendur eru leiddir út um hliðardyr á miðsalnum, út í snjómugguna og aftur inn í rými þar sem búið var að koma fyrir áhorfendapöllum og dansgólfi. Það var kalt í salnum og gagnrýnandinn þakkaði fyrir að vera í lopapeysunni. Sviðið var afmarkað af þrem veggjum sem hafa einhvern tímann verið hvítir en voru nú snjáðir og þaktir rauðum og bláum málningar- slettum. Þrettán dansarar stóðu dreift um gólfið í mismunandi stellingum, allir í marglitum og glaðlegum búningum. Smám saman fór myndin á sviðinu að lifna við með litlum hreyfingum hér og þar. Þegar lengra leið á verkið bættust kröftug hlaup inn í kóreógrafíuna sem enduðu í áhrifamiklum myndum sköpuðum af hópnum sem heild. Allt sem gerðist á sviðinu krafðist þeirrar líkamlegu nákvæmni sem aðeins vel þjálfaðir dansarar geta sýnt í hreyfingu en það reyndi minna á líkamlegan styrk og snerpu. Framvinda verksins var hæg en skemmtileg, sérstaklega þegar líða tók á. Einsleit hljóðmynd verksins undirstrikaði hlutlausa stemningu sem birtist einnig í svipbrigðalausum andlitum dansar- anna. Nöfn Cunninghams og Cage flögruðu um hugann þegar fylgst var með öllu því smáa sem gerðist víðsvegar um sviðið. Í síðasta hluta sýningarinnar varð nokkur breyting á anda verksins, tónlistin varð ljóðrænni og taktfastari og andlit dansaranna létu í ljós örlitla tjáningu. Heildin var samt skýr; verkið rann frá upphafi til enda, hægt en örugglega. Dansflokkurinn Spírall er mitt á milli þess að vera atvinnu- og amatör-flokkur. Hann er hugsaður sem „platform“ fyrir þá dansara sem eru að klára framhaldsskólanám í dansi og eru að ákveða hvert skal halda. Hann gefur einnig þeim sem hafa grunnmenntun í dansi og langar að halda áfram að dansa þó að þeir hafi ákveðið að velja sér annan atvinnuvettvang tækifæri til að halda sig innan listarinnar. Flokkur eins og Spírall er mjög mikilvægur hluti af íslenskri dansflóru því innan hans fá ungir dansarar að spreyta sig á dans- verkefni undir handleiðslu atvinnu-danshöfundar. Sýningin á fimmtudaginn sýndi að það eru margir efnilegir dansarar að útskrifast með framhaldsskólamenntun í dansi og það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni. Sesselja G. Magnúsdóttir Niðurstaða: Sýningin bauð upp á sjónræna upplifun í anda abstraktlistar nema að listaverkið var á hreyfingu. Mynd á hreyfingu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.