Fréttablaðið - 15.03.2012, Blaðsíða 50
15. mars 2012 FIMMTUDAGUR38
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Margir tóku fyrst eftir írönsku tónlistarkonunni Leilu Arab þegar
Björk réði hana sem hljómborðsleikara í hljómsveitinni sem hún
setti saman til að fylgja eftir Debut plötunni árið 1993. Leila vann
mikið með Björk næstu árin, en fór svo að búa til sín eigin tónlist.
Fyrsta platan hennar, Like
Weather, kom út hjá útgáfu
Aphex Twin, Rephlex, árið
1998. Fín raftónlistarplata í
anda listamanna útgáfunnar.
Síðan hefur Leila spilað víða
sem plötusnúður og gefið
út þrjár plötur til viðbótar:
Courtesy of Choice kom
út hjá XL árið 2000, Blood
Looms and Blooms kom
út 2008 hjá Warp og fyrir
nokkrum vikum kom fjórða
platan, U&I, út hjá sama
fyrir tæki.
U&I er unnin með Mt. Sims,
sem er listamannsnafn
banda ríska upp töku stjórans
og tón listar mannsins
Matthew Sims, sem starfar
í Berlín. Sims hefur gert
nokkrar plötur og unnið
með Svíunum í The Knife og ensku listakonunni Janine Rostron,
sem kallar sig Planningtorock, en hún bauð upp á frábæra tónleika á
Airwaves fyrir nokkrum árum.
Sims semur öll lögin á U&I með Leilu og syngur nokkur þeirra.
Tónlist Leilu hefur alltaf verið framsækin og tilraunakennd, en
samt er nýja platan ólík fyrri plötunum. Yfirbragðið er hrárra
og groddaralegra og stemningin villtari. U&I er kannski ekki
meistara verk, en skemmtileg plata engu að síður.
Leila fer til Berlínar
LEILA ARAB Fjórða platan U&I er komin út á
vegum Warp-útgáfunnar.
> PLATA VIKUNNAR
★★★★★
Wrecking Ball - Bruce
Springsteen
„Mikilvægasta plata Bruce
Springsteen í langan tíma.“ -TJ
Fjórða sólóplata will.i.am.
nefnist #willpower. Mick
Jagger, Jennifer Lopez og
Britney Spears eru á meðal
gestasöngvara.
Fjórða sólóplata will.i.am. úr
hljómsveitinni The Black Eyed
Peas nefnist #willpower og er
væntanleg á næstunni. Í fyrsta
smáskífulaginu, hinu eldhressa
T.H.E. (The Hardest Ever), nýtur
hann aðstoðar frá ekki ómerkari
manneskjum en Mick Jagger og
Jennifer Lopez. „#willpower er
stútfull af upplífgandi lögum, sem
hvetja fólk áfram sem á því þarf að
halda,“ sagði will.i.am.
Popparinn ólst upp í Los
Angeles. Í menntaskóla kynntist
hann Allan Lindo, eða apl.de.ap. úr
Black Eyed Peas, og ásamt þremur
öðrum stofnuðu þeir rappsveitina
Atban Klann. Rapparinn Eazy-E sá
efnivið í strákunum og gerði við þá
útgáfusamning hjá fyrirtæki sínu
Ruthless Records árið 1991. Þeir
tóku upp plötu en hún leit aldrei
dagsins ljós vegna dauða Eazy-E
1995. Atban Klann breytti nafni
sínu í The Black Eyed Peas og sú
sveit hefur núna selt yfir fimmtíu
milljónir platna um heim allan.
Þegar The Black Eyed Peas
hafði gefið út tvær plötur vildi
will.i.am. koma eigin efni á fram-
færi og gaf út sína fyrstu sóló-
plötu, Lost Change, árið 2001.
Tveimur árum síðar gaf hann út
þá næstu, Must B 21 en frekar lítið
fór fyrir þeim báðum.
Eftir útgáfu fjórðu plötu Black
Eyed Peas, stjórnaði will.i.am.
upptökum á fyrstu sólóskífu
Fergie, The Dutchess. Í fram-
haldinu hóf hann samstarf með
Michael Jackson árið 2006. Það
stóð yfir til dauða Jacksons en að
sögn Will verður ekkert gefið út af
efninu sem þeir tóku upp.
Þriðja sólóplata will.i.am., Songs
About Girls, kom út 2007. Sjálfur
leit hann á hana sem fyrstu sóló-
plötu sína. Hinar tvær voru að
hans mati eingöngu samansafn
efnis sem hann hafði verið að
dunda sér við í hljóðverinu. Songs
About Girls hlaut dræmar mót-
tökur og fór einungis í 38. sætið
á Billboard-listanum á meðan
sólóplata Fergie fór beint í annað
sætið.
Nýjasta sólóplatan átti upp-
haflega að heita Black Einstein.
Nokkur lög sem Will tók upp fyrir
teiknimyndina Rio verða þar í
nýjum útgáfum, auk þess sem
Nicki Minaj, Britney Spears, Che-
ryl Cole og Busta Rhymes eru á
meðal gestasöngvara. Miðað við
nýja smáskífulagið með Jagger og
Lopez gæti þessi fjórða plata hitt í
mark og aflað will.i.am. virðingar
sem öflugur sólótónlistarmaður.
freyr@frettabladid.is
Stjörnuregn á sólóplötu
> Í SPILARANUM
The Shins – Port of Morrow
The Wedding Present – Valentina
Michael Kiwanuka – Home Again
Gillon – Næturgárun
SÓLÓFERILL Popparinn will.i.am. gefur á næstunni út sína fjórðu sólóplötu, #willpo-
wer. NORDICPHOTOS/GETTY
Billy Corgan úr Smashing
Pumpkins segir að tónlistar-
bransinn sé uppfullur af
sýndar mennsku. Á tónlistar-
hátíðinni South By Southwest
sagðist hann hafa verið hluti
af kynslóð tónlistarmanna sem
vildi breyta heiminum. Í dag
hafa tónlistarmenn bara áhuga
á að vera frægir.
Hann bætti því við að ef hann
væri að hefja feril í dag þyrfti
hann að kveikja í sjálfum sér
á Youtube til að vekja athygli.
Hann líkti einnig nýjum
tónlistar mönnum við fatafellur.
„Þeir hafa alist upp við að
halda að markmiðið sé að
vera frægur. Ekki að öðlast
virðingu, ekki að vera
hættulegur.“
Smashing Pumpkins
gefur síðar á árinu út
plötuna Oceania sem
er að mati Corgans sú
besta sem hann hefur
sent frá sér í sextán
ár.
Snýst allt um frægðina
BILLY CORGAN
Segir að bransinn
sé uppfullur
af sýndar-
mennsku.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Kapphlaupið heldur áfram á Stöð 2 í kvöld
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is.
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 1. - 14. mars 2012
LAGALISTINN
Vikuna 8. - 14. mars 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Magni ..................................................................... Hugarró
2 Valdimar Guðmunds. / Helgi Júl. .....Stöndum sama
3 Fun / Janelle Monae .............................. We are Young
4 Blár ópal ............................................................Stattu upp
5 Retro Stefson ..........................................................Qween
6 Of Monsters and Men ...................................Lakehouse
7 The Black Keys ............................................... Lonely Boy
8 Greta Salóme / Jónsi..........................Mundu eftir mér
9 M83 ...............................................................Midnight City
10 Train ........................................................................Drive By
Sæti Flytjandi Plata
1 Mugison ....................................................................Haglél
2 Of Monsters and Men ............ My Head is an Animal
3 Ýmsir ...................... Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012
4 Bruce Springsteen ....................................Wrecking Ball
5 Adele .................................................................................. 21
6 Leonard Cohen .................................................Old Ideas
7 Hjálmar ..........................................................................Órar
8 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
9 Paul McCartney .........................Kisses On The Bottom
10 Valgeir Guðjónsson .....................Spilaðu lag fyrir mig