Fréttablaðið - 18.06.2012, Qupperneq 4
18. júní 2012 MÁNUDAGUR4
Telur þú að takmarka eigi fjölda kjörtímabila sem forseti
getur setið?
KÖNNUN Sex af hverjum tíu kjósendum,
um 60,6 prósent, vilja takmarka þann tíma
sem einn einstaklingur getur setið í emb-
ætti forseta Íslands, samkvæmt niðurstöð-
um skoðanakönnunar Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 sem gerð var 13. og 14. júní.
Alls sögðust 39,4 prósent þeirra sem
afstöðu tóku til spurningarinnar ekki vilja
nein takmörk. Um 4,2 prósent vildu tak-
marka setuna við eitt kjörtímabil og 19,1
prósent við tvö. Þá sögðust 27,4 prósent
vilja draga mörkin eftir þrjú kjörtímabil
og 8,7 prósent við fjögur. Þá sögðust 1,2
prósent vilja takmarka setu í embættinu
við fimm eða fleiri kjörtímabil.
Mikill munur var á afstöðu þeirra sem
svöruðu spurningunni eftir því hvaða
frambjóðanda þeir styðja. Þannig sögð-
ust um 57 prósent stuðningsmanna Ólafs
Ragnars Grímssonar ekki vilja takmarka
fjölda kjörtímabila, en fimmtán prósent
stuðningsmanna Þóru Arnórsdóttur.
Hringt var í 2.461 manns þar til náðist í
1.500 samkvæmt lagskiptu úrtaki miðviku-
daginn 13. júní og fimmtudaginn 14. júní.
Þátttakendur voru valdir með slembi úrtaki
úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt
eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og
aldri. Spurt var: Telur þú að takmarka eigi
fjölda kjörtímabila sem forseti getur setið?
Alls tóku 87,6 prósent þeirra sem náðist í
afstöðu til spurningarinnar. - bj
Sex af hverjum tíu vilja takmarka setu í embætti forseta samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2:
Stuðningsmenn Ólafs vilja síður takmörk
Fjöldi kjörtímabila
■ Já, við fimm
kjörtímabil
1,2%
■ Já, við fjögur kjörtímab.
8,7%
■ Nei
39,4%
■ Já, við eitt kjörtímab.
4,2%
■ Já, við þrjú
kjörtímabil
27,4%
■ Já, við tvö
kjörtímabil
19,1%
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS
OG STÖÐVAR 2 DAGANA 13. OG 14. JÚNÍ 2012
(fullt verð: 28.900 kr.)
VS 06G2001
Kröftug 2000 W ryksuga
með 4 lítra slitsterkum poka.
Vinnuradíus 10 metrar.
FERÐAÞJÓNUSTA „Þetta er of stór
dagur fyrir Ísland“, segir Ólafía
Sveinsdóttir, deildarstjóri ferða-
skrifstofunnar Atlantik, sem hefur
með höndum alla umsýslu fyrir
um 7.500 ferðamenn auk áhafna
þriggja skemmtiferðaskipa sem
koma til landsins í dag.
Alls koma fjögur farþegaskip
til Reykjavíkur nú fyrir hádegi,
en aldrei fyrr hafa svo mörg far-
þegaskip komið til hafnar sama
dag. Farþegar skipanna fjögurra
losa áttunda þúsundið auk áhafna
skipanna sem eru um þrjú þúsund
manns. Þá lenda í dag 40 farþega-
þotur á Keflavíkurflugvelli með
tæplega átta þúsund farþega, sam-
kvæmt upplýsingum frá Isavia.
„Það er komið vel á annað ár
síðan við hófum undirbúning fyrir
18. júní 2012,“ segir Ólafía. „Þetta
er mikið púsluspil, þó það megi
segja að það sé kostur að stærsti
hlutinn sé á einni hendi. Við getum
stjórnað umferðinni og tímasett
ferðir svo ekki verði árekstrar.
Við getum komið í veg fyrir að ekki
verði yfirfullt á vissum stöðum og
getum tímasett matar- og kaffi-
tíma, heimsóknir á söfn og aðra
afþreyingu.“
80% þeirra 7.500 farþega skip-
anna þriggja sem Atlantik þjónust-
ar ætlar í skipulagðar ferðir í dag,
og tölfræðin talar sínu máli um þau
tækifæri sem íslensk ferðaþjónusta
hefur með stöðugri fjölgun þessa
hóps ferðamanna.
Atlantik hefur bókað 105 rútur
fyrir daginn og þrjátíu jeppabif-
reiðar. Einnig fjölmargar litlar
rútur til styttri ferða á milli hafn-
ar og miðbæjar Reykjavíkur. Eins
kjósa margir farþegar að ferðast
með leigubílum. 2.500 manns ætla
á Gullfoss og Geysi en skipuleggja
þarf matar- og kaffiveitingar bæði
í hádegis- og kvöldmat. Hundr-
að ætla í ferð á Langjökul og fjöl-
margir í hvalaskoðun. Stór hópur
ætlar í útsýnisflug og aðrir ferðast
um Reykjanes.
Þó aðeins lítill hluti áhafnar
skipanna fari í land þá telur það
hratt þegar nokkur hundruð manns
fara í styttri bæjarferðir, en eins
er mjög vinsælt meðal áhafna skip-
anna að kíkja í Bláa lónið.
„Við skulum svo ekki gleyma
því að þessi skip mörg hver koma
við á Akureyri, Ísafirði og öðrum
höfnum hérlendis. Því eru margir
þessir farþegar að dvelja hér tvo
til þrjá daga og kaupgeta þeirra er
yfirleitt mikil,“ segir Ólafía.
Eftir stutta eftirgrennslan
Fréttablaðsins má áætla að hver
ferðamaður af skemmtiferðaskipi
verji um tíu til tólf þúsund krón-
um daginn sem hann dvelur hér á
landi. Bara í dag er innspýtingin
100 milljónir frá farþegum skip-
anna, varlega áætlað.
Hafnasamband Íslands áætlaði
í könnun fyrir árið 2009 að gjald-
eyristekjur af 74 þúsund ferða-
mönnum og starfsfólki skemmti-
ferðaskipa það ár hafi numið
þremur milljörðum króna að hafn-
argjöldum meðtöldum. Þá er önnur
umsýsla ótalin; vistir, varahlutir,
olíukaup og önnur þjónusta. Áætl-
anir ferðaþjónustunnar gera ráð
fyrir að farþegar skipanna verði
um hundrað þúsund í sumar.
svavar@frettabladid.is
Risadagur í ferðaþjónustu
reynir á þolmörk landsins
Fimmtán til tuttugu þúsund ferðamenn koma til landsins með fjórum skemmtiferðaskipum og 40 farþega-
þotum á næstu klukkutímum. Gjaldeyristekjur af dagdvöl skemmtiferðaskipa skiptir milljörðum í sumar.
AUFÚSUGESTIR Þegar allt er talið gefa farþegaskipin milljarða innspýtingu inn í íslensk efnahagslíf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Margir þessir farþegar
dvelja hér tvo til þrjá
daga.
ÓLAFÍA SVEINSDÓTTIR
DEILDARSTJÓRI HJÁ ATLANTIK
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
30°
30°
19°
26°
29°
20°
20°
26°
20°
25°
23°
32°
18°
21°
19°
17°
Á MORGUN
Hæg vestlæg átt.
MIÐVIKUDAGUR
Hæg SV-læg eða
breytileg átt.
12
12
13
11
10
8
11
5
13
10
12
3
2
2
2
3
2
4
2
2
6
3
8
8
10
11
10
11
12
12
12
12
MILT OG STILLT
Vikan einkennist
af fremur hægum
vindi og mildu
veðri. Áfram líkur
á síðdegisskúrum
víða um land eink-
um á miðvikudag-
inn. Litlar breyting-
ar í vændum fram
á helgi.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
FRAKKLAND, AP Sósíalistaflokk-
urinn getur myndað hreinan
meirihluta í neðri deild franska
þingsins samkvæmt útgöngu-
spám. Samkvæmt spánum hlaut
flokkurinn,
sem er flokkur
Francois Holl-
ande forseta,
312 af 577 þing-
sætum.
Ef útgöngu-
spárnar ganga
eftir þurfa
sósíalistar
ekki að reiða
sig á stuðning
frá öðrum flokkum. Það skiptir
miklu máli fyrir Hollande, sem
mun með þessu hafa stuðning
meirihluta þingsins.
Hollande hefur lofað að fjölga
opinberum starfsmönnum og
beita sér fyrir breytingum á
björgunaráætlunum Evrópusam-
bandsins, svo þær snúist í aukn-
um mæli um hagvöxt en ekki
niðurskurð. - þeb
Útgönguspár í Frakklandi:
Sósíalistar ná
meirihluta í
Frakklandi
Sprengja í Kópavogi
Öflugur skoteldur sprakk í Selbrekku
í Kópavogi aðfaranótt sunnudags.
Sprengjunni hafði verið komið fyrir
undir bíl og sprengd þar. Engin
meiðsl urðu á fólki. Litlar skemmdir
urðu á bílnum en rúða í nágrenninu
sprakk við hvellinn.
LÖGREGLUMÁL
Þór í Færeyjum
Varðskipið Þór heimsótti Færeyjar í
lok vikunnar og var samstarfsaðilum
Landhelgisgæslunnar, Íslendinga-
félaginu og almenningi boðið að
skoða skipið. Um 570 manns komu
um borð. Talsvert var fjallað um komu
skipsins í færeyskum fjölmiðlum.
UTANRÍKISMÁL
FRANCOIS
HOLLANDE
GENGIÐ 15.06.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,5323
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,34 126,94
196,43 197,39
159,32 160,22
21,437 21,563
21,209 21,333
18,040 18,146
1,6042 1,6136
191,92 193,06
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR