Fréttablaðið - 18.06.2012, Side 2

Fréttablaðið - 18.06.2012, Side 2
18. júní 2012 MÁNUDAGUR2 Steinar Berg, ertu nokkuð að plata? „Nei, en þetta er góð plata.“ Steinar Berg Ísleifsson gefur í fyrsta sinn út eigin plötu með hljómsveitinni Grasösnum. Steinar Berg hefur áður gefið út hundruð platna annarra listamanna. NÝSKÖPUN Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa frá því í vor unnið að eftirliti með veiðum skipa á Breiðafirði. Til þess er nýttur bátur sem Landhelgisgæslan hefur í próf- unum fyrir íslenska nýsköpunar- fyrirtækið OK Hull, sem hefur sótt um einkaleyfi á nýju skrokklagi sem fyrirtækið hefur þróað allt frá 2005. Á Breiðafirði hefur smábátum fjölgað mikið með tilkomu strand- veiða og mun meiri sókn er á grá- sleppuveiðar. Á undanförnum dögum hafa hundruð báta verið á sjó innan íslenska hafsvæðisins og var met sett síðastliðinn miðviku- dag þegar samtals 1.180 skip og bátar voru í fjareftirlitskerfum. Vegna þessa þótti ástæða til að taka upp sérstakt eftirlit. Eftirlitinu er þannig háttað að eftirlitsmenn Fiskistofu fara um borð í bátana, fara yfir veiðar- færi, afla, lögskráningu, samsetn- ingu afla og afladagbækur en hjá grásleppubátum er einnig kann- aður netafjöldi, sem má vera 100 net á hvern lögskráðan skipverja um borð. Landhelgisgæslan hefur umsjón með bátnum og leggur til mannskap og búnað vegna hans. Það sérstaka við þetta eftirlit er að á sama tíma tekur Gæslan þátt í nýsköpunarverkefni með prófun- um á nýjum bát frá fyrirtækinu OK Hull. Íslenska fyrirtækið OK Hull afhenti nýverið séraðgerða- og sprengjueyðingasviði LHG frum- gerð að átta metra harðbotna slöngubát sem er nýttur til eftirlits- ins, og verður jafnframt prófaður við ýmsar aðstæður á næstu mán- uðum. Að sögn Gæslunnar hefur báturinn reynst í heildina litið vel í mjög erfiðum aðstæðum. Tillögur Landhelgisgæslunnar verða síðar teknar til greina í framleiðsluferl- inu. svavar@frettabladid.is Sinna nýsköpun og eftirliti á Breiðafirði Nýsköpunarfyrirtækið OK Hull hefur sótt um einkaleyfi á bátsskrokk sem nýtist öllum tegundum báta og skipa, stórum sem smáum. Landhelgisgæslan kemur að nýsköpunarvinnunni með að nýta bát til eftirlits á Breiðafirði. BÁTURINN FLÓKI Báturinn sem LHG hefur til afnota er ætlaður til björgunar- og löggæslustarfa. Starfsmenn LHG miðla af áralangri reynslu sinni við að fínpússa hönnunina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ■ OK Hull er ört vaxandi íslenskt iðnfyrirtæki sem hefur síðan 2005 unnið að þróun og hönnun á nýrri tegund bátsskrokks. ■ OK Hull skrokklagið mun nýtast öllum tegundum báta og skipa, hvort sem um ræðir skemmtibáta, vinnubáta, varðskip eða skip til ferjuflutninga. ■ Sótt hefur verið um einkaleyfi á hönnun skrokklagsins. ■ Bátar og skip með þessu skrokk- lagi nota bæði minni orku, höggva ölduna mun minna, hafa almennt mýkri hreyfingar og ná meiri hraða við erfiðar aðstæður. OK Hull skrokklagið hefur einnig þann kost að rými um borð er meira og nýtist betur en á bátum sömu lengdar. ■ Fyrirtækið mun nú í ár kynna sex útgáfur fullbúinna sex til fimmtán metra báta á markaðinn. ■ Framleiðsla fyrirtækisins verður einkum seld á erlendum mörk- uðum. ■ Í dag starfa 38 manns hjá fyrirtækinu við hönnun, prófanir, smíði og framleiðslu. ■ OK Hull starfar í Kópavogi en áætlar byggingu 6.000 fermetra húsnæðis sem mun í framtíðinni hýsa stærstan hluta starfseminnar. Nýsköpunarfyrirtækið OK Hull SÁDÍ-ARABÍA Krónprins Sádi- Arabíu, Nayef bin Abdul Aziz al- Saud, lést á laugardaginn í Genf. Hann var jarðaður í Mekka í gærkvöldi. Nayef prins varð krónprins í fyrra en hann var einnig vara- forsætisráðherra og innanríkis- ráðherra landsins. Líklegt er að Salman bróðir hans taki nú við, en hann þykir frjálslyndari í hugsun. Flogið var með lík Nayefs frá Genf til Jeddah í gær, en hann var í læknismeðferð í Genf. - þeb Lést í Genf á laugardag: Krónprinsinn jarðaður í gær STJÓRNMÁL Viðvarandi óeining og vantraust á helstu stofnun- um íslensks samfélags er mikið áhyggjuefni að mati forsætisráð- herra. Þetta kom fram í hátíðar- ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur á Austurvelli í gær. „Ábyrgðina berum við, kjörnir fulltrúar þjóðarinnar, og enn sem komið er hefur okkur mistekist í þessu mikilvæga verkefni, að endurvinna traust þjóðarinnar,“ sagði Jóhanna í ávarpi sínu. Jóhanna sagðist vona að Alþingi bæri gæfu til að sam- þykkja frumvarp um nýtt fisk- veiðistjórnunarkerfi. Sagði hún að ekkert mætti stöðva framgang málsins, svo þjóðinni yrði tryggð- ur „langþráður og sanngjarn arður af fiskveiðiauð lindinni.“ Forsætisráðherra fjallaði einnig um að erlendar þjóðir líti til Íslands og skjóts bata lands- ins í kjölfar efnahagshrunsins. Jóhanna nefndi nokkur atriði sem dæmi um umfangsmiklar samfélagsbreytingar, sem munu skipta máli til framtíðar. „Algjör umskipti hafa orðið í þróun tekjuskiptingar í átt til aukins jafnaðar,“ benti Jóhanna á. „Nú hefur verulega dregið úr ójöfnuði og er Ísland komið í hóp ríkustu samfélaga heims þar sem hvað mestur tekjujöfnuður ríkir.“ Þá nefndi Jóhanna að jafnrétti kynjanna hafi sjaldan verið betra hér á landi. Hér sé meirihluti ráð- herra konur eins og 40 prósent þingmanna og helmingur ráðu- neytisstjóra. - bþh Forsætisráðherra hefur áhyggjur af óeiningu og vantrausti á stofnanir Íslands: Ábyrgðin er hjá stjórnmálamönnum Á AUSTURVELLI Jóhanna Sigurðardóttir gaf afdráttarlaust til kynna að helsta áherslumál stjórnvalda sé nýtt fiskveiði- stjórnunarkerfi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Varað við hreindýrum Vegagerðin vekur athygli ökumanna sérstaklega á umferð hreindýra við þjóðvegi á Austurlandi. Að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar skal við- hafa sérstaka varúð Eskifjarðarmegin á Norðfjarðarvegi, í nágrenni Egils- staða, í Berufirði og við Djúpavog. UMFERÐARMÁL Á að tryggja öryggi á sjó Til umsagnar eru nú hjá innanríkis- ráðuneytinu drög að reglugerð um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa. Markmiðið með reglugerðinni er að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna og efla varnir gegn mengun sjávar frá skipum. ÖRYGGISMÁL SVISS, AP Kjósendur í Sviss höfn- uðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær að fjölga þjóðaratkvæða- greiðslum í landinu. Hópur þjóðernissinna vildi að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram í hvert skipti sem stjórn- völd skrifuðu undir alþjóðlega samninga og sáttmála. Þeir lögðu því fram þá tillögu til þjóðar- atkvæðagreiðslu. Útgönguspár og þau atkvæði sem talin hafa verið benda þó til þess að tillagan hafi verið felld með 75 prósentum atkvæða. Svisslendingar kjósa nú þegar í þjóðaratkvæðagreiðslum um sex sinnum á ári, en þátttakan hefur farið minnkandi. - þeb Svisslendingar kusu í gær: Vilja ekki fleiri íbúakosningar LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum neyddist til að taka niður tvo íslenska fána um klukkan þrjú aðfaranótt 17. júní. Fánarnir voru sóttir af eigendum sínum morguninn eftir. Lögreglan bend- ir fólki á fánalögin þar sem finna má umgengnisreglur um þjóð- fánann. Um tímamörk segja lögin: „Fána skal eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og skal hann að jafnaði eigi vera leng- ur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis.“ - bþh Fánaeigendur brutu fánalög: Fáninn við hún klukkan þrjú ÍSLENSKI FÁNINN Ekki má draga fána á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL BANDARÍKIN, AP Rodney King, sem varð frægur þegar fjórir lög- reglumenn í Los Angeles börðu hann til óbóta, fannst látinn í gær. Hann var 47 ára. Ekki er talið að andlát hans hafi borið að með sak- næmum hætti. King var blökkumað- ur. Myndband náðist af lög- reglumönnum að berja hann við handtöku árið 1991 og vakti það mikla reiði. Lögreglumennirn- ir voru sýknaðir af ákæru um harðræði og í kjölfarið brutust út gríðarlegar óeirðir. Fimmtíu manns létust og þúsund slösuð- ust í þeim. Tæpum áratug síðar voru tveir lögreglumannanna dæmdir fyrir verknaðinn en tveir sýkn- aðir. King fékk jafnframt 3,8 milljónir dollara í bætur. - þeb Virðist hafa drukknað: Rodney King fannst látinn RODNEY KING SÝRLAND, AP Yfirmaður eftirlits- sveita Sameinuðu þjóðanna í Sýr- landi krafðist þess í gær að stríð- andi fylkingar leyfðu „konum, börnum, öldruðum og veikum“ að yfirgefa borgina Homs og önnur átakasvæði. Degi fyrr hafði hann tilkynnt að eftirlitsmennirnir hefðu hætt störfum vegna vaxandi ofbeldis í landinu. Robert Mood sagði eftirlitsmenn- ina hafa reynt að koma óbreyttum borgurum og særðu fólki út úr Homs undanfarna viku. Það hafi ekki tekist vegna þess að hvorki stjórnvöld né uppreisnarmenn vildu hætta átökum á meðan. Hann sagði báða aðila þurfa að endur- skoða afstöðu sína. „Þetta krefst vilja beggja til að virða og vernda líf sýrlensku þjóðarinnar.“ 300 eftirlitsmenn og rúmlega 100 aðrir starfsmenn SÞ hafa reynt að fylgja eftir friðaráætlun Kofi Annan undanfarið. Friðaráætlun- in fól meðal annars í sér vopnahlé sem hefur ekki verið virt. Eftir- litsmennirnir hafa verið hindrað- ir í störfum sínum og ráðist hefur verið að þeim. Því var ákveðið að hætta aðgerðum í bili, en það verð- ur endurmetið á hverjum degi. - þeb Sameinuðu þjóðirnar vilja að stríðandi fylkingar geri stutt vopnahlé í Homs: Hleypi almennum borgurum út EFTIRLITSMENN Eftirlitsmenn við komuna frá al-Haffa til Damaskus á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.